Fréttatíminn - 18.10.2013, Síða 62
K ristín Jóhannesdóttir leikstýrir Húsi Bernhörðu Alba sem Borgarleikhúsið frumsýnir í Gamla bíói á föstu-dagskvöld. Sýningin er femínísk og Kristín hefur flétt-
að samtímavísunum saman við sígildan texta Federico García
Lorca. Um 70 konur koma
einnig að uppfærslunni og eru
þær 35 á sviðinu þegar mest er.
Einn karlmaður fær að slæðast
með, Þröstur Leó Gunnarsson,
en hann leikur sjálfa Bernhörðu
en Kristín vildi karlmann í hlut-
verkið þar sem kenningar eru
uppi um að skáldið hafi skrifað
einræðisherrann Franco inn í
verkið í gervi Bernhörðu.
Maríanna Klara Lúthersdóttir
leikkona, bókmenntafræðingur
og femínisti, leikur eina fimm
dætra Bernhörðu í uppsetning-
unni. Hún segir æfingaferlið
hafa verið stórskemmtilegt í
þessum líflega kvennahópi.
„Þótt það sé dramatík á svið-
inu þá er gríðarlega gaman á
bak við tjöldin,“ segir Maríanna.
„Og það er ekki leiðinlegt að æfa
sýningu með hátt í 70 konum.
Þetta er femínískt. Ef maður
gerir á annað borð sýningu með
70 konum kemur ekki annað til
greina og það gengur ekkert
gegn minni sannfæringu að
vinna með Kristínu. Það eru tólf
leikkonur á sviðinu og sextíu
kvenna kór sem skiptast á að
vera á sviðinu, tuttugu í senn.
Þannig að þetta er stór hópur.“
Maríanna lék yngstu dóttur
Bernhörðu með Nemendaleik-
húsinu fyrir tíu árum en hefur
nú elst aðeins og er sú þriðja
yngsta að þessu sinni.
„Lorca er æðislegt skáld og
ég hef alltaf verið mjög hrifin af
honum og það er ekki leiðin-
legt að koma að þessu tíu árum
seinna. Þetta er náttúrlega
frábært leikrit bara eins og það er skrifað en Kristín sprengir
alltaf utan af sér rammann sem gerir hana að svo skemmti-
legum leikstjóra. Hún tengir þetta beint við samtímann og
það sem er að gerast í heiminum í dag,“ segir Maríanna en
Pussy Riot-réttarhöldin eru á meðal þess sem Kristín vísar í.
„Það er í sjálfu sér ekki verið að breyta neinu nema koma
bara með vísanir beint í samtímann til að undirstrika hvað
Lorca á enn vel við. Á meðan það er einhvers staðar kúgun og
helsi í heiminum þá á þetta verk erindi.“
Þröstur Leó Gunnarsson er eini karlinn í hópnum en leikur
engu að síður konu, sjálfa Bernhörðu og smellpassar í hópinn
að sögn Maríönnu. „Þröstur, litli fuglinn þarna í úlfahópnum,“
segir hún og hlær sínum smitandi hlátri. „Hann er bara svo
skemmtilegur maður að það hálfa væri nóg og er orðinn ein
af stelpunum. Við erum að grínast með að hann verði farinn
að nota varalit og baka úr spelti eftir frumsýningu. Ég sé ekki
fyrir mér þann hóp sem Þröstur myndi ekki gera skemmti-
legri enda er hann með skemmtilegri mönnum.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
TónleiKasyrpa 15:15 í norræna húsinu
Hljóðpínuseiður og söngur
Tríó Vei
heldur nú
upp á sitt
tíunda
starfsár.
Ný tónleikasyrpa í 15:15 röðinni er að hefjast
í Norræna húsinu. Í vetur verða 9 tónleikar og
er það Tríó Vei sem ríður á vaðið með tónleik-
um sem nefnast Hljóðpínuseiður og söngur,
sunnudaginn 20. október klukkan 15:15.
Tríó Vei er skipað Ingibjörgu Guðjóns-
dóttur sópran, Einari Jóhannessyni klarín-
ettuleikara og Valgerði Andrésdóttur píanó-
leikara.
Efnisskrá tónleikanna samstendur af ís-
lenskum og breskum tónverkum. Elsta
verkið er frá árinu 1920 en það yngsta frá
aldarmótaárinu 2000. Flutt verða verkin
Songs of Innocence eða Söngvar sakleysis-
ins eftir Arnold Cooke við ljóð hin þekktu
ljóð Williams Blake. Two Nursery Rhymes
eftir Arthur Bliss og Beauty Haunts the
Woods at Night eftir Malcolm Arnold en þau
eru öll skrifuð fyrir rödd, klarínett og píanó.
Lokaverk tónleikana er Sonata op. 29 fyrir
klarínett og píanó eftir Sir Malcolm Arnold
og má þar heyra m.a. áhrif frá tékkneskum
dansi.
Af íslenskum verkum verða flutt þrjú söng-
lög Þorkels Sigurbjörnssonar úr lagaflokkn-
um Þorpinu við ljóð Jóns úr Vör. Verkið
Seiður fyrir klarínett og píanó var samið árið
2000.
Maríana Clara Með TuguM Kvenna í húsi Bernhörðu alBa
Mikið hlegið að tjaldabaki
Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld, föstudag, leikritið Hús Bernhörðu Alba, eftir Federico García
Lorca, í Gamla bíói. Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir þessari sannkölluðu kvennasýningu sem
er ekki aðeins femínísk í sjálfri sér heldur koma um 70 konur að uppfærslunni og þar af eru
rúmlega þrjátíu á sviðinu. Maríanna Clara Lúthersdóttir er ein þeirra en hún leikur eina fimm
dætra Bernhörðu.
Hús Bernhörðu Alba
Ekkjan Bernharða Alba fyrirskipar átta ára sorg
vegna fráfalls eiginmanns síns og föður dætranna
fimm. Hún heldur þeim ásamt aldraðri móður
og þjónustustúlkum föngnum í húsi sínu án sam-
skipta við umheiminn. Hún er heimilisharðstjóri.
En þrátt fyrir að ytri aðstæður séu óbærilegar, þá
er ekki hægt að bæla tilfinningarnar sem krauma
undir niðri. Dæturnar eru allar við það að springa
af þrá eftir frelsi, ást og betra lífi. Þegar svo tvær
þeirra verða ástfangnar af sama manninum
bresta allar hömlur og tilfinningarnar sjóða upp
úr með ófyrirséðum afleiðingum.
„Það hefur verið mjög mikið hlegið á æfingum og
ég er eiginlega bara pínu leið yfir að maður sé
ekki að fara að æfa þetta í næstu viku og vera alla
daga með þessum hópi,“ segir Maríanna Clara um
hópinn að baki Húsi Bernhörðu Alba. Mynd/Hari
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Lau 19/10 kl. 13:00 aukas Sun 27/10 kl. 13:00 aukas Fös 8/11 kl. 19:00 aukas
Sun 20/10 kl. 13:00 aukas Fim 31/10 kl. 19:00 aukas Lau 9/11 kl. 13:00
Mið 23/10 kl. 19:00 21.k Fös 1/11 kl. 19:00 aukas Sun 10/11 kl. 13:00
Fim 24/10 kl. 19:00 22.k Lau 2/11 kl. 13:00 aukas Fim 14/11 kl. 19:00
Fös 25/10 kl. 19:00 23.k Sun 3/11 kl. 13:00 aukas Fös 15/11 kl. 19:00
Lau 26/10 kl. 13:00 aukas Fim 7/11 kl. 19:00 aukas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Fös 18/10 kl. 20:00 10.k Mið 6/11 kl. 20:00 aukas Mið 27/11 kl. 20:00 aukas
Lau 19/10 kl. 20:00 11.k Fim 7/11 kl. 20:00 23.k Fim 28/11 kl. 20:00 31.k
Sun 20/10 kl. 20:00 12.k Fös 8/11 kl. 20:00 21.k Fös 29/11 kl. 20:00 32.k
Þri 22/10 kl. 20:00 aukas Lau 9/11 kl. 20:00 22.k Sun 1/12 kl. 20:00 33.k
Mið 23/10 kl. 20:00 13.k Sun 10/11 kl. 20:00 24.k Fim 5/12 kl. 20:00 34.k
Fim 24/10 kl. 20:00 14.k Mið 13/11 kl. 20:00 25.k Fös 6/12 kl. 20:00 35.k
Fös 25/10 kl. 20:00 15.k Fim 14/11 kl. 20:00 26.k Sun 8/12 kl. 20:00 36.k
Lau 26/10 kl. 20:00 16.k Fös 15/11 kl. 20:00 27.k Fim 12/12 kl. 20:00 37.k
Sun 27/10 kl. 20:00 17.k Þri 19/11 kl. 20:00 aukas Fös 13/12 kl. 20:00 38.k
Fös 1/11 kl. 20:00 18.k Mið 20/11 kl. 20:00 28.k Lau 14/12 kl. 20:00 39.k
Lau 2/11 kl. 20:00 19.k Fim 21/11 kl. 20:00 29.k Sun 15/12 kl. 20:00 40.k
Sun 3/11 kl. 20:00 20.k Fös 22/11 kl. 20:00 30.k
Epískur tónsjónleikur. ATH! Ekki unnt að hleypa inní sal eftir að sýning hefst
Rautt (Litla sviðið)
Sun 20/10 kl. 20:00 22.k Fim 24/10 kl. 20:00 24.k Sun 27/10 kl. 20:00 27.k
Mið 23/10 kl. 20:00 23.k Fös 25/10 kl. 20:00 25.k
Verðlaunaverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar. Allra síðustu sýningar!
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Fös 18/10 kl. 20:00 1.k Lau 2/11 kl. 20:00 4.k Lau 16/11 kl. 20:00 7.k
Lau 19/10 kl. 20:00 2.k Lau 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 17/11 kl. 20:00 8.k
Lau 26/10 kl. 20:00 3.k Sun 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 23/11 kl. 20:00 9.k
Meistaraverkið eftir John Steinbeck aftur á svið
Hús Bernhörðu Alba (Gamla bíó)
Fös 18/10 kl. 20:00 frums Sun 27/10 kl. 20:00 5.k Sun 10/11 kl. 20:00 8.k
Sun 20/10 kl. 20:00 3.k Sun 3/11 kl. 20:00 6.k Lau 16/11 kl. 20:00 9.k
Lau 26/10 kl. 20:00 4.k Lau 9/11 kl. 20:00 7.k Sun 17/11 kl. 20:00 10.k
Sígilt verk Lorca í kraftmikilli nálgun okkar fremstu listakvenna
Saumur (Litla sviðið)
Lau 19/10 kl. 20:00 frums Sun 10/11 kl. 20:00 3.k Fös 22/11 kl. 20:00 5.k
Lau 26/10 kl. 20:00 2.k Fim 21/11 kl. 20:00 4.k
Nærgöngult og nístandi verk eftir eitt magnaðasta samtímaleikskáld Bretlands
Haustsýning ÍD: Tímar Sentimental, again (Stóra sviðið)
Sun 20/10 kl. 20:00 3.k Sun 27/10 kl. 20:00 4.k Sun 3/11 kl. 20:00 5.k
Tímar eftir Helenu Jónsdóttur; Sentimental, again eftir Jo Strömgren
Mary Poppins – HHHHH – MLÞ, Ftíminn
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
62 menning Helgin 18.-20. október 2013