Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.03.2013, Side 48

Fréttatíminn - 01.03.2013, Side 48
48 heilsa Helgin 1.-3. mars 2013  Matur Hollustuuppskriftir á gottiMatinn.is Hollur laxahamborgari Uppskriftasíðan www.gottimatinn. is er flottur við- komustaður þegar fólk vantar hug- myndir að réttum í kvöldmatinn. Nýlega bættist við fjöldi af girnilegum hollustuuppskrift- um úr smiðju Ernu Sverrisdóttur og hjónanna Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egils Hrafns- sonar. Á síðunni er nú að finna mikinn fjölda hollustu- uppskrifta, bæði hollar hversdags uppskriftir en einnig uppskriftir að girnilegum en jafnframt hollum eftirréttum sem og fínni réttum. Á síðunni eru til að mynda uppskriftir að kjúklinga- salati með jógúrt- hnetusósu, grófum hindberjamúffum og laxaborgurum með wasabi sósu, en uppskriftin að laxaborgurunum fylgir hér að neðan. Laxahamborgarar með wasabi-eplasósu Fyrir fjóra Innihald • 500 g laxaflak, bein- og roðlaust, skorið í bita • 1 stk egg • ½ dl graslaukur, fínsaxaður • 2 msk repjuolía • 4 stk gróf hamborgarabrauð eða 8 sneiðar af grófu súrdeigsbrauði • 50 g ferskt salat • 2 stk tómatar • 1 stk lárpera Sósa • 1 stk lítið grænt epli, skorið í bita • 1 ds sýrður rjómi 10% • fínrífinn börkur af 1 límónu • 1 tsk eða meira af wasabimauki • sjávarsalt og svartur pipar Lax aðferð 1. Setjið fyrstu fjögur hráefnin í matvinnsluvél eða maukið gróft með töfrasprota. 2. Mótið fjóra hamborgara úr farsinu sem eru u.þ.b. 1 1/2 cm þykkir. 3. Steikið á pönnu við meðalhita í u.þ.b. 5 mínútur. 4. Ristið brauðin og leggið salat og wasabi- eplasaósu ofan á brauðbotninn. Setjið síðan laxaborgarann þar ofan á og meiri sósu. Toppið með tómötum, lárperu og sósu. Wasabi-eplasósa Maukið eplið í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Bætið hinum hráefnunum saman við.kkið til með salti, pipar og wasabi ef vill. NORÐURKRILL P R E N T U N .IS Hressari á morgnana! „Í heilsueflingu minni sem hófst í ágúst 2011 hef ég notað Norðurkrill omega 3 gjafa og ég fann mjög fljótt mikinn mun á mér. Ég hafði lengi átt við skammdegisþunglyndi að stríða, var kraftlaus, síþreyttur og fann til í liðamótum. Eftir að ég byrjaði að taka inn Norðurkrill er miklu auðveldara að vakna á morgnana, liðverkir eru horfnir, lundin er léttari og ég finn gríðarlegan mun á heilsunni. Þetta var eins og punkturinn yfir i-ið og ég ætla klárlega að halda áfram að nota Norðurkrill í minni heilsueflingu. Ég verð 40 ára á árinu og hef sjaldan verið í jafngóðu andlegu og líkamlegu formi.“ Björn Ólason Aðeins þarf 1-2 hylki á dag til að mæta dagsþörfinni og það er ekkert eftirbragð, uppþemba eða magaólga sem oft fylgir inntöku á fiski- og jurtaolíum. Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is 20% afsláttu r 1 – 15 ma rs OMEGA 3 getur gengt lykilhlutverki þegar kemur að því að efla stoðkerfið, huga- og heilastarfsemi, hjarta og æðakerfi. NORÐURKRILL ein öflugasta uppspretta af OMEGA 3 úr hafinu unnið úr krilli (ljósátulýsi) NORÐURKRILL er fáanlegt í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna E–vítamín er nauðsynlegt líkamanum en erfitt er að fá það magn sem þarf úr fæðunni einni saman og því gott að taka inn þar til gerðar töflur. Það sem vítamínið gerir er að aðstoða líkama við súrefnisflutning, bæta blóð- rásina og hafa æðaútvíkkandi áhrif. Það náttúrulegur storkuvari og vinnur gegn æðakölkun. E-vítamín er að finna í grófu mjöli, jurtaolíum, eggjum, grænlaufguðu grænmeti, sojabaunum, hveiti-, rúg- og maískími og spínati. Einkenni E-vítamínskorts er vöðvarýrn- un, hrörnun kransæða, stífla í æðum lungna, eyðing rauðra blóðkorna, blóð- rauðakvillar og kvillar tengdir æxlun, svo sem ófrjósemi og missir kyngetu. Einnig getur skortur á E-vítamíni leitt til hjarta- sjúkdóma og ótímabærrar öldrunar. E–vítamín nauðsynlegt G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i www.nowfoods.is Jakobína Jónsdóttir NOW er breið lína hágæða fæðubótarefna sem er án allra óæskilegra aukefna, svo sem litar-, bragð- og rotvarnarefna og ódýrra uppfylliefna. Hágæða prótein -án uppfylliefna 69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent júlí-sept. 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.