Fréttatíminn - 07.12.2012, Qupperneq 96
90 bíó Helgin 7.-9. desember 2012
Að þessu
sinni tekur
Clark jólin
vægast
sagt há-
tíðlega og
innblásinn
hátíðar-
andanum
ætlar
hann sér
að halda
fullkomin
stórfjöl-
skyldujól.
Christmas VaCation sígild jólamynd endursýnd
F yrsta Griswold-myndin Vacation var frumsýnd 1983, í kjölfarið lagði Clark síðan land undir fót með fjölskyldu sinni
í Europian Vacation tveimur árum síðar og á
Sá mæti maður John Hughes (Home Alone,
Uncle Buck, Planes, Trains & Automobiles,
Ferris Bueller's Day Off) skrifaði handrit
allra Griswold-myndanna þriggja og var
greinilega í banastuði þegar hann skrifaði
jólasögu Clarks Griswold og fjölskyldu hans
þar sem hver fáránleg uppákoman rekur aðra
í drepfyndinni gamanmynd.
Christmas Vacation var frumsýnd árið
1989 þegar Chevy Chase gat enn talist
skemmtilegur og fyndinn og aldrei verður af
þessum heillum horfna grínara að hann situr
ákaflega vel í hlutverki Clarks Griswold.
Clark er draumóramaður sem ræðst oftast
í málin meira af vilja en getu og dregur
iðulega eiginkonuna og börnin sín tvö með
sér út í spennandi ævintýri sem enda nánast
undantekningalaust sem hið mesta feigðar-
flan. Að þessu sinni tekur Clark jólin vægast
sagt hátíðlega og innblásinn hátíðarandanum
ætlar hann sér að halda fullkomin stórfjöl-
skyldujól á heimili sínu í Chicago þangað
sem hann stefnir tengdaforeldrum sínum,
foreldrum sínum, frænku og öldruðum og
snarkölkuðum frænda. Hópurinn blandast
ekki neitt sérlega vel saman og allt fer þetta
endanlega í handaskolum þegar skyldfólk
hans frá Kansas birtist óvænt og algerlega
óboðið á húsbílnum sínum og kemur sér
fyrir í innkeyrslunni. Þar fer fremstur í flokki
slúbbertinn og landeyðan Eddie frændi sem
Randy Quaid leikur af stakri snilld.
Clark reynir að gera gott úr öllu en lífið er
honum átakanlega mótdrægt á aðventunni
svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Christmas
Vacation er einhvern veginn þannig mynd að
hún þolir ítrekað áhorf og öll er þessi vitleysa
nógu klikkuð til þess að endalaust má hlæja
að sama ruglinu. Það er því vel til fundið hjá
Sambíóunum að bjóða upp á myndina í bíó
í aðdraganda jóla en hún hefur ekki staðið
fólki til boða á breiðtjaldi í rúm tuttugu ár.
Chase er studdur dyggum hópi góðra auka-
leikara þar sem fyrrnefndur Randy Quaid
er fremstur meðal jafningja. Juliette Lewis
leikur unglingaveika dóttur Clarks og Johnny
Galecki leikur son Clarks en sá hefur heldur
betur slegið í gegn í seinni tíð í hlutverki nör-
dsins Leonard í The Big Bang Theory. Leik-
konan líflega Julia Louis-Dreyfus, sem síðar
gerði það gott sem Elaine í Seinfeld-þáttun-
um, leikur nágrannakonu Griswold-fjölskyld-
unnar sem fær heldur betur að finna fyrir því
hvernig er að búa við hliðina á jólabrjálæð-
ingnum Clark Griswold.
Chevy Chase lék fjölskylduföðurinn seinheppna Clark Wilhelm Griswold í þrígang í gamanmynd-
unum sem kenndar eru við National Lampooń s og frí af ýmsu tagi. Árið 1989 reyndi vesalings Clark
að halda gamaldags stórfjölskyldujól hátíðleg með skelfilegum afleiðingum í Christmas Vacation.
Sú mynd er fyrir löngu orðin sígild jólamynd og Sambíóin bregða á leik á aðventunni og endursýna
þessa snilld sem á að koma öllum í jólaskap.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Clark Griswold kemur
með jólaskapið
Tvær grímur renna á frú Ellen Griswold (Beverly D Ángelo) þegar eiginmaður hennar fær jólabakteríuna og leggur allt í
sölurnar svo stórfjölskyldan geti átt fullkomin jól.
Svartur sunnudagur Carnival of Souls
Sunnudagsbíósýningar þeirra félaga Hugleiks Dagssonar, Sjóns
og Sigurjóns Kjartanssonar halda áfram í Bíó Paradís undir
merkjum Svartra sunnudaga og að þessu sinni bjóða þeir upp
á almennilega sýru sem hefur
í gegnum tíðina heillað ekki
ómerkari rugludall en sjálfan
David Lynch.
Carnival of Souls segir frá konu
sem er næstum drukknuð
eftir þriggja klukkustunda leit
björgunarmanna að henni. Eftir
að hún kemst á land ræður hún
sig sem organista í kirkju í litlum
bæ í Utah og þá fara undarlegir
hlutir að gerast.
Heimildamyndagerðar-
maðurinn Hark Harvey gerði myndina fyrir lítið fé árið 1963 og
hún taldist til B-mynda, fékk litla dreifingu og var helst sýnd í
bílabíóum. Hún aflaði sér þó fylgis hjá afmörkuðum hópum og
endaði með „költ-status“.
Carnival of Souls flokkast sem
hryllingsmynd en býr yfir sér-
stöku andrúmslofti sem hefur
sem fyrr segir verið David Lynch
innblástur. Töfrar myndarinnar
verða ekki greindir auðveldlega
en hér gefst einstakt tækifæri til
þess að upplifa hana í myrkum
bíósal.
Carnival of Souls er sýnd í Bíó
Paradís sunnudagskvöldið 9.
desember klukkan 20.Organistinn lendir í undarlegum aðstæðum í smábæ í Utah.
Þú færð gjafakort í verslunum
Gjafakort
Jólabókin í ár!
Gjafakort frá eBókum er fullkomin jólagjöf.
Fæst í Hagkaupum, ELKO og Epli.