Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.03.2013, Page 10

Fréttatíminn - 01.03.2013, Page 10
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Í aðdraganda alþingiskosninganna í næsta mánuði hafa orðið kyn-slóðaskipti í forystu stjórnmálaflokkanna. Það eru merk tíðindi og tímabær. Landsfundir flokkanna hafa markað stefnu þeirra og falið forystumönnunum að fylgja henni eftir og leiða flokka sína í þeirri baráttu sem fram undan er. Mikilvægt er að vel takist til, að við taki sterk og samhent ríkisstjórn sem hafi burði til að takast á við þau vandamál sem við blasa. Þau eru mörg og mikil. Núverandi ríkisstjórn tók við erfiðu búi árið 2009, eftir fall bank- anna og upplausn í samfélaginu. Ekki skal gert lítið úr þeim árangri sem náðst hefur. Halli ríkissjóðs hefur minnkað með hverju árinu og mjög hefur dregið úr atvinnuleysi. Hagvöxtur hefur verið meiri en í helstu samanburðarlöndum. Fjárfesting hefur hins vegar ekki verið næg. Þar munar ekki síst um það að sjávarútvegurinn hefur verið í mikilli óvissu allt kjörtímabilið sem óhjákvæmilega hefur leitt til þess að stjórnendur útgerða hafa haldið að sér höndum. Tími og fjármunir hafa farið í aðildarumsókn að Evrópusambandinu, í máli sem skipt hefur þjóðinni í tvær fylkingar. Átök hafa síðan verið um breytingar á stjórnarskrá, verkefni sem ná verður fram í þokkalegri sátt og án þess að slíkt grundvallarmál sé keyrt í gegn í tímahraki og óvissu um hvaða áhrif breytingarnar hafa. Síðasti hluti kjörtímabilsins hefur verið ríkisstjórninni erfiður. Þingmenn beggja stjórnarflokkanna hafa sagt sig úr þeim svo stuðn- ingur við ríkisstjórnina hefur undanfarin misseri verið ótryggur, svo ekki sé meira sagt. Í raun hefur ríkisstjórnin verið minnihlutastjórn í skjóli þingmanna Hreyfingarinnar og þeirra tveggja þingmanna sem standa að Bjartri framtíð, nánast setið meðan sætt er. Þar hefur tími farið til spillis. Kjósa hefði átt fyrr. Frá sjónarhóli almennings hafa þingstörf á því kjörtímabili sem er að líða markast af átökum og óbilgirni. Þar má vafalaust mörgum um kenna en því er ekki að neita að ásýnd ríkisstjórnarinnar hefur einkennst af hörku og að því er virðist takmörkuðum vilja til mála- miðlana. Það á við um oddvita ríkisstjórnarinnar, Jóhönnu Sigurðar- dóttur og Steingrím J. Sigfússon. Þau eru þingreyndust allra en hafa á þessum síðustu – og mestu valdaárum sínum á löngum ferlinum – að nokkru fært stjórnmálin áratugi aftur í tímann þegar pólitísk átök voru persónulegri og óvægnari og heiftin meiri en viðunandi er. Mál er að linni. Þess vegna ber að fagna ákvörðun beggja um að draga sig í hlé. Ásýnd nýrrar flokksforystu Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er önnur og nútímalegri en þeirrar sem var. Vonir eru til þess að Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir, fyrir hönd Samfylkingarinnar, standi undir væntingum sem og Katrín Jakobs- dóttir og Björn Valur Gíslason hjá Vinstri grænum. Sömu kröfur eru gerðar til forystu Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Bjarni tók við flokknum við erfiðar aðstæður eftir bankahrunið og Hanna Birna kemur nú upp að hlið hans. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók við formennsku í Fram- sóknarflokknum skömmu fyrir síðustu alþingiskosningar og á nýaf- stöðnu flokksþingi tók Sigurður Ingi Jóhannsson við varaformennsk- unni. Mikil hreyfing er á fylgi kjósenda, nú tveimur mánuðum fyrir kosningar, en kannanir sýna að Framsóknarflokkurinn siglir í byr. Sú krafa er gerð til forystumanna hans, ekki síður en til annarra, að þeir standi undir væntingum um frjórra og skilvirkara stjórnmálastarf en verið hefur. Af nýjum framboðum virðist Björt framtíð njóta mest fylgis og ná, samkvæmt könnunum, mönnum á þing. Þar fer fyrir hófsamt og nútímalegt fólk, formennirnir Guðmundur Steingrímsson og Heiða Kristín Helgadóttir. Vonir standa til að þau kynslóðaskipti sem orðið hafa í stjórnmála- flokkunum verði þjóðinni til farsældar. Til forystumanna þeirra allra eru gerðar kröfur um bærilega samvinnu og árangur í þjóðarþágu. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Væntingar til nýrra forystumanna stjórnmálaflokkanna Kynslóðaskipti Ljósár í burtu Ég veit ekki hvort margir mættu þangað í Star Wars búningum – en í borgarstjórn hljóma þeir að minnsta kosti oft eins og þeir séu af allt annarri plánetu. Hanna Birna Kristjánsdóttir sendi Bjartri fram- tíð og þeim framandi verum sem gengið hafa til liðs við framboðið frá Besta flokknum tóninn af landsfundi Sjálfstæðis- flokksins. Skjaldborgin er fundin! Netklámskjöldur Ís- lands mun takast á við hart ofbeldi. Halla Gunn- arsdóttir, aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar inn- anríkisráðherra, fræddi lesendur breska blaðsins The Guardian um klámsí- urnar sem til stendur á að setja á internetumferðina á Íslandi. Kjötið sem hvarf Við kunnum alls engar skýringar á þessum mælingum þeirra og förum nú í nákvæma skoðun á hvað hefur þarna átt sér stað. Magnús Níelsson, forstjóri Gæðakokka, botnar ekkert í því hvers vegna ekkert nautakjöt var í nautakjötlokum fyrirtækisins. Sú sem síðast hlær En við fögnum ekki sigri fyrr en á kjördag. Vigdís Hauks- dóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins, bregst fagnandi við fylgisaukningu flokksins en heldur þó ró sinni. Á sjó Ég er búinn að vera í þessu lengi og kominn tími á að breyta til. Svavar Halldórsson hefur sagt upp störfum hjá Ríkisútvarpinu. Óvíst er hvað tekur við en konan hans, Þóra Arnórsdóttir, talaði um að senda hann á sjóinn að lokinni baráttunni um forsetaembættið. Hann er flokkurinn! Við skulum átta okkur á því að árásir á hann, eru árásir á okkur, það eru árásir á Sjálfstæðisflokk- inn. Ólöf Nordal, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, kvaddi á landsfundi og setti árásir á formanninn Bjarna Benediktsson í samhengi. Naut verður að hrossi Þetta ástand er allavega óþolandi og þarf að koma þessu í lag. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, er óhress með hvernig skjólstæðingar hans eru blekktir með röngum innihalds- lýsingum á umbúðum matvæla. Öðruvísi formaður En, það er alveg öruggt að við höfum haft formann sem er karl í krapinu og ég er örugglega ekki þannig for- maður. Katrín Jakobs- dóttir, nýr for- maður VG, ber sig saman við forverann Steingrím J. Sigfússon.  Vikan sem Var Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is LeiÐari 10 viðhorf Helgin 1.-3. mars 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.