Fréttatíminn - 07.12.2012, Side 88
Helgin 7.-9. desember 201282 tíska
Lottie
fæst hjá
okkur
20% afsláttur
af öllum vörum
„Við vildum leggja okkar af mörkum
til að allir fengju gleðileg jól.“
12.12.12 SamStarf við rauða kroSSinn
Góðgerðarmaraþon til styrktar
fátækum Íslendingum
100 tónlistarmenn og fjöldi íslenskra fatahönnuða gefa vinnu sína og vörur til styrktar fátækum
Íslendingum í góðgerðarmaraþoni sem haldið verður í samstarfi við Rauða krossinn á Laugavegi-
num. Maraþonið kalla aðstandendur 12.12.12 en það er haldið tólfta desember í tólf klukkutíma,
tólf dögum fyrir jól.
m iðvikudaginn 12.12.12, verður hald-ið góðgerðarmaraþon í miðborg-inni. Maraþonið er haldið í sam-
starfi við Rauða krossinn á Íslandi, íslenska
hönnuði og tónlistarfólk.
Yfirskrift átaksins er
„Til þeirra sem þurfa“
og markmiðið að safna
fjármagni, sparifatnaði
og jólaskrauti til Ís-
lendinga sem eiga um
sárt að binda vegna bágs
fjárhags um jólin. Rauði
krossinn mun síðan sjá
um úthlutunina til þeirra
sem þurfa. Um 100 ís-
lenskir tónlistarmenn
munu spila á glæsilegri
tónleikadagskrá sem
nær yfir allan daginn
og fram á kvöld. Einnig
verða nokkrar verslanir
opnar lengur og uppboð
haldið með íslenskri
hönnun. „Við vildum
leggja okkar af mörkum
svo að allir Íslendingar
fengju gleðileg jól,“
segir Þuríður Ragna Jó-
hannesdóttir, ein skipu-
leggjenda.
„Við tókum höndum
saman með bareigend-
anum Davíð Steingríms-
syni á Obladí og kýldum
bara á þetta. Við gerðum
svipað í nóvember og
það gekk svo vel svo við
ákváðum bara að hafa
þetta ennþá stærra í
sniðum í desember.“
Þuríður er önnur
tveggja hönnuða Sow
Icelandic creations.
Hönnunardúettinn
endurvinnur föt úr not-
uðum flíkum frá Rauða
krossinum.
Maraþonið hefst klukkan 12 á hádegi og
stendur til 12 á miðnætti. Allan daginn verður
boðið upp á tónleika á skemmtistöðunum Dil-
lon, Obladí og 46 þar sem tónlistarfólk gefur
vinnu sína og spilar allan daginn. Hápunktur
söfnunarinnar verður svo uppboð þar sem
boðin verða upp þekkt merki íslenskrar hönn-
unar.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Hópurinn hyggst safna jólagjöfum, fötum,
skrauti og fé. Hápunkturinn er uppboðið.
Feminin Fashion Bæjarlind 4 201 Kópavogi S. 544 2222 feminin@feminin.is
Opnunartími:
Mán - föst: 11 - 18
Laugard: 10 - 16
Jóla dressið
fæst hjá okkur
Allar upplýsingar
á Facebook
Mikið úrval
af kjólum og
kjólabolum
St. 40-58
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Handprjónasamband Íslands
Skólavörðustíg 19
s. 552-1890
www.handknit.is
Léttlopapeysa, léttlopi,
uppskrift og prjónar.
Vorum að taka upp
frábæran náttfatnað
Kjólar frá 7.990 kr.
Hamraborg 20 S. 544 4088Ynja undirfataverslun
St. 41-46 Verð 8.995.-
St. 41-46 Verð 11.995.-
St. 28-35 Verð 5.295
Grensásvegur 8 - S ím i : 517 2040
SKÓ
MARKAÐURINN
S KÓ M A R K A Ð U R
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
Grensásvegi 8