Fréttatíminn - 01.03.2013, Blaðsíða 6
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Vatn eða sódavatn? Svalaðu þorstanum
með einu glasi eða heilli könnu af fersku
vatni með eða án kolsýru, úr þessum
glæsilega kæliskáp frá Electrolux, sá eini
sinnar tegundar á markaðinum. Stöðluð
stærð 180x60 cm svo hann smellpassar í
eldhúsið þitt. Glæsileg innrétting. Sjón er
sögu ríkari. Verð áður kr. 299.900
GILDIR FÖSTU- & LAUGARDAG
199.900SPARAÐU 100.000
OFURTILBOÐ KR.
ERES-38820X Kæliskápur stál
TOPPMÓDEL!
Sódavatn
Vatn
Voltaren Dolo 25 mg
- nú tvöfalt sterkara en áður!
Voltaren Dolo 25 mg
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
15%
afsláttur
Hagnaður Íslandsbanka 23,4 milljarðar
Svartsýni neytenda jókst lítið eitt í
febrúar, samkvæmt væntingavísi-
tölu Capacent Gallup sem birt var í
vikunni. Vísitalan mælist 80,7 stig og
lækkar um 1 stig á milli mánaða en
vísitalan mælir væntingar neytenda
til efnahags- og atvinnulífsins. Þegar
vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri
neytendur svartsýnir en bjartsýnir
„Þessi lækkun kemur í kjölfar þess
að væntingar neytenda jukust mikið
í janúar, eða um rúmlega 12 stig.
Reyndar kemur það talsvert á óvart að
væntingar neytenda skuli minnka nú
en yfirleitt fer bjartsýni vaxandi milli
þessa tveggja mánaða. Þá var niður-
staða EFTA dómstólsins í hinni þrá-
látu Icesave deilu birt í lok janúar og
vann Ísland fullnaðarsigur í málinu.
Það virðist þó hafa haft skammvinn
áhrif á bjartsýni landans sem þrátt
fyrir þessi góðu tíðindi er svartsýnni
nú en í fyrri mánuði,“ segir Greining
Íslandsbanka.
„Það virðist vera að aðrir þættir vegi
þyngra nú í febrúar. Samkvæmt undir-
vísitölum vísitölunnar er það helst
mat á atvinnuástandi sem er að draga
niður vísitöluna nú, en sú undirvísitala
lækkar um fjögur stig á milli mánaða.
Árstíðarsveifla á vinnumarkaði veldur
því að atvinnuleysi hefur farið lítillega
hækkandi undanfarna mánuði og gæti
það haft áhrif til lækkunar væntinga
neytenda nú. Þannig töldu 36% að-
spurðra nú að atvinnumöguleikar
væru litlir og 9,3% töldu atvinnumögu-
leika mikla.
Þá lækka væntingar til 6 mánaða
um eitt stig frá fyrri mánuði en sú
vísitala er nú 114 ,3 stig. Er þetta
annar mánuðurinn í röð sem vísitalan
er yfir 100 stigum, sem bendir til þess
að fleiri eru jákvæðir en neikvæðir á
þróun mála næsta hálfa árið.“
Fjárhagsstaða Íslands-
banka er traust. Afkoma
hans á árinu 2012, eftir
skatta, var jákvæð um
23,4 milljarða. Hagnaður
nam 1,9 milljörðum árið
2011. Þar gætti áhrifa
virðisrýrnunar á við -
skiptavild vegna yfirtöku
Byrs sem olli 17,9 milljarða króna
einskiptiskostnaði. Hagnaður árs-
ins eftir skatta af reglulegri starf-
semi var 15,7 milljarðar en var
13,9 milljarðar árið 2011. Arðsemi
eigin fjár eftir skatta var 17,2% en
1,5% árið 2011. Arðsemi eigin fjár
af reglulegri starfsemi var 11,6%
miðað við 11,0% árið 2011.
Skattar og gjöld greidd ríkis-
stofnunum voru 9,3 milljarðar á
árinu. Þau námu 2,0 milljörðum
árið 2011. Heildareign-
ir við árslok námu 823
milljörðum en 796 millj-
örðum í árslok 2011.
Vaxtamunur var 3,9%
árið 2012 en hann var
4,5% árið 2011.
Frá stofnun bankans
hafa um 20.900 einstak-
lingar og um 3.660 fyrirtæki feng-
ið afskriftir, eftirgjöf eða leiðrétt-
ingu á skuldum sem nema um 463
milljörðum króna.
Heildarinnlán við árslok námu
509 milljörðum. Þau námu 526
milljörðum í árslok 2011. Eigið
var 148 milljarðar í árslok, hækk-
un um 19,4% frá árslokum 2011.
Eiginfjárhlutfall var 25,5% í árslok
2012 en var 22,6% í árslok 2011.
- jh
O kkur fannst svo ótrúlega fúlt að geta ekki haldið þetta þar sem við vorum búnir að leggja mikla vinnu
í undirbúninginn. Við lögðum höfuðið í
bleyti og ákváðum að færa þetta bara í
bæinn,“ segir Davíð Arnar Oddgeirsson,
annar skipuleggjenda Mintunnar sem
halda átti í Bláfjöllum um helgina. Sökum
veðurfars á svæðinu þurfti að fresta keppn-
inni um óákveðinn tíma.
Aðstandendurnir, Emmsjé Gauti Þeyr og
Davíð Arnar, dóu þó ekki ráðalausir. Þeir
hyggjast bregða á það ráð flytja keppnina í
miðborgina, nánar tiltekið í Naustin milli
Tryggvagötu og Hafnarstrætis, fyrir utan
skemmtistaðinn Gauk á Stöng. Til þess að
þetta verði að veruleika þurfa strákarnir að
ráðast í heilmikla framkvæmd á skömmum
tíma og meðal annars flytja í bæinn risa-
trukk fullan af snjó, úr Bláfjöllum.
„Þetta eru um 25 rúmmetrar af snjó sem
þarf. Við smíðum brautina úr stillans og
vörubrettum og þekjum með 20 sentímetra
lagi af snjó,“ útskýrir Davíð. Hann segir þó
ekki víst með keppnina þó mögulega verði
veitt verðlaun fyrir einstaka flokka, líkt og
stíl og annað, það sé þó ekki alveg komið
í ljós. Þetta verði því ekki eiginlegt mót
heldur svokallað „Jib–session“.
Emmsjé Gauti segir það miður að ekki
hafi allt farið að óskum, en bendir á að
keppnin verði þó haldin í Bláfjöllum um
leið og færi gefist. Hann bendir jafnframt á
að tónleikar sem halda á, á Gauknum séu
enn á dagskrá um kvöldið og miðasala í
fullum gangi.
„Þetta verður eitthvað fyrir alla. En til
að taka þátt er mikilvægt að vera með smá
„skills“,“ segir Gauti og Davíð tekur í sama
streng. „Þetta er bara fyrir þá allra færustu
því við getum ekki verið að taka ábyrgð
á því að óreyndara fólk sé að slasa sig á
brautinni. Hins vegar, teljir þú þig hafa
erindi þá kemur þú með brettið þitt og talar
við okkur og jafnvel prófar og við metum
það svo hvort þú getir verið með í „sjóv-
inu“.“ Sjálfur segist Davíð hafa á sínum
tíma mætt með brettið sitt og spreytt sig
opinberlega í fyrsta skipti undir svipuðum
kringumstæðum og þannig komist inn í
snjóbrettasenuna sem ku vera lítill afmark-
aður hópur.
Atburðurinn hefst klukkan 15 á morgun
laugardag og hvetja strákarnir alla að
mæta og fylgjast með.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
VæntingaVísitala CapaCent gallup
Neytendur heldur svartsýnni
snjóbrettamót Úr bláfjöllum í miðbæinn
Flytja fullan trukk
af snjó í bæinn
Áætluðu snjóbrettamóti, Mintan, sem halda átti í Bláfjöllunum um helgina verður frestað vegna
veðurs. Aðstandendurnir, Davíð Arnar Oddgeirsson og Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem
emmsjé Gauti deyja þó ekki ráðalausir og hyggjast halda svokallað „Jib-Session“ í miðborg
Reykjavíkur á morgun, laugardag, í staðinn. Til þess að það gangi upp þurfa þeir meðal annars
að fylla tuttugu og fimm rúmmetra trukk af snjó úr Bláfjöllum og flytja í miðborgina.
Emmsjé Gauti er annar aðstandenda „Jib Sessions“ sem haldið verður í miðborginni á morgun.
Þetta er
bara fyrir þá
allra færustu
því við
getum ekki
verið að
taka ábyrgð
á því að
óreyndara
fólk sé að
slasa sig á
brautinni.
6 fréttir Helgin 1.-3. mars 2013