Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 42
Forréttur
Ofnbakaður saltfiskur
Saltfiskur, tómatchutney, döðlur, rucola, parmesankex.
Aðalréttur
Dádýr
Dádýrafillet, rósmarin, kartöflur, svartrót, súkkulaði, gorgonzola.
Eftiréttur
Ítölsk jólakaka – Italian Christmas dessert
Pannetone, vanilluís, kanillrjómi, jarðarber.
6.500 kr.
Jólaplatti
Reykt önd, hangikjöt, sultaður rauðlaukur, epli, pikklað
grænmeti, Grana padano, Ljótur og glóðað brauð.
.
3.770 kr.
Jólamatseðill
Borðapantanir í síma 561 1313
UNO við Ingólfstorg | uno.is
www.rosendahl-timepieces.dk
Verð frá 64.900 kr.
Laugavegi 15 - 101 Reykjavík - sími 511 1900 - www.michelsen.is
ekki til neitt skelfilegra en að horfa
upp á barnið sitt svona – örkumlað
af mannavöldum. Að vera svona
vanmáttug og geta ekkert gert. Það
eru engin orð sem geta lýst því. Það
er bara skelfilegt,“ segir Barbara
og tárin renna niður kinnarnar á
henni.
Erfiðara fyrir mömmu
Gugga var búin að segja að mamma
hennar myndi fara að gráta þegar
hún rifjaði þetta upp. „Þetta hefur
verið miklu erfiðara fyrir mömmu
en mig,“ segir hún.
Í dag er Gugga bundin við hjóla-
stól og þarf hjálp við allar athafnir
daglegs lífs. Hún hefur örlitla
hreyfigetu í hægri hendi og nær
að stýra rafknúna hjólastólnum og
benda á orðaspjald á borði á stóln-
um til að tjá sig. Því þangað til fyrir
ári síðan talaði Gugga ekki.
„Hún kannaðist ekki við röddina
sína eftir slysið,“ útskýrir Barbara.
Fötlun Guggu gerði það að verkum
að hún á mjög erfitt með mál. „Hún
sagðist ekki ætla að nota þessa
rödd. Og hún er þrjósk – og það
gerði hún ekki, þangað til í fyrra,“
segir Barbara.
En hvað gerðist í fyrra? „Ég fékk
sjálfstraust,“ segir Gugga.
Hún hafði þagað í átján ár frá
slysinu og enginn vissi að hún
gæti talað. „Hún var búin að fara í
alls kyns rannsóknir og læknarnir
sögðu að þetta væri bara spurning
um þjálfun,“ segir Barbara. „En
hún vildi bara ekki tala og svo var
það eflaust komið upp í vana. Og
henni gekk svo vel að tjá sig með
spjaldinu,“ segir Barbara.
Hún vissi sjálf að hún gæti talað –
en þorði það ekki fyrr en nú.
Gugga getur ekki sagt meira en
þrjú til fjögur orð í einu. Hún er
mjög óskýr og það er erfitt að skilja
hana enda er það líkamlega erfitt
fyrir hana að koma upp orði. Hún er
hins vegar þolinmóð og endurtekur
orðin hvað eftir annað þangað til
hún skilst. Kinkar kolli þegar við-
mælandinn hefur þau rétt eftir.
Gat bara tjáð sig með aug-
unum
Fyrst í stað gat hún einungis tjáð
sig með augunum. „Það var hrika-
lega erfitt,“ segir móðir hennar.
„Við vorum að reyna að finna út úr
þessu á spítalanum. Ég þurfti að
orða allt og setja fram í formi spurn-
inga sem hún svaraði með jái eða
neii, með því að blikka augunum.
En þá þurfti ég að vita hvað hún
vildi. Svo fundum við smám saman
út úr þessu,“ segir hún.
Gugga var sextán mánuði á
spítala. Fyrst um sinn á gjörgæslu
á Landspítalanum í Fossvogi en
svo á barnadeild við Hringbraut. Í
ársbyrjun 1995 var hún útskrifuð
en mamma hennar gat ekki tekið á
móti henni í íbúðina sem hún bjó í
þannig að útbúin var fyrir þær íbúð
í Æsufellinu í Breiðholti, en hún
hafði búið í neðra Breiðholti fyrir
slysið. Hún hafði verið í Breiðholts-
skóla en kláraði tíunda bekkinn á
barnadeild Landspítalans. Hún náði
samræmdu prófunum „enda bráð-
greind,“ segir móðir hennar.
Gugga fór á tungumálabraut í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
þar sem hún fékk aðstoðarmann-
eskju sem hjálpaði henni við að
taka niður glósur. Gugga talar
mörg tungumál. „Ensku, dönsku,
1. Mynd tekin sex vikum eftir árásina og Gugga er nývöknuð úr dái. 2. Fermingar-
myndin. 3. Á góðri stundu um ári fyrir árásina.
Gugga er nýfarin
að læra myndlist
og nýtur þess
mjög. Hún hefur
þjálfast í hendinni
og getur nú beitt
henni ögn meir
en áður en hún
byrjaði í mynd-
listartímum í
haust.
Hún kallaði
margoft á hjálp
en enginn kom
til bjargar.
40 viðtal Helgin 7.-9. desember 2012