Fréttatíminn - 01.03.2013, Blaðsíða 2
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Heimilis
RIFINN OSTUR
ÍSLENSKUR OSTUR
100%
Krefjast afsagnar Braga
gæludýr nagdýr sem minnir á íkorna til sölu á íslandi
Degúar nýjasta gælu-
dýraæðið hér á landi
Ný tegund gæludýrs, sem kallast degú, nýtur vaxandi vinsælda hér á landi. Það minnir á íkorna með
músarskott og er gáfaðri en flest önnur nagdýr, getur lært að þekkja nafnið sitt og leika kúnstir.
n ý tegund gæludýra nýtur sífellt meiri vinsælda hér á landi, svokallaðir degúar. Gunnar Vilhelmsson, eigandi Dýraríkis-
ins, segir degú mjög forvitið og skemmtilegt
nagdýr með meira vit í kollinum en önnur nagdýr.
Hann getur til að mynda lært að þekkja nafnið sitt.
„Að auki er hann dagdýr, ekki næturdýr eins og
hamstur og mörg önnur nagdýr,“ segir Gunnar.
Degú minnir lítið eitt á íkorna með músarskott
og er á stærð við hið fyrrnefnda. Hann er orku-
mikill og félagslyndur og mælir Gunnar með því
að fólk hafi aldrei færri en tvo degúa saman í búri.
Degú þarf að vera í sérstökum járnbúrum því hann
nagar sig á augabragði í gegnum hvaða plast og tré
sem er, að sögn Gunnars.
Degúinn getur lært ýmsar kúnstir og er jafn-
framt mjög kelinn, ólíkt mörgum öðrum nagdýr-
um. „Ef degú er klórað á kollinum leggst hann
á bakið til að láta klóra sér á maganum. Aðeins
hundar gera það, og jafnvel kettir,“ segir Gunnar.
Fræðiheiti degúa er Octodon Degus og koma
þeir upprunalega frá Chile. Þeir eru 25-30 sentí-
metrar á lengd og vega 170-300 grömm. Þeir eru
ljósbrúnir á lit, ljósari á kviðnum og fer brúni litur-
inn út í gult í kringum augum. „Degú er mjög sér
á parti og á engan náinn ættingja, er eina tegundin
í þessum ættlegg. Í genatöflu hans er að finna ein-
hver tengsl við kanínu þó svo að útlitið gefi það
ekki til kynna,“ útskýrir Gunnar.
Degúar krefjast nokkurrar sérþekkingar í um-
önnun þar sem þeir eru gjarnir á að þróa með sér
sykursýki. „Það er svo sem eins og með öll önnur
dýr,“ segir Gunnar. „Fólk á að kynna sér þarfir
dýra áður en það fær sér gæludýr,“ segir hann.
„Sjálfur hef ég neitað að selja manni dísarpáfa-
gaukinn Dísu þó svo að hann byði 700 þúsund
krónur í hana. Ég treysti honum ekki til þess að
hugsa nógu vel um hana,“ segir Gunnar.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Gunnar Vilhelmsson, eigandi Dýraríkisins, segir að degú,
sem hann heldur hér á, sér gáfaðri en flest önnur nagdýr.
Hann geti lært að þekkja nafnið sitt og leika ýmsar kúnstir.
Ljósmynd/Hari
Börn Úti er ævintýri vegna erfiðs reksturs
Sumarbúðum lokað eftir 15 ár
f orsvarsmenn sumarbúðanna Ævintýralands hafa tilkynnt um að þær verði lagðar niður vegna
rekstrarörðugleika. Ævintýraland
hefur verið starfandi í 15 ár og hafa
þúsundir barna dvalið í búðunum, að
sögn Svanhildar Sifjar Haraldsdóttur
sumarbúðastjóra. „Þessi ákvörðun
fyllir mig miklum söknuði en einnig
nokkrum létti því okkur hefur ekki
tekist að láta reksturinn standa undir
sér,“ segir Svanhildur, sem hefur árum
saman unnið í sjálfboðavinnu við starf-
semina meðfram öðru.
Hún segir að eftirsjáin hefði óneitan-
lega orðið minni ef reksturinn héldi
áfram í höndum annarra, en því miður
sé það ekki raunin. „Mér þykir leitt að
í því fjölmenningasamfélagi sem við
búum í sé ekki hægt að bjóða upp á
sumarbúðir sem eru hlutlausar í trú-
málum,“ segir Gunnhildur. „Okkur
tókst ekki að fá nægilega styrki svo
starfsemin gæti staðið undir sér þrátt
fyrir að öðrum sumarbúðum hafi tekist
það,“ segir Svanhildur.
Svanhildur Sif Haraldsdóttir fagnar afmæli
sumarbúðabarns í Ævintýralandi.
Arndís Ósk Hauksdóttir prestur er ein þeirra sem stendur fyrir
mótmælafundi fyrir utan Barnaverndarstofu sem hefst á hádegi
í dag, föstudag. Tilefnið er meðferð máls dætra Hjördísar Svan
Aðalheiðardóttur og segir Arndís að Barnaverndarstofa hafi
brugðist börnunum í því máli. „Við ætlum að krefjast afsagnar
Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu,“ segir Arndís.
„Þetta verða friðsamleg mótmæli en tilgangurinn er að benda á
þá gífurlegu handvömm og jafnvel lögbrot af hendi stjórnvalda
og Barnaverndarstofu í málum þessara stúlkna,“
segir Arndís. Arndís stendur jafnframt að
undirbúningi stofnun samtakanna Vörn
fyrir börn. „Tilgangur þeirra er fyrst
og fremst að breyta hugsanagangi
og þeim aðferðum sem er beitt í
barnaverndarmálum. Ekki er nægi-
lega hlustað á börnin og því oft brotið
á rétti þeirra. Rétturinn á alltaf að
vera barnanna og börnin eiga alltaf
að njóta vafans,“ segir Arndís. -sda
Degú er mjög sér á parti
og á engan náinn ætt-
ingja, er eina tegundin í
þessum ættlegg.
Þrjú leikara-
börn í Leik-
listarskólann
Inntökuprófum fyrir leiklistardeild Listaháskóla Íslands er nú
lokið. Að þessu sinni komust tíu ungmenni í gegnum síuna
og munu þau hefja nám við skólann næsta haust. Sex konur
hlutu náð fyrir augum dómnefndar, en fjórir karlar.
Athygli vekur að þrjú af þessum tíu ungmennum eru
afkomendur þekktra einstaklinga í leiklistarheiminum.
Hjalti Rúnar Jónsson er sonur Maríu Sigurðardóttur,
leikstjóra og fyrrum leikhússtjóra á Akureyri. Hjalti
hefur áður haft sig í frammi á leiklistarsviðinu og lék
meðal annars í kvikmyndinni Ikingut.
Snæfríður Ingvarsdóttir er dóttir leikarahjónanna
Ingvars E. Sigurðssonar og Eddu Arnljótsdóttur.
Snæfríður lék í kvikmyndinni Kaldaljósi með föður
sínum og Ásláki bróður sínum.
Að síðustu er það Sigurbjartur Atlason, sem
er sonur Atla Rafns Sigurðarsonar leikara. Sigur-
bjartur lék í kvikmyndinni Gauragangi. -hdm
Dóttir Ingvars E. Sigurðssonar ætlar að feta
í fótspor föður síns. Snæfríður Ingvarsdóttir er
komin inn í leiklistardeild Listaháskólans.
2 fréttir Helgin 1.-3. mars 2013