Fréttatíminn - 01.03.2013, Blaðsíða 38
H vað geriðu eiginlega í Bjartri framtíð og Besta flokknum,“ er spurning sem Heiða Kristín
Helgadóttir segist fá oft á tíðum þrátt
fyrir að vera stofnandi beggja fylkinga
og formaður Bjartrar framtíðar ásamt
Guðmundi Steingrímssyni.
Hún segir það sorglegan veruleika
við að búa þegar ungt fólk, oftar en ekki
konur, njóti ekki sannmælis á við eldri
karla innan pólitíkurinnar og sé jafnvel
kölluð stelpan.
„Þetta getur verið pirrandi svona þeg
ar ég veit að Gummi, Jón eða Róbert fá
þessa spurningu aldrei nokkurn tímann.
Ég velti því líka oft fyrir mér hvað fólk
haldi að ég geri. Hvort það haldi að ég
sjái bara um að hella upp á kaffi og ljós
rita og svona. Eins og ég sé bara að dúlla
mér og fái að fljóta með strákunum, af
því þeir eru svo næs,“ segir Heiða Krist
ín sem hefur þrátt fyrir ungan aldur náð
langt innan stjórnmálanna á skömmum
tíma. Hún er hörkudugleg og atorkusöm
en þó virðist sem hún njóti ekki sama
trausts út á við og karlkyns samstarfs
menn hennar.
Strákarnir ákveða ekkert án mín
„Ég lendi alveg í því að fólk og fjölmiðlar
ganga fram hjá mér og leita frekar til
Gumma. Kannski er það vegna þess
að hann er þingmaður að fólki finnist
orð hans hafa meiri þunga en mín eða
kannski vegna þess að hann er eldri.
Ég get ekkert fullyrt um ástæðurnar en
ég hef samt á tilfinningunni að það hafi
fullt með það að gera að hann er karl,“
útskýrir Heiða og segir jafnframt að hún
missi þó ekki svefn vegna þessa. Það
geti þó valdið pirringi þegar ítrekað sé
gengið fram hjá henni og hún fái ekki í
öllum tilfellum þann heiður sem hún á
skilinn fyrir vinnusemi. Oft sé jafnvel
talað um flokk Guðmundar Steingríms
sonar. Það finnist þeim báðum miður.
Heiða Kristín segir einnig að fólk sem
áttar sig á málum eigi það til að segja
henni að vera bara sýnilegri út á við.
„Ég skammaði vinkonu mína um daginn
sem sagði við mig að ég ætti bara að
taka mér meira pláss og vera sýnilegri
því skil ekki alveg þá pælingu. Ég veit
hvað ég hef gert og ég er ánægð með
það. Það fer mér illa að vera endalaust
að sækjast eftir athygli. Það er eins og
til þess að fólk viðurkenni tilvist mína og
veru í pólitík verði ég stöðugt að minna á
mig,“ segir hún og bætir við, „og hvernig
á ég að fara að því? Á ég að fara að skrifa
pistla í blöðin, bara til þess að fólk viti að
ég hafi skoðun á öllu. Ég tjái mig þegar
mér þykir tilefni til en ég er ekki að fara
að taka upp dálkapláss fyrir pistil um
eitthvað bara til þess að vera sýnileg.
Það er til alveg nóg til af þannig fólki.“
Hún segir að málunum innan flokks
ins sjálfs sé þó öðruvísi háttað. Hún seg
ir að Guðmundi þyki það alveg jafn leitt
að hún hafi ekki sama vægi út á við og
hann sjálfur. Hann hafi margoft þurft að
taka upp símann til þess að leiðrétta til
hneigingu fjölmiðla til að gleyma Heiðu.
Innan flokksins sé þó allt gert í samráði
við hana. „Gummi og Róbert færu aldrei
og ákvæðu eitthvað án samráðs við mig.
Það væri fáránlegt. Þá myndi ég líka
skalla þá,“ segir hún og hlær.
Stelpan í stjórnmálunum
Heiða Kristín Helgadóttir er ásamt
því að vera framkvæmdastjóri
Besta flokksins annar tveggja for-
manna í Bjartri framtíð. Hún segir
það geta verið gremjulegt hversu
oft gengið er fram hjá henni í
opinberri umræðu, en það kemur
fyrir að Björt framtíð sé kennd við
hinn formanninn, Guðmund Stein-
grímsson, og öll þau skipti sem
eitthvað þurfi frá flokknum, sé
venjan að fjölmiðlar og aðrir snúi
sér til Guðmundar og hunsi þar
með Heiðu.
Heiða Kristín
Helgadóttir
er formaður
Bjartrar fram-
tíðar. Hún
segir að nú sé
tími ungs fólks
og kvenna að
sækja fram í
pólitík með
nýjar hugmynd-
ir og breyttar
áherslur. Ljós-
mynd/Hari
Geimvísindi stjórnmálanna og
rosknir karlar af báðum kynjum
Heiða Kristín er glaðlynd kona sem
segir að það sé mikilvægt að geta haft
gaman af hlutunum.
„Það er mikill misskilningur að það að
mæta öllu af hörku og stífni geri þig að
sterkum leiðtoga. Það vinnst mun fleira
með gleði og léttleika." útskýrir Heiða,
en óhætt er að segja að léttleikinn hafi
ráðið för í sigurgöngu Besta flokksins í
borginni. Heiða segist stundum fá það
á tilfinninguna að þessi alvarleiki sem
einkennir stjórmálaumhverfið sé til þess
gerður að halda venjulegu fólki frá.
„Ég er ósköp venjuleg, ég geri oft
mistök, er lesblind og ekki mjög talna
glögg. Samt hef ég ekki ennþá rekið mig
á geimvísindi stjórnmálanna. Það er
nefnilega alveg á færi alls fólks að skilja
kjarnann í öllum málum og það geta allir
sem hafa vilja til sett sig inn í hvað sem
er og það er mjög mikilvægt að halda
því til haga svo að allskonar fólk komi
og taki þátt í að móta samfélagið og um
hverfi sitt. Í stað þess að setja það bara í
hendur roskinna alvarlegra karla,“ segir
hún og bætir við kímin, „sko af báðum
kynjum.“
Heiða bendir á að í stjórnmálum sé
borin mikil virðing fyrir festu og jafnvel
stöðnun. Það vanti því oft alla blöndun
og ungt fólk upplifi sig ekki velkomið.
Það sé jafnvel hrætt við að rugga bátn
um, hyggi það á einhverja framtíð innan
stjórnmálanna. Þessu sé öfugt farið á
flestum öðrum stöðum atvinnulífsins
þar sem sérstaklega sé litið til ungs fólks
eftir nýjum og skapandi leiðum og hug
myndum. Þessu hyggst hún breyta.
„Ég ætla allavega að gera tilraun til
þess, það verður svo bara að koma í ljós
hvort að það tekst. Kannski er ég bara
ein um þessa skoðun og það verður þá
bara að koma í ljós. Ég hef alltaf valið
mér ótroðnar slóðir í lífinu og gjörn á
að láta bara vaða. Ég trúi því að það hafi
skilað mér hingað og hver veit hvert það
leiðir mig næst. Ég vona að það leiði inn
á þing, en ef ekki þá reyndi ég allavega
og fer sátt frá í leit nýrra ævintýra.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Það er mikill misskilningur að það að
mæta öllu af hörku og stífni geri þig að
sterkum leiðtoga. Það vinnst mun fleira
með gleði og léttleika.
38 viðtal Helgin 1.-3. mars 2013