Fréttatíminn - 25.10.2013, Blaðsíða 64
64 skák og bridge Helgin 25.-27. október 2013
Skák GlæSileG verðlaun á einu SkemmtileGaSta móti árSinS
Æskan og ellin mætast!
n ú er komið að einhverju skemmti-legasta skákmóti ársins: „Æskan og ellin“ er fyrir börn á grunnskóla-
aldri og kempur sem orðnar eru sextugar
eða eldri. Mótið verður haldið í skákhöll
Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12, á
morgun, laugardag, klukkan 13. Glæsileg
verðlaun eru á mótinu, en auk þess ríkir
einstæður andi þegar kynslóðabilið er
brúað með þessum hætti. Á síðasta ári var
80 ára aldursmunur á milli yngsta og elsta
keppanda! Þá sigraði ungstirnið Oliver
Aron Jóhannesson, en meðal keppenda
voru margir snjöllustu meistarar fyrri tíðar.
Mótið er nú haldið í 10. skipti, en upp-
hafsmaður þess var séra Gunnþór Ingason
sem í áratugi var sóknarprestur í Hafnar-
firði og eldheitur skákáhugamaður. Það er
nú haldið í Reykjavík í fyrsta skipti. Riddar-
inn, skákfélag eldri borgara í Hafnarfirði,
Taflfélag Reykjavíkur og Olís hafa gert
þriggja ára samstarfssamning um fram-
kvæmd mótsins, til að auka enn veg þess
og festa það í sessi.
Verðlaunasjóðurinn er veglegur. Veitt eru
100 þúsund króna peningaverðlaun, og auk
þess sérstök verðlaun í þremur flokkum
ungmenna og öldunga. Í flokki 9 ára og
yngri, 10-12 ára, og 13-15 ára eru gjafabréf
með Icelandair í verðlaun, en í öldunga-
flokkunum keppa menn um 10.000 króna
úttektarkort hjá Olís. Þá eru bókaverðlaun
í öllum flokkum, og síðast en ekki síst er
happdrætti í mótslok, svo allir eiga kost á
vinningi. Sportvörubúðin Jói útherji gefur
alla verðlaunagripi á mótið. Tefldar verða
9 umferðir á mótinu, með sjö mínútna um-
hugsunartíma.
Það er rík ástæða til að hrósa öllum
aðstandendum þessa glæsilega móts til
hamingju, og séra Gunnþór má vera stoltur
yfir að hugmynd sem kviknaði fyrir 10
árum skuli hafa fætt af sér svo blómlegt og
skemmtilegt mót. Núverandi mótsnefnd
skipa Björn Jónsson, formaður TR (sem
stendur í sífelldum stórræðum), öðlingur-
inn óþreytandi Einar S. Einarsson, formað-
ur Riddarans og Páll Jónsson skákstjóri.
Keppendur ættu að skrá sig sem fyrst á
skak.is og mæta tímanlega á mótsstað, því
hámarksfjöldi keppenda miðast við 100.
Góður sigur Einars Hjalta á Gagnaveit-
umótinu
Einar Hjalti Jensson vann frækinn sigur
á Gagnaveitumótinu – Haustmóti TR sem
lauk í vikunni. Einar Hjalti, sem er FIDE-
meistari að tign og með 2305 stig, skákaði
stórmeistaranum Stefáni Kristjánssyni og
alþjóðameistaranum Jóni Viktori Gunnars-
syni, og hlaut alls 7,5 vinning af 9 mögu-
legum.
Einar Hjalti verður að teljast með okkar
efnilegustu mönnum, þótt hann sé ekkert
unglamb á mælikvarða skákarinnar – fædd-
ur á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna árið
1980, en hann hefur með mikilli ástundun
síðustu misseri stöðugt verið að bæta sig.
Hann er kominn með einn áfanga að titli
alþjóðameistara og í fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga fyrir tveimur vikum var
árangur hans samboðinn stórmeistara!
Jón Trausti Harðarson (1930 stig) sigraði
með yfirburðum í B-flokki Gagnaveitumóts-
ins, landsliðskonan Elsa María Kristínar-
dóttir (1787) sigraði í C-flokki, og hin unga
og bráðefnilega Sóley Lind Pálsdóttir var
sigurvegari opna flokksins.
Í slandsmótið í einmenningi 2013 fór fram um síðustu helgi, dagana 18. og 19. október. Naumur sigurvegari eftir
mikla baráttu var Kjartan Jóhannsson. Litlu
munaði á skori hans og Hermanns Friðriks-
sonar, sem endaði í öðru sæti, með aðeins
tæplega 0,1% lægra skor. Lokastaða 5 efstu
spilara varð þannig:
1 . Kjartan Jóhannsson .................................. 57,70%
2 . Hermann Friðriksson ............................... 57,63%
3 . Sigrún Þorvarðardóttir ............................ 56,90%
4 . Sigurjón Ingibjörnsson ............................ 55,80%
5 . Hrólfur Hjaltason ...................................... 54,10%
Eins og sést munaði litlu á tveimur efstu
sætunum. Spil í þriðju og síðustu lotu réðu
miklu um úrslitin. Kjartan sat í norður þá og
Hermann Friðriksson í austur. Vestur var
með mikla skiptingu á hættu gegn utan og
lét verða af því að láta melda sig út í spilinu.
Vestur var gjafari og AV á hættu:
♠ D10832
♥ Á5
♦ ÁDG2
♣ D7
♠ ÁG974
♥ G42
♦ K105
♣ 52
♠ K6
♥ KD10876
♦ -
♣ K10986
♠ 5
♥ 93
♦ 987643
♣ ÁG43
N
S
V A
Vestur opnaði á einu hjarta, Kjartan kom
inn á einum spaða, austur pass og suður lét
vaða í 4 spaða. Vestur lét ekki verða af því að
segja aftur á óhagstæðum hættum og sagnir
enduðu í 4 spöðum sem voru passaðir út.
Eins og sést, þá standa 5 lauf og hjörtu á
AV hendurnar og 4 spaðar niður með bestu
vörn. Vörnin missteig sig hins vegar og
leyfði Kjartani að henda tapslag í laufi í tíg-
ul. Kjartan fékk skorið 20,5-5,5 fyrir 4 spaða
staðna, en hefði fengið 8,7-17,3 ef 4 spaðar
fara einn niður. Það hefði nægt Hermanni til
sigurs í þessu móti ef svo hefði farið.
Tveir nýir menn í stjórn BSÍ
Hefð er fyrir því að Íslandsmót í einmenn-
ingi og ársþing Bridgesambands Íslands er
haldið sömu helgina. Ársþingið var hald-
ið sunnudaginn 20. október. Á ársþinginu
báðust tveir stjórnarmenn lausnar, Jörundur
Þórðarson og Örvar Snær Óskarsson. Í stað
þeirra voru kosnir Guðmundur Snorrason
og Ingimundur Jónsson. Forseti BSÍ, Jafet
Ólafsson, var endurkjörinn og starfar nú á
sínu fjórða ári. Á þinginu var Erlu Sigurjóns-
dóttur veitt heiðursmerki BSÍ.
Lögfræðistofa Íslands áfram í forystu
hjá BR
Annað kvöldið í Grand hótel hraðsveita-
keppni Bridgefélags Reykjavíkur fór fram
15. október. Sveit Garðs apóteks náði besta
skorinu 580 impum og á hæla hennar kom
sveit Sölukerfisins með 579 impa. Sveit
Lögfræðistofunnar skoraði 552 impa, Grant
Thornton 518 og Sölufélags garðyrkjumanna
515 impa. Staða efstu 5 sveita að loknum 2
kvöldum af 4 er þannig:
1. Lögfræðistofa Íslands ............................... 1163
2. Garðs apótek .............................................. 1121
3. Sölukerfið ................................................... 1094
4. VÍS ............................................................... 1084
5. Grant Thornton .......................................... 1050
BridGe kjartan jóhannSSon varð ÍSlandSmeiStari Í einmenninGi 2013
Naumur sigur í einmenningi
Þau sem enduðu í þremur efstu sætunum voru
Hermann Friðriksson sem endaði í öðru sæti,
Sigrún Þorvarðardóttir sem endaði í þriðja sæti
og Kjartan Jóhannsson sem vann til titilsins: Ís-
landsmeistari í einmenningi 2013.
Einar Hjalti Jensson,
sigurvegari á Gagna-
veitumótinu og er í
mikilli framför.
Oliver Aron Jóhannesson, einn
efnilegasti skákmaður Íslands.
Sigraði á „Æskan og ellin“ í fyrra.
F
R
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Vantar 2ja til 4ra herb. í 101 til 108
Ég sýni eignina fyrir þig
Ég aðstoða þig við að finna eign
Enginn kostnaður
nema eignin seljist
Eggert Ólafsson löggiltur fasteignasali 893 1819
Pantaðu frítt
söluverðmat
893 1819
Bókið skoðun í síma: 893 1819
Lindargata 57 - Vitatorg, íbúð 501, 101 Rvík
*FYRIR 67 ÁRA OG ELDRI LAUS STRAX*
Falleg 2ja herb., 51,2 fm. íbúð á 5. hæð,
fyrir 67 ára og eldri. Laus strax. Svalir snúa
út í skjólsælan garð. Öryggisverðir á vakt
allan sólarhringinn. Öryggishnappur í íbúð.
Innangengt er í þjónustusel.
Verð kr. 22.900.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., sími 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Opið hús laugardag 26. október kl. 13:00-13:30
Bólstaðarhlíð 41, íbúð 201, 105 Rvík
*FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI LAUS STRAX*
2ja herb., 69,9 fm. íbúð á 2. hæð fyrir 60
ára og eldri. Laus strax. Húsvörður og
lyfta er í húsinu. Innangengt er frá jarð
hæð í þjónustusel. Fallegur sameiginlegur
garður.
Verð kr. 22.300.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., sími 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
SELD — SELD — SELD — SELD
Háaleitisbraut 117, 1. hæð, 108 Rvík
*FALLEG ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR
ÚTSÝNI* Falleg og mikið endurnýjuð 2ja
herb., 82,1 fm. íbúð á 1. hæð, ásamt bíl
skúr. Endurnýjað var baðherbergi, eld
húsinnrétting, fataskápar o.fl. Frábær
staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.
Verð kr. 22.500.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., sími 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Bókið skoðun í síma: 893 1819
Yrsufell 28, raðhús, 111 Reykjavík
*GLÆSILEGT OG MIKIÐ ENDURNÝJAÐ
RAÐHÚS* Glæsilegt og mikið endurnýjað
5 herb. raðhús á einni hæð, ásamt bíl
skúr. Lóð nýlega tekin í gegn og afgirt. Hiti
undir hellum. Stór nýlegur sólpallur. Nýlegt
garðhús og nuddpottur. Suðurgarður.
Verð kr. 35.700.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., sími 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Bókið skoðun í síma: 893 1819
Naustahlein 26, endaraðhús, 210 G.bær
*FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI ÞJÓNUSTA Í
HRAFNISTU* Fallegt 3ja herb., 89,2 fm.
endaraðhús, fyrir 60 ára og eldri. Hátt er til
lofts í húsinu. Fallegur og ræktaður garður.
Hiti í stéttum og bílaplani. Aðgangur er að
þjónustu á vegum Hrafnistu í göngufæri.
Verð kr. 31.500.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., sími 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Opið
hús
Fasteignasalan Bær • Ögurhvarfi 6 • 203 Kópavogur • Sími 893 1819 • www.fasteignasalan.is
Fagleg og persónuleg þjónusta
SEL
D