Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.10.2013, Qupperneq 72

Fréttatíminn - 25.10.2013, Qupperneq 72
Ný plata frá Mammút Ný plata frá hljómsveitinni Mammút kemur út í dag, föstudag. Platan kallast Komdu til mín svarta systir og er þriðja plata sveitarinnar. Fimm ár eru síðan síðasta plata Mammút, Karkari, kom út en hún naut mikilla vinsælda. Upptökur á Komdu til mín svarta systir hafa tekið langan tíma en þær hófust sumarið 2012 undir stjórn Axels „Flex“ Árnasonar. Meðlimir Mammút tóku sér síðan góða tíma í að nostra við öll smáatriði plötunnar í stúdíóinu Orgelsmiðjunni, en þar hafði Magnús Øder yfirumsjón með upptökum ásamt því að hljóðblanda plötuna. Lögin Salt og Blóðberg hafa fengið góða spilun í útvarpi að undanförnu og gefa ágæt fyrirheit um útkomuna. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is mánudaginn 28. október, kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg G unnlaugur Scheving Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Listmunauppboð í Gallerí Fold Krakk-arnir í Mammút hafa gefið út þriðju plötu sína.  Félag litháa á Íslandi Fimm ára aFmæli Á mótum ólíkra menningarheima F imm ár eru liðin frá stofnun Félags Litháa á Íslandi. Tímamótunum verður fagnað með sérstakri sýn- ingu á kvikmyndinni Bréf til Soffíu í Háskólabíói á laugardaginn. Leikstjóri myndarinnar, Robert Mull- an, verður viðstaddur sýn- inguna sem hann byggir á ævi litháíska tónskáldsins Ciurlionis með áherslu á konuna í lífi hans og landið sem hann elskaði. „Við erum mjög ánægð með að bresk- ur leikstjóri hafi gert mynd um lithá- ískan myndlistarmann og tónskáld, sannkallað undrabarn og snilling,“ segir Inga Minelgaite Snæbjörnsson, doktorsnemi við HÍ og stjórnarmaður í félaginu. „Við erum stolt af því að geta kynnt þessa mynd fyrir Íslendingum á þessum gleðilegu tímamótum hjá fé- laginu.“ Inga segist telja margt í myndinni geta vakið áhuga Íslendinga og bendir á að þótt hún fjalli um Ciurlionis þá hverf- ist hún ekki síst um Sofija Kymantaité, ástakonu hans. Sofija var blaðamaður og virt í stjórnmálabaráttu samtíma þeirra og stóð ætíð þétt að baki lista- manninum. „Hún var mjög sterk kona.“ Inga segir um 1400 Litháa búa á Ís- landi og að um hundrað manns séu virkir í félaginu. „Á sumum atburðum náum við að safna saman allt að 400 manns.“ Inga segir að þegar Lit- háum á Íslandi fór að fjölga verulega hafi félagið verið stofnað. „Mörg okkar eru stolt af menningu okkar og þjóð og viljum halda henni á lofti auk þess sem við viljum hjálpa hvort öðru að sameinast íslensku samfé- lagi og deila reynslu okkar af nýju landi og þjóð.“ Íslendingar voru, eins og alþekkt er, fyrstir til þess að viðurkenna sjálfstæði Litháen og því vinarbragði verður seint gleymt. „Litháar eru yfir höfuð mjög jákvæðir í garð Íslendinga og Íslands og Jón Baldvin Hannibals- son er hetja í Litháen og öllum Eystra- saltslöndunum. Allar stærri borgir í Litháen hafa nefnt götur til heiðurs Ís- landi, til dæmis Reykjavíkurgötu og Ís- landsbraut.“ Hvað hana sjálfa snertir segist Inga ætíð munu elska föðurland sitt. „Ég fæddist í Litháen og mun ætíð elska landið en ég varð einnig ástfangin af Íslandi. Ég er sannur aðdáandi Ís- lands og þess vegna er ég mjög ánægð með að sjá aukna samvinnu landanna í menningu, viðskiptum, fræðum og öðrum greinum.“ Sýningin á Bréfi til Soffíu hefst klukkan 20 á laugardagskvöld í sal 1 í Háskólabíói. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Ciurlionis Ciurlionis fæddist árið 1875 og var af litháískum bændum kominn. Þrátt fyrir fátæklegt umhverfi bernskunnar duld- ist engum að drengurinn var gæddur miklum hæfileikum og hann væri einhvers konar undrabarn þegar kom að því að mála og semja tónlist. Dularfullur geðsjúkdomur herjaði á hann frá unga aldri og þar til yfir lauk. Á stuttri ævi samdi Ciurlionis yfir 300 tónverk og málaði annað eins af myndum. Félag Litháa á Íslandi fagnar um þessar mundir fimm ára afmæli og efnir af því tilefni til sýningar á kvikmyndinni Bréf til Soffíu í Háskólabíói á laugardaginn. Inga Minelgaite Snæbjörns- son segir þau kynna myndina með stolti á afmælinu og að hún telji Íslendinga geta fundið margt áhuga- vert í myndinni. Inga Minelgaité Kolféll fyrir Íslandi. Ástarsamband Ciurlionis og Sofiju er í brennidepli kvikmyndarinnar Bréf til Soffíu sem Félag Litháa á Íslandi sýnir á laugardag. Breskar sveitir á Gamla Gauknum Tvær sveitir frá Englandi verða í heimsókn hér á landi um helgina og leika á tónleikum á Gamla Gauknum á laugar- dagskvöld. Þetta eru hljómsveitirnar The Activators og Kill Pretty. Auk þeirra koma fram íslensku sveitirnar Caterpillarmen, Fivebellies og Dýrðin. The Activators er 10 manna sveit sem kemur frá Lincoln og hét áður The Validators. Sveitin lék við góðar undir- tektir á Faktory fyrir tveimur árum. Tónlist The Activators er blanda fjölmargra stílbrigða en ska er sennilegast þar mest áberandi. Kill Pretty er frá Salford í Manchester. Tónlist sveitarinnar er hrátt rokk og svífur andi pönksins yfir. „Það er óhætt að mæla með Kill Pretty, og segja má að hún sé sérlega vænlegur kostur fyrir aðdáendur sveita á borð við The Fall og Captain Beefheart,“ segir popp- fræðingurinn Dr. Gunni um sveitina. Tónleikarnir hefjast upp úr klukkan 22 og miðaverð er 1.500 krónur. Breska hljómsveitin Kill Pretty leikur á Gamla Gauknum á laugardags- kvöld. 72 menning Helgin 25.-27. október 2013 Mary Poppins (Stóra sviðið) Fös 25/10 kl. 19:00 23.k Fös 8/11 kl. 19:00 aukas Lau 23/11 kl. 13:00 Lau 26/10 kl. 13:00 aukas Lau 9/11 kl. 13:00 Sun 24/11 kl. 13:00 Sun 27/10 kl. 13:00 aukas Sun 10/11 kl. 13:00 Fim 28/11 kl. 19:00 Fim 31/10 kl. 19:00 aukas Fim 14/11 kl. 19:00 aukas Fös 29/11 kl. 19:00 Fös 1/11 kl. 19:00 aukas Fös 15/11 kl. 19:00 aukas Lau 30/11 kl. 13:00 Lau 2/11 kl. 13:00 aukas Sun 17/11 kl. 13:00 Sun 1/12 kl. 13:00 Sun 3/11 kl. 13:00 aukas Fim 21/11 kl. 19:00 Fim 7/11 kl. 19:00 aukas Fös 22/11 kl. 19:00 Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala. Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið) Fös 25/10 kl. 20:00 15.k Fim 14/11 kl. 20:00 26.k Sun 8/12 kl. 20:00 36.k Lau 26/10 kl. 20:00 16.k Fös 15/11 kl. 20:00 27.k Fim 12/12 kl. 20:00 37.k Sun 27/10 kl. 20:00 17.k Þri 19/11 kl. 20:00 aukas Fös 13/12 kl. 20:00 38.k Fös 1/11 kl. 20:00 18.k Mið 20/11 kl. 20:00 28.k Lau 14/12 kl. 20:00 39.k Lau 2/11 kl. 20:00 19.k Fim 21/11 kl. 20:00 29.k Sun 15/12 kl. 20:00 40.k Sun 3/11 kl. 20:00 20.k Fös 22/11 kl. 20:00 30.k Þri 17/12 kl. 20:00 Mið 6/11 kl. 20:00 aukas Mið 27/11 kl. 20:00 aukas Mið 18/12 kl. 20:00 Fim 7/11 kl. 20:00 23.k Fim 28/11 kl. 20:00 31.k Fim 19/12 kl. 20:00 Fös 8/11 kl. 20:00 21.k Fös 29/11 kl. 20:00 32.k Fös 20/12 kl. 20:00 Lau 9/11 kl. 20:00 22.k Sun 1/12 kl. 20:00 33.k Fim 26/12 kl. 20:00 Sun 10/11 kl. 20:00 24.k Fim 5/12 kl. 20:00 34.k Fös 27/12 kl. 20:00 Mið 13/11 kl. 20:00 25.k Fös 6/12 kl. 20:00 35.k Lau 28/12 kl. 20:00 Epískur tónsjónleikur. ATH! Ekki unnt að hleypa inní sal eftir að sýning hefst Rautt (Litla sviðið) Fös 25/10 kl. 20:00 25.k Sun 27/10 kl. 20:00 27.k Verðlaunaverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar. Allra síðustu sýningar! Mýs og menn (Stóra sviðið) Lau 26/10 kl. 20:00 3.k Sun 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 23/11 kl. 20:00 9.k Lau 2/11 kl. 20:00 4.k Lau 16/11 kl. 20:00 7.k Sun 24/11 kl. 20:00 10.k Lau 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 17/11 kl. 20:00 8.k Lau 30/11 kl. 20:00 Meistaraverkið eftir John Steinbeck aftur á svið í takmarkaðan tíma Hús Bernhörðu Alba (Gamla bíó) Lau 26/10 kl. 20:00 4.k Lau 9/11 kl. 20:00 7.k Sun 17/11 kl. 20:00 10.k Sun 27/10 kl. 20:00 5.k Sun 10/11 kl. 20:00 8.k Lau 23/11 kl. 20:00 Sun 3/11 kl. 20:00 6.k Lau 16/11 kl. 20:00 9.k Sun 24/11 kl. 20:00 Sígilt verk Lorca í kraftmikilli nálgun okkar fremstu listakvenna Saumur (Litla sviðið) Lau 26/10 kl. 20:00 2.k Fim 21/11 kl. 20:00 4.k Sun 10/11 kl. 20:00 3.k Fös 22/11 kl. 20:00 5.k Nærgöngult og nístandi verk eftir eitt magnaðasta samtímaleikskáld Bretlands Haustsýning ÍD: Tímar Sentimental, again (Stóra sviðið) Sun 27/10 kl. 20:00 4.k Sun 3/11 kl. 20:00 5.k Tímar eftir Helenu Jónsdóttur; Sentimental, again eftir Jo Strömgren Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Mýs og Menn – HHHHH – „Frábærlega vel heppnuð“ – SGV, Mbl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.