Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.10.2013, Page 60

Fréttatíminn - 18.10.2013, Page 60
60 bíó Helgin 18.-20. október 2013 Hrifn- ingin sem Gravity hefur vakið hefur orðið til þess að byrjað er að spá myndinni velgengni á næstu óskars- verð- launahátíð.  Frumsýnd Gravity m exíkóski leikstjórinn Alfonso Cuaron magnar upp mikla spennu í kringum lífsháska tveggja geim- fara sem verða viðskila við geimfar sitt og eru eins og stefnulaus reköld úti í geimnum með takmarkaðar súrefnisbirgðir og enn minni lífslíkur. Gravity kemur feiknasterk inn í kjölfar sápukúlumynda sumarsins og hefur sett aðsóknarmet í Bandaríkjunum í október sem er alla jafna frekar rólegur mánuður þegar kemur að bíósókn. Myndin er búin að vera á toppi aðsóknarlista í Bandaríkjunum og Kanada í tvær vikur og sjálfum Tom Hanks tókst ekki að velta Gravity úr þeim sessi um síðustu helgi þegar nýjasta mynd hans, Captain Philips, var frumsýnd. Ryan Stone (Sandra Bullock) er í sinni fyrstu geimferð þar hún nýtur leiðsagnar hins reynda leiðangursstjóra Matt Kowalski (George Clooney) sem er aftur á móti í sinni síðustu ferð út fyrir gufuhvolfið. Geimfararn- ir tveir lenda í meiriháttar vandræðum þegar brak úr gervihnetti skellur á geimfari þeirra. Tjónið er slíkt að viðgerð er ekki möguleg og til að bæta gráu ofan á svart eru þau bæði að störfum utan við geimstöðina þegar óhappið verður. Þau svífa því um geiminn bjargarlaus með takmarkað súrefni og fá að kynnast ótta sem erfitt er að hugsa sér, fullkomna innilokunar- kennd í endalausu plássi. Þau eru sambands- laus við stjórnstöð á jörðu niðri þannig að þaðan er enga hjálp að fá og þau hafa því ekk- ert annað til að treysta á en eigið hyggjuvit og hugrekki sem virkar ekkert of vel þegar örvæntingin tekur völdin. Gravity hefur fengið frábæra dóma ytra og spurst vel út með almannarómi þar sem mest er gert úr góðum leik Söndru Bullock og magnaðri leikstjórn Cuarons sem nýtir þrívídd til þess að fanga þá tilfinningu að áhorfendur svífi með persónunum í þyngdar- leysinu. Cuaron er einna þekktastur fyrir Children of Men og að hafa verið kallaður til þegar tími var kominn til að gera Harry Potter- bálkinn drungalegri og ógnvænlegri en hann leikstýrði þriðju myndinni, Harry Potter and the Prisoner of Azkaban. Cuaron skrifar handrit myndarinnar sjálfur ásamt syni sínum, Jonás, en segja má að með Gravity sameini hann tvo æskudrauma sína en hann langaði alltaf að verða bæði leikstjóri og geimfari. Hrifningin sem Gravity hefur vakið hefur orðið til þess að byrjað er að spá myndinni velgengni á næstu óskarsverðlaunahátíð. Gangi sú spá eftir er ekki útilokað að Sandra Bullock geri atlögu að sínum öðrum verð- launum. Eftir all mörg mögur ár hlaut hún Óskarinn fyrir leik sinn í The Blind Side 2009 en í kjölfarið setti erfiður skilnaður hana aðeins út af laginu. Hún hefur heldur betur verið að ná vopnum sínum að nýju undanfarið. Hún sló í gegn fyrr á árinu ásamt Melissa McCarthy í gamanmyndinni The Heat og nú fylgir hún velgengninni eftir með Gravity og allt útlit er fyrir að seinni hluti ferils hennar verði glæsilegri en í upphafi. Geimtryllir Alfonso Cuarons er einhver umtalaðasta kvikmynd í heimi þessar vikurnar. Hún hefur gert stormandi lukku bæði hjá áhorfendum og gagnrýnendum sem fá vart haldið vatni yfir spennunni sem Cuaron laðar fram þar sem hann fylgir Söndru Bullock og George Clooney þar sem þau svífa hjálparlaus í geimnum með takmarkaðar súrefnisbirgðir. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Þyngdarlaus dauðadómur Sandra Bullock og George Clooney komast heldur betur í hann krappan þegar þau verða strandaglópar úti í geimnum í spennu- myndinni Gravity. Danskur krimmi og dans  Frumsýndar tvær ólíkar Danski glæpasagnahöfundurinn Jussi Adler-Olsen á nokkurn hóp aðdáenda á Íslandi og þeir hafa nú heldur betur tilefni til að fagna þar sem bíómyndin Kvinden i Buret, sem gerð er eftir einni bóka hans, er komin í bíó. Rannsóknar- lögreglumennirnir Carl Mørck og Assad flækjast í fimm ára gamalt mannshvarfs- mál og þurfa að kafa djúpt ofan í ógeðs- lega undirheima Danmerkur. Með aðal- hlutverk í myndinni fara Nikolaj Lie Kaas úr sjónvarpsþáttunum Forbrydelsen og Fares Fares úr Snabba Cash I & II. Í Battle of the Year segir frá sam- nefndri árlegri danskeppni þar sem bestu danslið heims mætast. Þegar hér er komið við sögu hafa Bandaríkjamenn tapað fimmtán ár í röð. Hipp hopp-arinn Dante vill breyta þessu og fær heillum horfinn körfuboltaþjálfara til þess að setja saman öflugt lið. Kunnugleg andlit úr sjónvarpinu eru í forgrunni Konunnar í búrinu. SKÓLANEMAR: 25% AfSLáttuR gEgN fRAMvíSuN SKíRtEiNiS! MEÐ StuÐNiNgi REYKJAvíKuRBORgAR & KviKMYNDAMiÐStÖÐvAR íSLANDS - MiÐASALA: 412 7711 MuD (12) SJÁ SÝNINGARTÍMA Á BIOPARADIS.IS viDEODROME (16) SuN: 20.00 KAUPTU FJÓRAR FÁÐU SEX HOLL OG UPPBYGGILEG NÆRING EFTIR GÓÐA ÆFINGU. HENTAR flestum sem hafa mjólkursykuróþol. Græna ljósið frumsýnir hina umtöluðu heimildarmynd Black- fish sem fjallar um illa meðferð á háhyrningum í Sea World og skelfilegar afleiðingar umgengn- innar við dýrin. Árið 2010 lést Dawn Brancheau, dýraþjálfari í vatnsgarðinum Sea World í Orlando á Flórída, þegar háhyrningurinn Tilikum réðist á hana. Tilikum hafði einnig valdið dauðsfalli þjálfara árið 1991, áður en hann kom til Sea World. Háhyrningar eru ekki gjarnir á að ráðast á fólk þegar þeir eru í sínu náttúrulega umhverfi en þeim mun líklegri til þess þegar þeir eru hafðir til sýnis í kvíum og því eru uppi efasemdir um hvort rétt sé að halda þessum stóru, greindu dýr- um föngnum til þess að sýna listir sínar. Kvikmyndagerðarmaðurinn Gabriela Cowperthwaite hefur rannsakað lifnaðarhætti háhyrn- inga allt frá því Dawn Brancheau lést og sýnir þessar merkilegu skepnur á áhrifamikinn og ögrandi máta um leið og hún varpar ljósi á hvernig hagur dýranna samræmist ekki alltaf áætlunum um rekstur og fjárhagslegan ávinning vatna- garða á borð við Sea World.  Heimildarmynd BlackFisH Aðgát skal höfð í nærveru háhyrninga Blackfish þykir mjög áhrifarík heim- ildarmynd um meðferð háhyrninga sem sýningardýra.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.