Fréttatíminn - 25.10.2013, Blaðsíða 31
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-2
5
2
9
ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ
AF ÞVÍ AÐ LÍFIÐ ER ÓTRÚLEGT
Tjón gera sjaldnast boð á undan sér. Þess vegna erum við á vakt allan
sólarhringinn og tryggjum að þú fáir bestu hugsanlegu tjónaþjónustu
hvenær sem þú þarft á henni að halda.
24 tíma tjónaþjónusta – sími 800 7112
24
TÍMA
TJÓNA
ÞJÓNUS
TA
Markmið Sjóvár er að veita
viðskiptavinum ávallt bestu
hugsanlegu tjónaþjónustu.
Endurgjöf frá viðskiptavinum
er okkur mikilvæg og góður
leiðarvísir um hvernig við
getum bætt okkur og þróað
starfsemi okkar enn frekar.
Það gleður okkur mjög þegar
við fáum staðfestingu frá
ánægðum viðskiptavinum á því
sem vel er gert. Hér á eftir eru
nokkur bréf sem okkur hjá
Sjóvá hafa borist frá ánægðum
viðskiptavinum sem hafa þurft
að nýta sér tjónaþjónustu okkar.
„Ég vil þakka starfsfólki Sjóvár fyrir
frábærar móttökur og úrlausn mála
þegar ég varð fyrir því að gjör-
eyðileggja bílinn minn í hálkuslysi
31 jan. s.l. Það er alveg ljóst að
Sjóvá er með mjög hæft og vel þjálfað
starfsfólk, sem er reiðubúið að
aðstoða viðskiptavininn af kostgæfni
og alúð. Takk fyrir, Sjóvá, og megi
heill og hamingja fylgja starfsfólki
þínu um aldur og ævi.“
Valgeir Hauksson
„Við vorum í Ásbyrgi með hjólhýsið
okkar og urðum fyrir því óláni að
keyrt var á okkur með þeim
afleiðingum að bæði bíllinn okkar og
hjólhýsið voru ónothæf. Gott fólk hjá
Sjóvá aðstoðaði okkur við að komast
á áfangastað og afgreiddi okkar mál
hratt og örugglega. Með innilegu
þakklæti fyrir frábæra aðstoð og
hlýju í okkar garð.“
Gunnar Sigurjónsson
og Ása Bryngeirsdóttir
„Ég hef sem betur fer sjaldan þurft
að leita til Sjóvár vegna tjóna. Mér
er þó minnisstætt þegar upp kom leki
í húsinu sem ég bý í hversu góðan
stuðning og faglega hjálp ég fékk hjá
tjónamatsmanni Sjóvár.“
Eggert Gíslason
„Frábært, takk kærlega fyrir! Þetta
var orðið rosalega ruglingslegt.
Þakka fyrir þjónustuna ykkar, hún
er alltaf jafn góð! Verð aldrei fyrir
vonbrigðum.“
Hjördís Vigfúsdóttir
„Mig langar til að byrja á því að
þakka ykkur fyrir frábæra tjóna-
þjónustu vegna tjóns sem ég lenti
í núna í júlí. Einnig langar mér að
þakka fyrir smiðina sem þið senduð
mér, aldrei á ævi minni hef ég séð
jafn snyrtileg vinnubrögð, og ég tala
nú ekki um hvað þeir voru
skipulagðir í öllu sem þeir gerðu á
mínu heimili. Og ekki vantaði
kurteisina hjá þessum mönnum.
Takk fyrir okkur.“
Rannveig Oddsdóttir
„Mig langaði að koma á framfæri
við ykkur þakklæti vegna afgreiðslu
vatnstjóns sem ég lenti í. Aðkoma
ykkar fólks var öll til fyrirmyndar.
Ég hef alla tíð verið með mínar
tryggingar hjá Sjóvá og í þau fáu
skipti sem ég hef þurft að leita til
ykkar hefur þjónustan verið frábær.“
Jóhann Petersen
„Hjá Sjóvá erum við með viðskipta-
stjóra með þekkingu á þörfum
fyrirtækisins og iðnaðarins sem
við getum leitað til með öll okkar
mál með skömmum fyrirvara.“
Guðný Guðjónsdóttir
framkvæmdastjóri fjármála Saga Film
Þú tryggir
ekki eftir á
Regluleg yfirferð
tryggingaverndar
borgar sig
Þörfin fyrir tryggingavernd
tekur breytingum í takt við
breytingar á húsnæði,
fjölskyldustærð, tómstundum
og áhugamálum. Þess vegna
mælum við með því að
viðskiptavinir fari reglulega
yfir tryggingavernd sína með
sérfræðingum okkar. Með slíkri
yfirferð eru meiri líkur á að þú
sért með fullnægjandi vernd
og betur í stakk búin(n) að
mæta áföllum sem orðið geta
í lífinu. Það eina sem þú þarft
að gera er að koma við í næsta
útibúi okkar, panta ráðgjöf á
sjova.is eða senda okkur
tölvupóst á netfangið
sjova@sjova.is.
24 tíma tjónaþjónusta – ef mikið liggur við
FRÉTTATÍMINNAuglýsing
Vegaaðstoð
Allir geta lent í vandræðum með
bílinn. Þá er gott að geta hringt í
Vegaaðstoð Sjóvár í síma 440 2222.
Vegaaðstoð Sjóvár aðstoðar
viðskiptavini í Stofni ef bíllinn
verður rafmagnslaus eða
bensínlaus og aðstoðar við
að skipta um sprungið dekk.
Ef þú lendir í árekstri á
höfuðborgarsvæðinu getur þú
einnig hringt í Vegaaðstoðina
og færð þá aðstoð frá fagaðilum*
við að fylla út tjónaskýrslu.
Kostir þess er nákvæm skoðun
aðstæðna og myndataka sem
notuð er sem gögn við uppgjör
tjóna. Tjónstilkynningin er send
rafrænt beint til tryggingafélaga til
úrlausnar, sem sparar þér sporin.
*Aðstoð & Öryggi ehf. er sjálfstætt og
hlutlaust þjónustufyrirtæki er annast
vettvangsrannsóknir umferðaróhappa.
Þjónustan tryggir réttláta og fljótvirka
afgreiðslu tjóna fyrir tryggingarfélög
og viðskiptamenn þeirra.
Rúðuviðgerðir
Einföld leið til
sparnaðar
Frá árinu 2010 hefur Sjóvá dreift
framrúðuplástrum til viðskipta-
vina sinna og hefur árangurinn
verið góður. Með framrúðu-
plástri er hægt að hefta
útbreiðslu sprungu í framrúðu
þar til hægt er að komast á
verkstæði. Í mörgum tilfellum er
hægt að lagfæra rúðuna og spara
þannig kostnað við rúðuskipti.
Þúsundir viðskiptavina hafa
nýtt sér þessa þjónustu og
meðalsparnaður viðskiptavinar
nemur um 10.000 kr., sem hann
hefði annars þurft að greiða í
eigin áhættu ef skipta hefði
þurft um rúðuna. Sjóvá hvetur
viðskiptavini sína til að koma
við í næsta útibúi og næla sér í
framrúðuplástur sem gott er að
hafa til taks í hanskahólfinu í
bílnum. Ef skemmd verður á
bílrúðu skal setja pláturinn stax
á skemmdina og fara með bílinn
sem fyrst á rúðuverkstæði sem
er viðurkennt af Sjóvá. Ef hægt
er að gera við rúðuna greiðir
Sjóvá viðgerðina að fullu,
viðskiptavinur greiðir ekki neitt.
Sjóvá vottar
sín verkstæði
– og auðveldar
viðskiptavinum
sínum valið
Sjóvá hefur samið við og gert
úttektir á ákveðnum verkstæðum
til að meta hvernig þau uppfylla
kröfur Sjóvár um tjónamat og
viðgerðir. Verkstæði sem uppfylla
kröfur okkar falla í einnar, þriggja
eða fimm stjörnu flokk.
- Fimm stjörnu verkstæðin veita
faglega og góða þjónustu og hafa
innleitt vottað gæðakerfi.
- Þriggja stjörnu verkstæðin
veita góða þjónustu en eru ekki
með vottað gæðakerfi.
- Einnar stjörnu verkstæðin eru
með samning við Sjóvá, eru með
fagmenntaðan starfsmann og
starfsleyfi.
Stjörnurnar eru til marks um
gæði, bíllinn fær viðgerð þar sem
fagmennska er höfð að leiðarljósi.
Þannig auðveldar stjörnugjöf
Sjóvár þér að velja hvert á að
fara með bíl í viðgerð. Þú finnur
yfirlit yfir viðurkennd verkstæði
á sjova.is.
Vetrardekkjatilboð – góð dekk auka umferðaröryggi
Tjón gera sjaldnast boð á undan sér og geta orðið á öllum
tímum sólarhringsins. Oft skiptir sköpum að brugðist sé
hratt við til þess að lágmarka tjón. Við erum á vakt allan
sólarhringinn og tryggjum að þú fáir bestu hugsanlegu
tjónaþjónustu hvenær sem þú þarft á henni að halda. Við
leggjum áherslu á að viðskiptavinir okkar sem lenda í
tjóni verði fyrir sem minnstum óþægindum og að
afgreiðsla mála gangi hratt fyrir sig. Þegar mikið liggur
við, hafðu þá samband við okkur í síma 800 7112 og við
hjálpum þér að leysa málin.
Frá ánægðum
viðskiptavinum
Sjóvá hefur síðustu tvö ár gert
úttekt á ástandi hjólbarða á
ökutækjum sem lent hafa í tjóni.
Niðurstöður benda til sterkra
tengsla á milli ástands hjólbarða
og fjölda tjóna. Of margir bílar
eru á slitnum dekkjum sem eru
í raun óhæf til vetraraksturs.
Þess vegna býður Sjóvá
viðskiptavinum í Stofni tilboð
á vetrardekkjum í samstarfi við
dekkjaverkstæði víða um land.
Það eina sem þú þarft að gera er
að hafa samband við einhvern af
afgreiðslustöðum samstarfsaðila
okkar og gefa upp kennitöluna
þína. Þú finnur allar upplýsingar
um dekkjatilboðið á sjova.is.