Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
V Vafalaust munu starfsmenn Happdrættis-stofu, verði af stofnun hennar, sinna störf-um sínum af kostgæfni, forstjóri stofunnar og aðrir starfsmenn. Hvort þörf er á að bæta við enn einni eftirlitsstofnun ríkisins
er hins vegar önnur saga.
Frumvarpi til laga um breytingu á lögum
um happdrætti hefur verið dreift á Alþingi.
Þar er lögð til innleiðing á lagaákvæðum
um aukið eftirlit með happ-
drættum, auknar forvarnir
og takmörkun á aðgengi að
fjárhættuspilum á netinu sem
eru óheimil hér á landi. Koma
skal á fót sérstakri stofnun,
Happdrættisstofu, sem ætlað
er að annast faglegt og kerfis-
bundið eftirlit með þessari
starfsemi hér á landi og vera
stjórnvöldum til ráðgjafar
um þróun happdrættismála. Í
öðru lagi er ætlunin að koma
í veg fyrir ólöglega netspilun á erlendum
sem innlendum vefsíðum með því að leggja
til bann við greiðsluþjónustu.
Ýmsum þykir nóg um viðamikið eftirlits-
kerfi hins opinbera. Þess er þörf á ýmsum
sviðum en öllu má ofgera – og ekki má
gleyma þeim kostnaði sem við bætist í
viðamiklu, mannfreku og dýru ríkisbákni
fámennrar þjóðar. Gagnsemi lögreglu og
Langhelgisgæslunnar er ekki dregin í
efa og sama á við um Ríkisendurskoðun,
embætti skattrannsóknarstjóra og Vinnu-
málastofnun, svo dæmi séu tekin. Þá gegna
Fjármálaeftirlitið, Samkeppniseftirlitið,
Matvælastofnun og Póst- og fjarskiptastofn-
un mikilvægu hlutverki.
En Stóri bróðir er víða á ferð og fylgist
með. Nýleg eftirlitsstofnun er Fjölmiðla-
nefnd en henni voru sett markmið um aukið
faglegt eftirlit með fjölmiðlum. Stofnuð var
sérstök sjálfstæð stjórnsýslunefnd, fjöl-
miðlanefnd, sem heyrir undir menntamála-
ráðherra. Nefndin leysti útvarpsréttarnefnd
af hólmi en sú nefnd hafði haft eftirlit með
starfsemi hljóð- og myndmiðla. Viðbótar-
verkefni nefndarinnar var að hafa eftir-
lit með starfi annarra fjölmiðla og annast
daglega stjórnsýslu á því sviði, svo vitnað sé
í fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2012. Hvaða
daglega stjórnsýslu þarf að viðhafa um fjöl-
miðla, umfram önnur fyrirtæki? Fróðlegt
væri að fylgjast með því daglega stússi.
Fjölmiðlar dæma sig sjálfir með efni sínu.
Hafi notendur þeirra undan einhverju að
kvarta eru til margar leiðir til að koma þeim
kvörtunum á framfæri og bregðast við þeim
– og var löngu áður en þessi tiltekna stjórn-
sýslunefnd var sett á laggirnar.
Svipað er um fyrirhugaða Happdrætt-
isstofu að segja. Ekki skal dregið í efa að
góður hugur fylgir því forræði sem þar er
boðað þótt erfitt sé að sjá hvernig koma á
í veg fyrir notkun fólks á því sem í boði er
á netinu. Hitt liggur fyrir, og kemur fram
í frumvarpi innanríkisráðherra um þetta
sérhæfða stjórnvald, að eftirlit með happ-
drættum er fyrir hendi hér á landi. Því
sinnir sýslumannsembættið á Hvolsvelli.
Sýslumannsembættin eru 24. Þau sinna
lögbundnu hlutverki en sum þeirra hafa
tekið að sér ákveðin viðbótarverkefni. Það
bendir til þess að bæta megi verkefnum á
þau, að minnsta kosti sum þeirra. Væntan-
lega er ódýrara að fela sýslumannsembætt-
inu á Hvolsvelli happdrættiseftirlit áfram
fremur en að búa til sérstaka stofnun þar
um. Þau gjöld sem taka á af happdrættis- og
spilatekjum þeirra aðila sem hafa leyfi til
að reka happdrætti, spilakassa og veðmála-
starfsemi geta þá gengið til sýslumannsins
á Hvolsvelli – og þurfa væntanlega ekki að
vera eins há og ef um rekstur heillar happ-
drættisstofnunar er að ræða.
Eftirlit á ýmsum sviðum á rétt á sér en
í þessum efnum eins og öðrum ber að minn-
ast frelsis einstaklingsins og þess að fara
gætilega með fé skattborgaranna. Guðlaug-
ur Þór Þórðarson alþingismaður benti á þau
augljósu sannindi í fyrirspurn sinni á þingi
um eftirlitsstofnanir fyrr á þessu ári þegar
hann spurði um þróun fjárheimilda, starfs-
mannafjölda og meðallaun starfsmanna
þeirra. Hjá þingmanninum kom fram að
ýmislegt benti til þess að eftirlit hefði aukist
í tíð núverandi stjórnvalda og mikilvægt
væri að vita umfang þess
Eftirlitskerfi ríkisins
Er þörf á sérstakri Happdrættisstofu?
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
„Ótrúlega skrítið allt saman. Hélt alltaf að
fólk væri áhugasamt um Gísla en ég átti ekki
endilega von á þessum viðtökum,“ segir Ingi-
björg Reynisdóttir. Hún er maður vikunnar að
þessu sinni. Bókin hennar um Gísla á Uppsölum
tók fyrsta sæti á metsölulista og skaust hún
þar með fram úr metsöluhöfundunum Arnaldi
og Yrsu. „Þetta er hvort tveggja óvænt og
skemmtilegt. Ég er mikið í því að lesa upp á
hinum ýmsu stöðum og það er ómetanlegt
að fá að hitta svona hina ýmsu og ólíku
þjóðfélagshópa.“ Aðspurð segist Ingibjörg
vera með fjölda verkefna á prjónunum
eftir áramót en þar ber helst að nefna
nýja bók, kvikmyndahandrit og leiklistar-
verkefni. „Það er alveg nóg að gera. Ég
hef verið með sögu í hnakkanum sem
farin er að garga á mig. Það er mjög
flókin og skemmtileg saga,“ segir
Ingibjörg.
MaðuR vikunnaR
Ingibjörg Reynisdóttir
Heimilistæki,
ljós og símar
í miklu úrvali.
Verslunin okkar er
komin í jólabúning
og er sneisafull af
glæsilegum vörum.
Fjöldi tækja á
sérstöku jólaverði.
Komdu í heimsókn og
gerðu góð kaup.
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Jólaverð:
5.500 kr. stgr.
Gufustrokjárn
BOSCH
Jólaverð:
27.900 kr. stgr.
Ryksuga
SIEMENS
Jólaverð:
8.300 kr. stgr.
Kaffivél
SIEMENS
Jólaverð:
14.500 kr. stgr.
Gólflampi
STAVANGER
Jólaverð:
Matvinnsluvél
BOSCH
10.900 kr. stgr.
Jólaverð:
Rakatæki
ANTON
19.900 kr. stgr.
JÓLAGJÖF FERÐAMANNSINS
Ný og endurbætt útgáfa
Í Vegahandbókina er komin ný, ýtarleg 24
síðna kortabók, á bls. 574-599.
Þar fæst skýr yrsýn yr landsvæði Íslands -
í mælikvarðanum 1:500 00.
Vegahandbókin Sundaborg 9 sími 562 2600 www.vegahandbokin.is
Auðvelt er að etta á milli bókarinnar
og kortabókarinnar til að fá yrsýn yr
það svæði sem ferðast er um.
Hljóðbók!
Bókinni fylgir
hljóðbók með
22 þjóðsögum.
Ítarlegur hálendiskai
Með því að kaupa gjafabréf frá Sól í Tógó og gefa
þeim sem þér þykir vænt um, ertu sannarlega
að gefa gjöf sem gefur. Andvirði gjafabréfssins
rennur til heimilis munaðarlausra barna í
Tógó í Afríku sem er eitt fátækasta ríki heims.
Gefðu gjöf sem gefur
Með því að kaupa gjafabréf frá Sól í Tógó og gefa
þeim sem þér þykir vænt um ertu sannarlega að gefa
gjöf sem gefur. Andvirði gjafabréfssins rennur til
heimilis munaðarlausra barna í Tógó í Afríku
sem er eitt fátækasta ríki heims.
Eitt gjafabréf kostar 3000 kr. Hafðu samband solitogo@solitogo.org
eða síma 659 7515 og við sendum þér gjafabréf.
Heimilið er rekið af Victo sem er nunna í bænum Anehó í Tógó.
Fyrir fimmtán árum tók hún að sér unga munaðarlausa stúlku.
Síðar bættist önnur stúlka við og smá saman safnaðist í kringum Victo hópur
barna. Þegar hún var ráðin til að kenna við skóla í miðbæ Anehó fylgdu
börnin með. Nú eru þau orðin rúmlega sjötíu talsins og það er ekki lengur
rúm fyrir þau í húsnæðinu við skólann. Þess vegna hefur félagsskapurinn
Sól í Tógó tekið að sér að reisa nýtt hús fyrir Victo og börnin.
Florentine í Aneho.
Nóvember 2012
Gjafabréfin eru að verðmæti 1.500 kr. og 3.000 kr. Farðu á http://solitogo.org/
og fáðu nánari upplýsingar. Þú getur líka sent póst á olitogo@solitogo.org eða
hringt í síma 659 75 vi sendum þér gjafabréf.
16 viðhorf Helgin 7.-9. desember 2012