Fréttatíminn - 18.10.2013, Qupperneq 32
Lífið er engin Disney-mynd
Ólafur Helgi Móberg kynntist eiginmanni sínum í gegnum einkamálasíðu, fyrsta stefnumótið þeirra var á Disney-
mynd og í sumar gengu þeir í hjónaband. Lífið hefur þó ekki verið neinn dans á rósum hjá Ólafi því nauðgun sem hann
varð fyrir í Mílanó þar sem hann var við tískunám varð til þess að tilvera hans einkenndist um tíma af kvíða og van-
máttarkennd. Honum tókst um síðir að vinna sig frá þeirri reynslu, hann útskrifaðist sem tískuhönnuður í haust og
stefnir á að hasla sér völl á því sviði.
É
g hef titlað mig sem tísku-, búninga-
og brúðkaupshönnuð. Mér finnst
skemmtilegast að hanna fyrir brúð-
kaup – ég fann sérstaklega fyrir því
fyrir mitt eigið brúðkaup,“ segir
Ólafur Helgi Móberg Ólafsson sem útskrifaðist í
haust úr tískuhönnunarnámi frá Nuova Acca-
demia di Belle Arti Milano á Ítalíu. Þann 29. júní
gekk hann að eiga unnusta sinn til fjögurra ára,
Daníel Móberg Guðjónsson, og auk þess að sjá
um allan undirbúning fyrir brúðkaupið hannaði
Ólafur Helgi einnig fötin sem hann klæddist –
jakkaföt innblásin af brúðarkjól. Ólafur Helgi er
líkamlega fatlaður með skakkan hrygg en hann
hefur ekki látið fötlun sína aftra sér frá því að láta
drauma sína rætast og vera opinn fyrir ástinni.
„Ég hafði aldrei áður verið á föstu og þetta er
því fyrsta sambandið mitt. Við kynntumst í gegn
um Einkamál.is. Ég millilenti í Kaupmannahöfn
þegar ég var á leið heim í jólafrí frá Mílanó árið
2007 og ákvað að skrá mig á einkamálasíðu í
von um að hitta einhvern í Kaupmannahöfn til
að fara með út á lífið. Ég kynntist engum þar en
fékk póst frá Daníel sem var á Íslandi. Við send-
um hvor öðrum löng bréf og ákváðum loksins
að hittast þó ég hefði í raun ekki verið að leita að
kærasta. Fyrsta stefnumótið var 29. desember.
Hann sótti mig heim til mömmu, þar sem ég bjó
þá, og við fórum á bíómynd sem ég hafði valið.
Þetta var Disney-myndin Enchanted og hún
fjallar um teiknimyndaprinsessu sem lendir inni
í raunveruleikanum. Amy Adams lék prinsess-
una. Ég vissi ekki hvernig Daníel myndi lítast á
myndina. Hann sagði mér seinna að hann hefði
orðið svolítið hissa þegar myndin var að byrja því
hún byrjar sem teiknimynd en við hlógum báðir
mikið yfir henni og í dag er þetta í raun myndin
okkar. Þegar hann keyrði mig heim eftir bíóið
teygði ég mig yfir til að kyssa hann á kinnina,
eins og allir gerðu á Ítalíu, en hann hélt að ég
ætlaði að kyssa hann á munninn og kyssti mig
á móti. Þarna kysstumst við í fyrsta skipti og ég
fékk fiðring í magann.“
Ákvað 13 ára að verða dragdrottning
Ólafur Helgi heillaðist snemma af leiklist, fram-
komu og búningum. Þegar hann á unglingsaldri
og sá myndina Priscilla – Queen of the Desert,
sem fjallar um dragdrottningu, var ekki aftur
snúið. „Ég sagði þá við bróður minn að ég ætlaði
að verða dragdrottning þegar ég yrði stór og fór
í fyrsta skipti í drag þegar ég var 13 ára.“ Ólafur
Helgi fór í Fjölbrautaskóla Breiðholts en fann
sig ekki í námi. Hann tók þá áhugasviðspróf og
var ráðlagt að fara á handíðabraut. „Ég kunni
ekki einu sinni að þræða saumavél þegar ég
byrjaði en fannst þetta nám ótrúlega spennandi
og mér fannst virkilega gaman að skapa flíkur.
Ég tók þátt í starfi leiklistarhópsins í skólanum
og þegar settur var upp söngleikur um Abba
fékk ég að hanna alla búninga og leika aðalhlut-
verk. Upphaflega ætlaði ég að fara til Ítalíu og
læra leikhúshönnun en á síðustu stundu ákvað
ég að læra tískuhönnun. Ég var búinn að gera
mér grein fyrir að það voru tískuhönnuðir sem
hönnuðu fyrir öll stóru tónlistarmyndböndin og
fannst sá heimur líka heillandi.“
Árið 2002 markaði tímamót hjá Ólafi Helga
þegar hann kom út úr skápnum og sama ár tók
hann þátt keppninni Dragdrottning Íslands.
„Þetta var svo ótrúlega gaman að ég tók aftur þátt
ári seinna og sigraði þá sem Starina. Ég var í kjól
sem ég hannaði og ákvað að þegar ég færi í drag
væri það alltaf mín hönnun. Ég reyndar fer í kjóla
sem mér eru gefnir en ég hef aldrei keypt mér
kjól. Þegar ég hanna sé ég alltaf umhverfið og
Kjóllinn sem Ólafur Helgi klæðist hér er
hluti af lokaverkefni hans við hönn-
unarskóla í Mílanó sem var innblásið af
fantasíu. Afgang af efninu notaði hann
til að búa til föt á brúðarmeyjarnar í
brúðkaupinu sínu í sumar, sem og vesti
hringaberans. Ljósmynd/Hari
Framhald á næstu opna
32 viðtal Helgin 18.-20. október 2013