Fréttatíminn - 07.12.2012, Blaðsíða 44
L O K K A N D I
Casa - Kringlunni og Skeifunni
Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð
Hafnarborg - Hafnarfirði
Kokka - Laugavegi
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Líf og list - Smáralind
Módern - Hlíðarsmára
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Þjóðmenningarhúsið - Hverfisgötu
Blómaval - um allt land
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki
Póley - Vestmannaeyjum
Valrós - Akureyri
Netverslun - www.kaerleikskulan.is
S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A
Sölutímabil 5.-19. desember
Með kaupum á Kærleikskúlunni styður þú
starf í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðirLeiguflug
alltaf ódýrara á netinu
Bókaðu
flugið á
ernir.is
Upplýsingar og bókanir
sími: 562 2640
netfang: ernir@ernir.is
vefur: www.ernir.is
Bíldudalur
Reykjavík
Gjögur
Vestmannaeyjar
Höfn
Húsavík
Ferðasjóður Guggu
Stuðningsreikningur Ferðasjóðs Guggu 515-14-405952 Kt. 520511-0910
irin. „Gugga varð miklu sjálfstæðari. Ég á svo erfitt
með að hætta að skipta mér af en ég held þetta sé nú að
koma,“ segir Barbara og brosir.
Vill meiri liðveislu svo hún komist oftar út
Gugga leigir íbúð af Þroskahjálp, sérútbúna, því hún
þarf svo stórt baðherbergi. „Mig
langar að flytja,“ segir Gugga. Hún
er ánægð með íbúðina en finnst
umhverfið ekki skemmtilegt. Hún
kemst ekki sjálf út, því það er ekki
sjálfvirkur opnari á stofudyrunum.
Sjálf segist Gugga líka vilja meiri
liðveislu svo hún komist oftar út úr
húsi.
Erfiðast finnst henni sjálfri hvað
henni fer aftur – líkamlega. Hún
fær bara að fara tvisvar í viku til
sjúkraþjálfara þótt hún myndi vilja
fara miklu oftar. Hún er með 165
þúsund krónur í örorkubætur og 18
þúsund í húsaleigubætur, samtals
183 þúsund krónur á mánuði. Af því
greiðir hún 82 þúsund í húsaleigu.
Afgangurinn, 101 þúsund krónur
þarf að duga fyrir sjúkraþjálfun,
ferðaþjónustu, mat, heimilishaldi,
fatnaði og afþreyingu.
Fyrir nítján árum þurftu mæðgurnar ekki að hafa
áhyggjur af því hvort og hvernig Gugga kæmist út.
Síðustu skrefin sem hún gekk voru skrefin að lög-
reglubílnum þangað sem hún leitaði skjóls undan
árás stúlknanna þriggja. Síðustu orðin sem hún sagði
áreynslulaust voru þegar hún lýsti höfuðhöggunum
fyrir lögreglunni.
Með Madonnu í eyrunum
„Mér var sagt að tala eins og hún skynjaði allt á meðan
hún var í dái,“ segir móðirin. Gugga man lítið frá þessum
tíma. „Ég man eftir vasadiskóinu,“ segir hún. Mamma
hennar hlær. „Já, mér var sagt að spila uppáhaldstónlist-
ina hennar þannig að ég setti Madonnu í vasadiskóið
og heyrnartól á höfuðið á henni. Ég
er mest hissa að hún hafi ekki fengið
ógeð á Madonnu, ég spilaði sömu lögin
aftur og aftur fyrir hana. En hún hefur
farið á tvenna Madonnutónleika síðan,
þannig að ekki hefur hún nú fengið
nóg,“ segir Barbara og brosir til stelp-
unnar sinnar.
Huglæg greind og vitsmunaþroski
Guggu skertist ekki við höfuðhöggið.
„Ég er ekki lömuð,“ segir Gugga. Hún
er hreyfihömluð því heilastofninn
varð fyrir skemmdum við blæð-
inguna. Heilastofninn er nokkurs
konar stjórnstöð líkamans.
Fötlun Guggu er þess valdandi að
fólk kemur fram við hana eins og hún
sé greindarskert. „Það er mjög fyndið
stundum,“ segir Gugga. „Sumir halda
að ég sé vitlaus – og vorkenna mér. Ég
hlæ bara að því.“ Gugga er hláturmild-
ur húmoristi sem hefur tekið örlögum
sínum með jafnaðargeði enda eru þær mæðgur sam-
mála um að létt lund Guggu hafi hjálpað henni mikið á
þeim 19 árum sem liðin eru frá hinum mikla örlagadegi.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Árlega verða um 500
manns fyrir heilaskaða
hér á landi. Um 80 af
þeim fá svo slæman
heilaskaða að þeir
þurfa á endurhæfingu
að halda. Algengasta
orsökin er slys en áætla
má að um 35 manns fái
heilaskaða á ári hverju af
völdum ofbeldis.
Gugga er mikil kisukona og segir kisuna sína, Mónu Madonnu, veita sér mikinn félagsskap heimavið.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
MEINDL
GÖNGUSKÓR
GÆÐI Í GEGN
ÚRVALIÐ ER Í ÚTILÍF.
42 viðtal Helgin 7.-9. desember 2012