Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.10.2013, Qupperneq 43

Fréttatíminn - 25.10.2013, Qupperneq 43
Icelandair hótel Akureyri Jólaboð aurora Aðventan á Icelandair hótel Akur- eyri verður hátíðleg og skemmti- leg að vanda. Veitingastaður hót- elsins aurora, býður í sannkallað jólaboð með glæsilegum jólaveit- ingum sem meistarakokkar okkar reiða fram á meðan ljúfir lifandi tónar hljóma undir borðhaldi. „Hér er jafnan mjög hátíðlegt og huggulegt andrúmsloft. Eftir mat njóta gestir þess svo að sitja úti á palli undir skinnábreiðum á fallegum kvöldum við arineldinn, með heitan drykk og norðurljós. Við bjóðum einnig sérstakt tilboð á gistingu með jólahlaðborðinu og er upplagt fyrir fólkið að sunnan að kíkja og fá jólastemningu okkar Norðanmanna beint í æð,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir hótel- stjóri. Aurora jólaboð verður í boði um helgar frá 22. nóvember til 14. desember, frá kl. 18:00. Upplýsingar í síma 518-1000, á www.icelandairhotels.is/akureyri og á akureyri@icehotels.is Icelandair hótel Hérað Hreindýrið vinsælt á jólum „Á Héraði verður jólahlaðborð alla föstudaga og laugardaga frá 15. nóvember til 14. desember. Þetta er klassískt íslenskt jólahlaðborð og auðvitað verður hreindýrið á borðum hér að austfirskum sið,“ segir Auður Anna Ingólfsdóttir hótelstjóri. Við viljum einnig endilega fá fólk til að gera meira úr aðventunni og heimsækja okkur yfir þennan tíma og erum því með sérstakt tilboð á gistingu og hlaðborði saman. Upplýsingar í síma 471-1500, á www.icelandairhotels.is/herad og á herad@icehotels.is Icelandair hótel Flúðir Góður jólamatur í fallegu umhverfi „Jólahlaðborðið okkar á Flúðum er orðið þekkt fyrir góða rétti sem að mestu leyti eru lagaðir á staðnum úr hráefni hreppamanna. Við gerum tilboð í hópa með gistingu og morgunverðarhlaðborði en við erum stutt frá bænum og gaman að koma hingað á þetta fallega svæði yfir vetrartímann, borða góðan mat á fínu hóteli og upplifa aðventuna og íslenska náttúru um leið,“ segir Margrét Runólfsdóttir hótelstjóri. Dagsetningar: 30. nóv., 6., 7., 13., og 14. desember. Vilhjálmur Guðjónsson og Hilmar Sverrisson spila ljúfa tóna meðan á borðhaldi stendur. Verð: Fullorðnir kr. 8.900.- Börn 6 ára til 12 ára kr. 4.500.- Frítt fyrir yngstu börnin Borðapantanir eru í síma 486-6630 og á fludir@icehotels.is. Icelandair hótel Hamar Jólastemning á Hamri „Við bjóðum glæsilegt jólahlaðborð laugardagana 30. nóvember og 7. desember þar sem borðin svigna undan kræsingunum. Við erum að- eins í rúmrar klukkustundar fjar- lægð frá borginni og gaman fyrir fólk að fara aðeins út úr bænum og gera sér glaðan dag eða jafnvel helgi, en við erum með flott tilboð á gistingu og jólahlaðborði saman. Heitu pottarnir í garðinum og norðurljósin eru svo á sínum stað í sveitakyrrðinni,“ segir Sigurður Ólafsson, hótelstjóri á Hamri. Frekari upplýsingar í síma 433 6600, á www.icelandairhotels.is/hamar og hamar@icehotels.is. jólahlaðborðHelgin 25.-27. október 2013 43 Jólin byrja með jólahlaðborðum á Icelandair hótelunum Icelandair hótel Klaustur Fjögurra rétta jólamatseðill „Við bjóðum upp á glæsilegan fjögurra rétta jólamatseðil á föstu- dags-, og laugardagskvöldum frá 29. nóvember til 14. desember á sérlega góðu verði. Þá viljum við endilega að fólk geri sér dagamun og komi í kyrrðarríkið okkar hingað að Klaustri og njóti tímans á flottu hóteli í dásamlegu um- hverfi, en við bjóðum flott tilboð á gistingu og jólamatseðli og göngu- leiðabæklingur um nágrenni Klausturs fylgir með,“ segir Sveinn Hreiðar Jensson. Icelandair hótel Klaustur gerir einnig hópatilboð og sérkjör á gistingu á ofangreindar helgar. Upplýsingar í síma 487 4900, á www.icelandairhotels.is/klaustur og á klaustur @icehotels.is. Icelandair hótel í Keflavík Töfrandi réttir og tónlist „Í ár verður hið vinsæla jólahlað- borð á VOCAL Restaurant með ítölsku ívafi enda fara íslenskur jólamatur og ítalskt ljúfmeti ein- staklega vel saman. Tónlistartríóið Delizie Italiane skapar rétta and- rúmsloftið og gleður gesti okkar með hugljúfri ítalskri og íslenskri jólatónlist 29., 30. nóvember og 6. og 7. desember. Svo skemmta Tríó Björns Thoroddsen og Jóhanna Guðrún 13. og 14. desember, svo hér verður mikil jólagleði og gam- an. Icelandair hótel í Keflavík er með tilboð á gistingu og jólahlað- borði á þeim dögum sem hlað- borðið er í boði á mjög góðu verði,“ segir Bergþóra Sigurjónsdóttir hótelstjóri. Frekari upplýsingar í síma 421 5222, á www.icelandairhotels.is/keflavik og á keflavik@icehotels.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.