Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 66
66 matur & vín Helgin 22.-24. nóvember 2013
Jólamatseðill
Tapas barsins
Frá 18. nóvember
5.990 kr.
Hefst með Faustino freyðivíni í fordrykk
7 gómsætir jólatapas fylgja síðan í kjölfarið
Tvíreykt hangikjöts tartar með balsamik vinaigrette
Rauðrófu- og piparrótargrafinn lax
Spænsk marineruð síld með koriander og mangó
Léttreykt andabringa með malt- og appelsínsósu
Kalkúnabringa með spænskri „stuffing“ og calvados villisveppasósu
Steiktur saltfiskur með sætri kartöflumús
Hægelduð grísasíða með heimatilbúnu rauðkáli, fíkjum og fjallagrasasósu
Og í lokin tveir ljúfir eftirréttir
Rise a la mande með berjasaft
Ekta súkkulaðiterta
Vesturgata 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is
RESTAURANT- BAR
Matur Eva LaufEy Kjaran var að sEnda frá sér sína fyrstu MatrEiðsLubóK
Vinkonusalatið góða
Eva Laufey Kjaran kolféll fyrir Vinkonu-
salatinu góða þegar hún fékk það fyrst hjá
vinkonu sinni. Hún segir það ansi oft á boð-
stólum þegar hún á von á vinkonum.
„Ég ólst upp í mannmargri fjölskyldu þar sem matur var í
hávegum hafður. Í huga mínum er hann sameiningartákn
fjölskyldu og vina, mínar bestu stundir eru með fjölskyldu
minni og vinum við matarborðið,“ segir Eva Laufey Kjaran sem
var að senda frá sér sína fyrstu matreiðslubók, Matargleði
Evu. Bloggsíða hennar með uppskriftum og umfjöllun um
matargerð hefur notið mikilla vinsælda og hún er nýbyrjuð
með matreiðsluþátt á Stöð 3.
Eva deilir með lesendum Fréttatímans uppskrift að salati sem
hún segir eitt besta salat sem hún hefur smakkað. „Ég fékk
það fyrst hjá vinkonu minni fyrir nokkrum árum og kolféll fyrir
því en hef prófað mig áfram með það og breytt því smávegis.
Salatið er ansi oft á boðstólum þegar ég á von á vinkonum í
mat og því tengi ég það við þær og kalla það Vinkonusalatið
góða.“
Fyrir fjóra
1 msk ólífuolía
700 g kjúklingakjöt, helst bringur
1 krukka satay sósa
salt og nýmalaður pipar
1 poki spínat
1 askja kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
3 lárperur, smátt skornar
1 gúrka, smátt skorin
1 mangó, smátt skorið
200 g kúskús, kryddað með 1 tsk karrí
150 g fetaostur
100 g ristaðar furuhnetur
Hitið olíuna við vægan hita á pönnu, skerið kjúklingakjötið í
litla bita og steikið. Kryddið með salti og pipar, bætið satay
sósunni saman við og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur
eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
Skerið allt grænmetið fremur smátt og blandið saman í sér
skál. Eldið kúskúsið samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum og
bætið 1 tsk af karrí saman við. Ristið furuhnetur á þurri pönnu
við vægan hita, fylgist vel með þeim, það er ósköp auðvelt að
brenna þessar ágætu hnetur ef maður lítur af þeim augnablik.
Raðið spínatinu á fallegt fat, bætið því næst kúskúsinu yfir
spínatið. Grænmetið fer síðan ofan á kúskúsið og kjúklingurinn
yfir grænmetið. Dreifið fetaosti og ristuðum furuhnetum yfir í
lokin. - eh
Vinkonu-
salatið er
gómsætt og
hentar vel til
að bjóða upp
á þegar góðar
vinkonur
hittast.
Mynd úr bókinni
Eva Laufey
Kjaran var að
senda frá sér
sína fyrstu
matreiðslu-
bók.