Fréttatíminn - 25.10.2013, Síða 44
Jólaveisla Hádegi Bistro 2013
Verð: 5.500 kr
m/jólablandi: 5.900 kr
Forréttir
Hreindýraborgari með gráðostadressingu, eplum og klettasalati
Danskt hænsnasalat með grilluðum aspas og hráskinku
Gin og tonic grafinn lax með kryddjurtamajónesi og rifinni sellerírót
Hangikjötssalat, piparrót og dilli
Aðalréttur
Val um eftirfarandi
Grilluð kalkúnabringa með spínat-kartöflumús, eplasalati, nípu og
villisveppasósu
Saltfiskhnakki á papriku- og lauksultu með steiktum kartöflum,
tómatmauki og vorlauk í tempura
Eftirréttur
Hvít súkkulaðimús og möndlukaka með appelsínusorbet
KYNNING
jólahlaðborð Helgin 25.-27. október 201344
Þ
að verður sannköll-
uð jólastemning á
veitingastaðnum
Nauthól í nóvem-
ber og desember.
Þá fer staðurinn í hlýlegan
jólabúning að utan sem innan
og umgjörðin verður engu
lík. Jólaveisla Nauthóls verður
með svipuðu sniði og undan-
farin ár en ýmsar nýjungar
verða einnig í boði. Þar ber
hæst jólahlaðborð í hádeginu
sem hefst fimmtudaginn 28.
nóvember en þar verður boðið
upp á glæsilegan þriggja rétta
jólaseðil.
Jólastemning í hádeginu
Guðríður María, framkvæmda-
stjóri Nauthóls, segist finna
fyrir mikilli eftirvæntingu hjá
fólki og hún er mjög spennt
fyrir því að geta bæði boðið
upp á flotta jólaveislu í hádeg-
inu og á kvöldin. „Í hádeginu
verðum við með þriggja rétta
jólaseðil, forréttardisk, val um
tvo aðalrétti og einn eftirrétt.
Við ætlum að hafa þetta létt og
skemmtilegt og verðum með
lifandi tónlist en Eyþór Ingi
ætlar að sjá til þess að allir
skemmti sér vel,“ segir Guð-
ríður. Hún segir það tilvalið
fyrir deildir innan fyrirtækja,
vinahópa eða fjölskyldur að
koma saman og eiga góða
stund í Nauthólsvík.
Á kvöldin er boðið til veislu
Jólaveisla Nauthóls verður með
svipuðu sniði og undanfarin ár.
Guðríður segir veisluna þó ekki
hið hefðbundna jólahlaðborð
því hvert borð fær sitt eigið
hlaðborð og því geta gestir not-
ið þess að sitja og láta stjana við
sig. „Undanfarin ár höfum við
aðallega einbeitt okkur að hóp-
um og ætlum að halda okkur
við það. Jólaveislan hefur verið
mjög vinsæl hjá fyrirtækjum og
það hefur alltaf verið uppselt
hjá okkur og færri komist að en
vilja. Sú breyting verður þó á
núna að síðustu helgina fyrir jól
munum við taka við bókunum
fyrir borð sem rúma fleiri en
fjóra,“ segir Guðríður.
Jólaveisla í Nauthólsvík