Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 40
40 fjölskyldan Helgin 18.-20. október 2013 Skortur á þakklæti er sök hinna fullorðnu A sante sana, Maka Pola, asante“, hrópar margradda kór tólf stúlkna þegar ég rétti hverri fyrir sig litla fernu með ávaxtasafa. Í snarþýðingu úr swahili yfir á íslensku, myndi setningin hljóma einhvern veginn svona: „Takk innilega, Magga Pála, takk fyrir mig“. Hversu oft hef ég ekki rétt barni og börnum fernu af þessu tagi eða gaukað ein- hverju lítilræði að litlu kríli án þess að heyra fagnaðarlæti eða þá að þakkað sé sérstak- lega fyrir sig. Hvert augnablik með þessum munaðarlausu stúlkum í Daar es Salaam í Tansaníu minnir mig harkalega á skuggahliðar allsnægtanna heima á ísaköldu landi harla mörgum breiddargráðum norðar en litla athvarfið sem hópur Íslendinga hefur byggt upp hér á síðustu mánuðum. Þær skortir nánast allt sem heima þykir sjálfsagt og alls ekki þakkarvert en af sumu eru þær margfalt ríkari en börn efnaðri þjóða. Þær eiga óendanlega gleði með allt sem gert er með þeim og fyrir þær og þær eiga undrun barnshugans óspillta yfir öllu þessu skrýtna og skemmtilega sem leynist í heiminum eins og miðaldra, hvítri konu sem kútveltist rennsveitt með þeim um gólfið. Svo eiga þær þakklæti hjartans. Þakklæti fyrir ávaxtadrykk, þakklæti fyrir eina skólabók, þakklæti fyrir eina stund sem gleður, þakklæti fyrir lífið og til- veruna. Þetta er þeirra ríkidæmi sem allsnægtir Vesturlanda hafa svipt börnin sín í tómu hugsunarleysi. Ég vanda mig ógn og skelfing að hlaða ekki á þær gjöfum í hvert skipti sem ég kem á heimilið til að spilla ekki þeirra hreina hjarta því ég veit sem er að kálfar launa sjaldnast ofeldi. Svo hugsa ég heim til allra barnanna sem hafa ekki fengið að æfa þakklæti því að leikföng og munngát eru partur af daglegu lífi og þar af leiðandi ekki þakkarvert. Það er ekki við þau að sakast þótt þau hrópi; „mig langar, mig langar“, það er okkar fullorðinna að snúa við blaðinu. Það er nefnilega ekki bara skorturinn sem hefur kennt stúlkunum mínum þakklæti, heldur hefur þeim verið kennt að þakka fyrir sig í þau fáu skipti sem þeim hlotnast gjöf eða þeim er gerður dagamunur með einhverjum hætti. Allsnægtir Vesturlanda eru í sjálfu sér ekki orsökin fyrir skorti á þakklæti barna. Við, hin fullorðnu, gleymum að þakka fyrir það sem við eigum – bæði hátt og í hljóði. Við berum börnum endalaust óþarfa gjafir og réttum sælgæti og sælgætis- drykki við öll hugsanleg sem óhugsanleg tækifæri í stað þess að aga okkur í hófsemi og gæta að aurunum okkar. Síðan gleymum við að „láta“ börnin þakka fyrir sig þar til þau eru farin að krefjast og heimta af tómu vanþakklæti eins og við orðum það! Hver veit nema fjölskyldur geti valið að venda sínu kvæði í kross og farið að æfa bæði hófsemi og þakklæti. Þökkum fyrir matinn umyrðalaust, föðmum og þökkum fyrir hverja gjöf. Segjum frá öllum þeim sem eiga minna og hafa minna og hvernig væri að eiga krukku á heimilinu fyrir smápeninga sem eru látnir renna til þurfandi barna og fjölskyldna heima og heiman. Tölum um gleði okkar yfir öllu því sem við eigum, húsa- skjól og næringu, heimili og fjölskyldu og fyrir að eiga hvert annað. Allsnægtir Vesturlanda eru í sjálfu sér ekki orsökin fyrir skorti á þakklæti barna. Við, hin fullorðnu, gleymum að þakka fyrir það sem við eigum – bæði hátt og í hljóði. Takk fyrir mig Margrét Pála Ólafsdóttir ritstjórn@ frettatiminn.is heimur bArnA www.tk.is ERUM EKKI Í KRINGLUNNI EINGÖNGU Á LAUGAVEGI 178 Laugavegi 178 - Sími. 568 9955 Í TÉKK-KRISTAL Hnífaparatöskur 16 teg. Verð frá 24.990.- TILBOÐ Heldur heitu og köldu í 4 tíma + - margir litir Virka daga 11 -18 Laugardaga 11 -16 O P N U N A R T Í M I FIMMTUDAG, FÖSTUDAG LAUGARDAG & MÁNUDAG T ILBOÐSBORÐ 25% TIL 50% AFSLÁTTUR JÓLAVÖRUR OG FLEIRA Global hnífar ÞAÐ ER STUTT TIL JÓLA FULL BÚÐ AF FLOTTUM VÖRUM Á TILBOÐSVERÐI Hnífapör og fylgihlutir f.12manns samt. 72 stk. Söfnunarglös 16 teg. TILBOÐSVERÐ T.d. kristals-hvítvínsglös 6. stk í gjafakassa frá kr. 4.275.- AFSLÁTTUR AF SÖFNUNAR HNÍFAPÖRUM & MATAR- & KAFFISTELLUM NÝTT KORTATÍMABIL ÷20% AFSLÁTTAR ÷10% til ÷15% ÷20% til ÷25% Öllum matar og kaffistellum IITTALA VÖRUR  hreyfifærni Góður leikur til Að AukA sAmhæfinGu oG þol Blöðruleikur úti í náttúrunni Blöðrur eru skemmtilegur efniviður til að vinna og leika sér með og henta vel til að efla hreyfifærni barna. Það er gaman að leika með blöðrur innandyra en jafnvel enn skemmtilegra getur verið að fara með þær út í náttúruna. Ef langur spotti er bundinn í blöðru og um úlnlið barns er hægt að skottast með blöðruna út um allt án þess að vindurinn feyki henni út í buskann. Að ganga á ójöfnu undirlagi og halda blöðru á lofti á sama tíma krefst mikillar samhæfingar, bæði á milli augna og handa og augna og fóta auk þess að vera góð jafnvæg- isæfing. Við slíkar æfingar eflist skynþroski barna til muna þar sem unnið er með mörg skynfæri á sama tíma og úti í náttúrunni þar að auki. Við slíka leiki eykst þol barna því þau geta auðveldlega gleymt sér í hita leiksins og hlaup- ið um án þess að velta fyrir hvað tímanum líður eða hversu langa vegalengd þau hafa hlaupið. -dhe Upplýsingar af Facebook-síðu bókarinnar Færni til framtíðar eftir Sabínu Steinunni Halldórs- dóttur. Ganga á ójöfnu undirlagi þar sem reynt er að halda blöðru á lofti á sama tíma krefst mikillar samhæfingar. Slíkar æfingar hafa góð áhrif á skynþroska barna. Ljósmynd/ GettyImages/NordicPhotos.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.