Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.10.2013, Page 22

Fréttatíminn - 25.10.2013, Page 22
22 viðtal Helgin 25.-27. október 2013 E N N E M M / S ÍA / N M 5 9 6 5 4 Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is Við aðstoðum með ánægju. Þegar fjölskyldan stækkar getur nýrri, sparneytnari og öruggari bíll gert gæfumuninn. Með faglegri ráðgjöf og góðri þjónustu hjálpum við ykkur að fjármagna það sem upp á vantar til að þið getið fengið ykkur nýjan fjölskyldubíl. Við fjármögnum nýja fjölskyldubílinn 50% *á bílalánum og bílasamningum afsláttur af lántökugjöldum* í október Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is KALT ÚTI Panelofnar í MIKLU ÚRVALI! FRÁBÆRT VERÐ! KRANAR OG HITASTILLAR FRÁ Ryco-1509 Olíufylltur 2000W rafmagnsofn m/termo stillingum og yfirhitavörn 9 þilja 7.990 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Ryco-2006T Rafmagns - þilofn Turbo með yfirhita - vari 3 stillingar 2000w 4.490 Rafmagnshita- blásari 3Kw 1 fasa 8.890 kapalkefli 15 metrar 3.990 Verðlisti á heimasíðu fuglaveiðar sínar. Rjúpuna og svona, sem er afleitt. En ég er búinn að fella myndarlegan tarf í haust eftir töluverða fyrirhöfn. Ég hef aldrei verið svona lengi að þessu og þetta var mjög erfitt veiði- tímabil.“ Ólafía: „Ég er ekki búin að skjóta neitt í haust.“ Pálmi: „En hún er skotveiði- manneskja.“ Ólafía: „Ef ég gæti nú sagt það.“ Pálmi: „Þú komst nú einu sinni með mér á svartfugl.“ Ólafía: „Já, en ég hef aldrei farið á rjúpu. Þeir eru sko báðir skot- veiðimenn, Hilmir og Pálmi, og mér finnst að það eigi að taka mig með á rjúpu. Það var ekkert tekið undir það þegar ég skaut því að hérna á æfingu.“ Pálmi: „Ja, það er eiginlega Hilmir sem verður að taka það að sér því ég kemst ekki neitt. Og þú kemst ekkert heldur. Við erum alltaf að leika.“ Ólafía: „Eru þetta ekki bara þrír dagar, eða eitthvað svoleiðis?“ Pálmi: „Jú, en við erum að leika allar helgar.“ Ólafía: „Við förum mánudag, þriðjudag og miðvikudag.“ Pálmi: „Það er ekki hægt.“ Ólafía: „Af hverju ekki?“ Pálmi: „Þetta er bara um helgar.“ Ólafía: „Sem það má skjóta?“ Pálmi: „Já. Þetta eru bara nokkr- ir dagar.“ Ólafía: „Í alvöru?!“ „Já,“ svarar Pálmi mæðulega og bendir síðan á að Hilmir þurfi bara að frumsýna og svo geti hann stokkið af stað og skilið þau eftir í Kassanum. „Það er nú búið að eyðileggja þetta fyrir manni. Ég held þetta hafi verið níu dagar í fyrra.“ Ólafía: „Ertu ekki að djóka?“ Pálmi: „Nei. Bara um helgar.“ Níðast ekki á Hannesi Og þar með eru rjúpudraumurinn úti og Ólafía Hrönn tekur upp létt- ara hjal: „Heyrðu, svo erum við bæði í Maður á mínu skapi og gerum mikla lukku.“ „Hinu umdeilda verki,“ glottir Pálmi. „Sem er ekki um Hannes Hólm- stein,“ bætir Ólafía Hrönn við með miklum áhersluþunga. „Þetta er bara vitleysa sem fór af stað. Ég segi nú bara að við mættum vera ljóta fólkið ef við værum að taka einhvern svona fyrir...“ „Og þetta er ekki um samkyn- hneigð,“ skýtur Pálmi inn í. Ólafía Hrönn segir sýninguna gera mikla lukku og stemninguna góða í salnum þótt hún hafi vakið blendin viðbrögð úti í samfélaginu. „Núna eru sko kortasýningar búnar og það er að koma sjálf- viljugt fólk í leikhúsið,“ segir hún og skellir upp úr. „Og það er svona gríðarleg stemning.“ Pálmi tekur undir þetta og Ólafía Hrönn heldur áfram og veltir fyrir sér hvers vegna „kortafólkið“ sé svona hátíðlegt. „Þú mátt ekki segja svona,“ grípur Pálmi fram í fyrir henni og þykist loks geta goldið henni rauð- an belg fyrir gráan. „Jújú. Ég tek þetta á mig,“ svarar Ólafía Hrönn að bragði. „Hið dularfulla kortafólk?“ Mér er sagt að úti í Ameríku hafi verið gert mjög mikið út á að hafa þetta sem fyndnast en það er mikill tregi í þessu leikriti.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.