Fréttatíminn - 01.03.2013, Blaðsíða 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
V 10-18 m/s. skúrir V-til, en él senni-
partinn. kólnar en frostlaust syðst.
HöfuðborgarsVæðið: Vestan 10-15 m/s og
skúrir. Hiti 2 til 5 stig, en kólnar í kVöld.
sV-læg eða V-læg átt, 3-8 m/s . Þykknar upp
með sa-átt og snjókomu V- og nV-lands.
HöfuðborgarsVæði : suðlæg átt, 5-10 m/s og
líkur á slyddu um kVöldið. Hiti um frostmark.
sV 5-10 m/s og snjókoma V-til gengur í na-
HVassViðri með snjókomu á nV-lands.
HöfuðborgarsVæðið: suðaustan 3-10 og dá-
lítl snjómugga. Hiti um og undir frostmarki.
kólnar um land allt
Hvöss vestanátt og vætusamt í dag, en lægir
í kvöld og víðast hvar hæg suðaustlæg átt og
úrkomulítið á morgun, en þykknar þó aftur upp
vestantil. á sunndag snýst svo í hvassa norðan-
átt með snjókomu um landið norðvestanvert og
kólnar um allt land. Vestanátt með skúrum og
síðar éljum í dag, en hægviðri
á morgun. gengur í hvassa
norðaustanátt með snjókomu
á Vestfjörðum á
sunnudag, en hægari
suðvestanátt annars
staðar.
5
2 5
6
6
2
-4 -5 -5
2
1
-4 0 1
3
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
innlán heimilanna hjá innlánsstofnunum
lækkuðu um ríflega 5,9 milljarða í janúar
eftir að hafa lækkað um rúmlega 5 milljarða
í desember. lækkun innlána þessa tvo mán-
uði hefur verið heldur meiri en að meðaltali
undanfarna mánuði. síðustu tólf mánuði
hafa innlán heimilanna hjá innlánsstofnun-
um lækkað um ríflega 19,5 milljarða króna.
innlán heimilanna hjá innlánsstofnunum eru
nú 594,2 milljarðar króna og hafa ekki verið
svo lítil frá hruni bankakerfisins 2008, að
því er fram kemur í gögnum seðlabankans.
„leiða má líkur að því að ástæður þess að
heimilin eru nú að taka út innlán með meiri
hraða en áður séu þær m.a. að heimilin
leiti með það fjármagn í betri ávöxtun en
innlánsreikningar bjóða um þessar mundir,“
segir greining íslandsbanka. „ávöxtun á
hlutabréfamarkaði hefur verið mikil bæði í
desember og janúar, og af stöðu hlutabréfa-
sjóða er ljóst að talsvert fjárstreymi hefur
verið inn í þá sjóði.“
í desember hækkaði hlutabréfaeign
verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfesta-
sjóða um 4,2 milljarða króna, fór úr 31,4
milljörðum í 35,6 milljarða. Heimilin virðast
því í auknum mæli að leita með sparifé sitt
í skráð innlend hlutabréf að nýju eftir að sá
hluti sparnaðar þeirra hvarf nær alfarið í
hruninu 2008.
greiningin bendir raunar á að vel sé
hugsanlegt að innlán hafi einnig farið í aðra
þætti. „Hægt hefur á vexti kaupmáttar
launa undanfarið og þó svo að samhliða hafi
hægt að vexti einkaneyslu þá er ekki loku
fyrir það skotið að heimilin hafi fjármagnað
neyslu sína síðustu tvo mánuði með inn-
lánum að hluta.“ - jh
eignin skoðuð á youtube
Það fylgir því mikið umstang að sýna fasteignir sem eru til sölu. landmark fasteigna-
sala hefur kynnt nýjung til að auðvelda kaupendum val og létta álagi af seljendum,
hreyfimyndakynningu af eignum sem eru í sölumeðferð sem settar eru upp á
youtube. Þeir sem koma og skoða hafa því raunverulegan áhuga, þar sem þeir hafa að
öllum líkindum bæði kynnt sér eignina með hágæðamyndum og síðan myndbandi sem
gefur enn betri mynd af eigninni og innra skipulagi.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Vigni Má Garðarsson hjá Fasteignaljósmyndun.is
og er gert að erlendri fyrirmynd.
„Þetta auðveldar neytendum að velja úr þær eignir sem þeir hafa raunverulegan
áhuga á að skoða og sparar þannig tíma og fyrirhöfn fyrir bæði seljendur og kaup-
endur. Þessi kynningaraðferð er nýjung á íslandi en hefur verið notuð í töluverðan
tíma í Bandaríkjunum. Ég held að innan fárra ára verði allar eignir kynntar á netinu
með þessum hætti, það mun þykja jafn sjálfsagt og ljósmyndir inn á netinu af eignum í
dag,“ segir magnús einarsson, framkvæmdastjóri landmark.
Seljandi greiðir kostnaðinn við myndböndin, 39 þúsund krónur með virðisauka-
skatti. -jh
sparifé leitar frá bönkum í hlutabréf
É g skil ekki af hverju við útfarar-stjórar erum gerðir ábyrgir fyrir að rukka þetta gjald. Við eigum
nefnilega að leggja út fyrir aðstandendur
um hver mánaðarmót og rukka þá svo. Ég
álít að við séum neyddir til að taka þátt í
ólögmætum gjörningi,“ segir Rúnar Geir-
mundsson útfararstjóri.
Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa höfð-
að mál gegn Rúnari og fyrirtæki hans,
Útfararþjónustunni ehf., vegna ógreiddra
kirkjugarðsgjalda. Fyrirtaka var í málinu
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Kirkju-
garðarnir krefja Rúnar um 471 þúsund
krónur auk dráttarvaxta frá því málið var
höfðað.
Rúmt ár er síðan Kirkjugarðar Reykja-
víkurprófastsdæma hófu að innheimta
kirkjugarðsgjald. Annars vegar er um að
ræða gjald vegna kistulagninga en hins
vegar vegna útfara. Alls 9.500 krónur sem
útfararþjónustum er gert að innheimta hjá
aðstandendum hins látna vegna útfara. Fé-
lag íslenskra útfararstjóra mótmælti strax
gjöldunum þegar þau voru kynnt.
Um mitt síðasta ár sendi innanríkisráðu-
neytið Kirkjugarðsráði bréf þar sem ráðu-
neytið mælist til þess gjaldtöku þessari
verði hætt. Að minnsta kosti þar til Um-
boðsmaður Alþingis hafi sagt álit sitt á lög-
mæti þess. Við því hafa Kirkjugarðarnir
ekki orðið. Í bréfi innanríkisráðuneytisins
til Umboðsmanns Alþingis sem sent var í
febrúar er sú afstaða ráðuneytisins ítrekuð
að gjaldtakan sé ólögmæt.
„Kirkjugarðarnir hafa í sex ár reynt
að fá ráðuneytið til að breyta lögum svo
þeir geti innheimt gjaldið því þeir vissu
að það væri ólöglegt að taka það. Síðan
segjast þeir ætla að láta reyna á þetta
fyrir dómstólum. Mínir lögmenn munu að
sjálfsögðu fara fram á skaðabætur fyrir að
ég sé dreginn inn sem þriðji aðili í deilu
einnar ríkisstofnunar við ráðuneyti,“ segir
Rúnar.
Umboðsmaður Alþingis hefur enn ekki
kveðið upp sinn úrskurð en Rúnar kveðst
telja að von sé á honum á næstunni.
Aðspurður segir Rúnar að þreytandi sé
að standa í þessu stappi en hún sé þess
virði. „Annars tekur enginn upp hanskann
fyrir hina látnu eða aðstandendurna.“
dómsmál ÞingFesting í máli KirKjugarða gegn ÚtFararÞjónustu
Krafinn um hálfa milljón
vegna kirkjugarðsgjalda
rúnar geirmundsson útfararstjóri er ósáttur við að kirkjugarðar reykjavíkur geri hann ábyrgan
fyrir að rukka aðstandendur látinna um kirkjugarðsgjald. rúnar telur gjaldið ólögmætt og innan-
ríkisráðuneytið er sama sinnis. kirkjugarðarnir stefndu rúnari fyrir dóm vegna þess að hann
hefur ekki greitt gjaldið.
rúnar geirmundsson útfararstjóri hefur neitað að innheimta kirkjugarðsgjald kirkjugarða reykjavíkur hjá viðskiptavinum
sínum. kirkjugarðarnir hafa stefnt honum fyrir dóm vegna þess. Ljósmynd/Hari
Höskuldur daði
magnússon
hdm@frettatiminn.is
4 fréttir Helgin 1.-3. mars 2013