Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.03.2013, Síða 62

Fréttatíminn - 01.03.2013, Síða 62
 Leikdómur mary PoPPins Allþokkalega pottþétt! Niðurstaða: Sýningin er án efa með þeim allra flottustu sem settar hafa verið upp hér á landi. Bravó!  mary Poppins Höfundur: P.L. Travers, Julian Fellows, George Stiles og Anthony Drew en Gísli Rúnar Jónsson þýddi. Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson. Aðalhlutverk: Jóhanna Vigdís Arnardóttir. É g hef aldrei verið neitt sérstaklega gefin fyrir söngleiki. Mér finnst þeir helst til hávaðasamir og þreyt- andi til lengdar. Þó skellti ég mér á frum- sýningu Mary Poppins í Borgarleikhúsinu síðasta föstudag. Því sá ég ekki eftir. Hin klassíska saga af barnfóstrunni glöðu er sem greypt í minni flestra frá barnæsku. Sjálf þurfti ég, dæmigert íslenskt alþýðu- barn á fyrrihluta tíunda áratugarins, aldrei á barnfóstru að halda. En minnist þess þó að hafa óskað mér þess heitt að einhvern- tímann fengi ég Mary Poppins í heimsókn, þó ekki væri nema eina kvöldstund svona rétt á meðan mamma og pabbi skryppu í bíó. Mér varð ekki að ósk minni þá en þykir sem ég hafi komist ansi nálægt því á föstudaginn. Ég hélt á sýninguna ásamt fjögurra ára dóttur minni. Sýningin var í seinna lagi fyrir barnið, klukkan átta um kvöld og stendur yfir í rúmar þrjár klukkustundir að hléi meðtöldu. Ég mæli því ekkert sér- staklega með kvöldsýningunni fyrir svo ung börn. Mikið sjónarspil Sýningin byrjar strax með miklu sjónar- spili. Notuð er skemmtileg tækni og blönd- un ljóss og skugga. Strax frá upphafi er tónninn sleginn fyrir það sem koma skal. Gói gegnir hlutverki Berts og þótti mér honum takast afar vel til. Hann var mátu- lega kæruleysislegur og náði vel til áhorf- andans er hann leiddi salinn inn í söguna af Banks fjölskyldunni óhamingjusömu. Herra og frú Banks eru leikin af þeim Est- her Talíu og Halldóri. Þrátt fyrir mikilvægi þeirra eru þetta að mínu mati leiðinlegustu persónur verksins. Það var helst að Ester tækist að glæða móðurina lífi með túlkun sinni og vekja með henni samkennd en því miður þá tókst Halldóri ekki jafn vel upp með föðurinn, sem varð oft tilgerðarlegur og ósannfærandi. Börnin Mikael og Jane, leikin af þeim Rán og Gretti, sýndu af sér fádæma fag- mennsku og alveg hreint magnaða söng- hæfileika. Mér leið líkt og ég ætti smá í þeim á tímapunkti og fylltist einhverju óút- skýrðu stolti yfir þessum ótrúlega flottu krökkum. Jóhanna Vigdís leikur svo sjálfa Mary Poppins. Ég viðurkenni að ég kveið aðeins fyrir því að sjá hvernig barnfóstra horf- inna æskudrauma kæmi til með að verða í hennar höndum. Ekki vegna þess að ég hafi ekki trú á Jóhönnu, heldur vegna þess hver gríðarlega erfitt það má vera að feta í fótspor sjálfrar Julie Andrews. Bravó! Þessar áhyggjur mínar fengu að fjúka um leið og hún mætti á sviðið. Hún náði mér alveg frá byrjun fram til enda. Svo ekki sé minnst á undurfagra söngrödd Jóhönnu sem hefur fengið mig til þess að humma „allþokkalega pottþétt” alla vikuna. Á sviðinu, auk aðalleikara, voru nokkrar manneskjur sem hreinlega báru af. Þar ber helst að nefna Sigrúnu Eddu og Þóri Sæm, sem voru alveg hreint ótrúleg. Sig- rún sem misheppnuð ráðskonan og Þórir í nokkrum mismunandi hlutverkum sem honum fórust öll einkar vel úr hendi. Um Margréti Eir gæti ég skrifað heilan pistil. Hún er einhverskonar ofurkona. Ég sá hana í heita pottinum um helgina og varð hálf „starstrucked” eftir frammistöðu hennar. Sýningin var frábær skemmtun fyrir móður og barn (sem sat sem neglt við sætið). Ótrúlegt samverkandi sjónarspil lita, ljósa, sviðsmyndar, búninga, söngva og dansa tekur áhorfandann á flug um klassískt ævintýrið. Sýningin er án efa með þeim allra flottustu sem settar hafa verið upp hér á landi. Bravó! María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Sýningin var frábær skemmtun fyrir móð- ur og barn. Þeir Júlíus Brjánsson og Gísli Rúnar Jónsson hófu feril sinn með Kaffibrúsaköllunum í Sjónvarpinu fyrir 40 árum. Nú eru þeir hins- vegar búnir að snara upp sýningu um þessa karla sem frumsýnd er í kvöld í Austurbæ. Kallarnir hafa fengið Helgu Brögu Jónsdóttur og Lalla töframann til liðs við sig og Gunnar Helgason leikstýrir sýningunni. „Þetta er svona kabarettfíling- ur hjá okkur,“ segir leikstjórinn en Júlíus og Gísli Rúnar vildu gera þetta að stórri og skemmtilegri sýningu svo þeir réðu Gunna sem leikstjóra. „Ég þekki þá mjög vel og hef unnið með þeim áður. Leiðir okkar Gísla hafa oft legið saman í leikhúsi og ég kynnt- ist Júlíusi um leið og ég útskrifað- ist og fór að talsetja hjá honum teiknimyndir," heldur Gunni áfram sem segir þá Júlíus og Gísla frábæra gæja sem kunna þetta allt; „þeir eru æðislegir.“ Aðspurður um hvort Júlíus rói Gísla Rúnar niður í ofvirkninni sem hann er þekktur fyrir segir Gunnar það ekki endilega vera og hlær. „Þetta eru svakalega duglegir menn, alltaf á tánum og hvenær sem er sólarhringins til í að ræða hvað sem er. Í þeirra samstarfi mætast þeir í miðj- unni því óneitanlega er Júlli ívið rólegri en Gísli.“  Frumsýning kaFFibrúsakaLLarnir í austurbæ Kaffibrúsakallar í fjóra áratugi Gísli Rúnar Jónsson og Júlíus Brjánsson. Mary Poppins í Borgar- leikhúsinu. Frábær sýning. 62 leikhús Helgin 1.-3. mars 2013 Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Mary Poppins (Stóra sviðið) Lau 2/3 kl. 19:00 aukas Fim 11/4 kl. 19:00 10.k Fös 10/5 kl. 19:00 Sun 3/3 kl. 19:00 3.k Lau 13/4 kl. 19:00 aukas Lau 11/5 kl. 19:00 Þri 5/3 kl. 19:00 4.k Sun 14/4 kl. 19:00 11.k Sun 12/5 kl. 13:00 Mið 6/3 kl. 19:00 5.k Fös 19/4 kl. 19:00 aukas Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Fim 7/3 kl. 19:00 aukas Lau 20/4 kl. 19:00 aukas Fim 16/5 kl. 19:00 Lau 9/3 kl. 19:00 6.k Sun 21/4 kl. 19:00 12.k Fös 17/5 kl. 19:00 Sun 10/3 kl. 13:00 aukas Mið 24/4 kl. 19:00 Lau 18/5 kl. 19:00 Þri 12/3 kl. 19:00 aukas Fös 26/4 kl. 19:00 aukas Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Mið 13/3 kl. 19:00 7.k Lau 27/4 kl. 19:00 Fim 23/5 kl. 19:00 Fim 14/3 kl. 19:00 aukas Sun 28/4 kl. 13:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 16/3 kl. 19:00 8.k Þri 30/4 kl. 19:00 aukas Fös 31/5 kl. 19:00 Sun 17/3 kl. 13:00 aukas Fim 2/5 kl. 19:00 aukas Lau 1/6 kl. 13:00 Mið 20/3 kl. 19:00 aukas Fös 3/5 kl. 19:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas Fös 22/3 kl. 19:00 9.k Lau 4/5 kl. 19:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas Lau 23/3 kl. 19:00 aukas Sun 5/5 kl. 13:00 Fim 6/6 kl. 19:00 Sun 24/3 kl. 19:00 aukas Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Fös 7/6 kl. 19:00 Þri 26/3 kl. 19:00 aukas Fim 9/5 kl. 14:00 Lau 8/6 kl. 19:00 Einn vinsælasti söngleikur heims, nú loks á Íslandi. Allt að seljast upp! Mýs og menn (Stóra sviðið) Fös 1/3 kl. 20:00 Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar komnar í sölu. Gullregn (Stóra sviðið) Fös 8/3 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 Mið 12/6 kl. 20:00 Sun 10/3 kl. 20:00 Þri 19/3 kl. 20:00 Fim 13/6 kl. 20:00 Fös 15/3 kl. 20:00 Fim 21/3 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00 Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré. Tengdó (Litla sviðið) Fös 1/3 kl. 20:00 7.k Fös 5/4 kl. 20:00 16.k Lau 27/4 kl. 20:00 23.k Mið 6/3 kl. 20:00 8.k Lau 6/4 kl. 20:00 17.k Fös 3/5 kl. 20:00 24.k Lau 9/3 kl. 20:00 9.k Sun 7/4 kl. 20:00 aukas Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Fim 14/3 kl. 20:00 10.k Lau 13/4 kl. 20:00 18.k Sun 5/5 kl. 20:00 Fös 15/3 kl. 20:00 aukas Sun 14/4 kl. 20:00 19.k Fös 10/5 kl. 20:00 Lau 16/3 kl. 20:00 11.k Fim 18/4 kl. 20:00 aukas Lau 11/5 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 12.k Fös 19/4 kl. 20:00 aukas Fim 16/5 kl. 20:00 Fim 21/3 kl. 20:00 13.k Lau 20/4 kl. 20:00 20.k Fös 17/5 kl. 20:00 Fös 22/3 kl. 20:00 14.k Sun 21/4 kl. 20:00 21.k Lau 18/5 kl. 20:00 Lau 23/3 kl. 20:00 aukas Mið 24/4 kl. 20:00 22.k Fim 23/5 kl. 20:00 Sun 24/3 kl. 20:00 15.k Fim 25/4 kl. 20:00 aukas Lau 25/5 kl. 20:00 Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur! Saga þjóðar (Litla sviðið) Fim 7/3 kl. 20:00 Fös 8/3 kl. 20:00 lokas Tónsjónleikur með Hundi í óskilum. Allra síðustu sýningar. Ormstunga (Nýja sviðið) Fös 1/3 kl. 20:00 Fim 7/3 kl. 20:00 Fim 14/3 kl. 20:00 Lau 2/3 kl. 20:00 Lau 9/3 kl. 20:00 Lau 16/3 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 20/3 kl. 20:00 Tungan rekin framan í þjóðararfinn á ný Nóttin nærist á deginum (Litla sviðið) Lau 2/3 kl. 20:00 Sun 3/3 kl. 20:00 Sun 10/3 kl. 20:00 Nýtt, íslenskt verk eftir Jón Atla Jónasson. Síðustu sýningar. Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið) Sun 3/3 kl. 13:00 Lau 9/3 kl. 13:00 Lau 9/3 kl. 15:00 lokas Leikhús með söng og dansi fyrir börn frá níu mánaða aldri. Síðustu sýningar. Ósóttar pantanir seldar daglega Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR Fyrirheitna landið (Stóra sviðið) Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 10.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 14/3 kl. 19:30 8.sýn Kraftmikið nýtt verðlaunaverk! Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 3/3 kl. 13:00 Sun 10/3 kl. 16:00 Sun 24/3 kl. 13:00 Sun 3/3 kl. 16:00 Sun 17/3 kl. 13:00 Sun 24/3 kl. 16:00 Sun 10/3 kl. 13:00 Sun 17/3 kl. 16:00 Eitt ástsælasta barnaleikrit á Íslandi! Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið ) Sun 3/3 kl. 20:30 Sun 10/3 kl. 20:30 Sun 17/3 kl. 20:30 Nýtt sýningatímabil! Miðasala í fullum gangi! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 2/3 kl. 13:30 Sun 3/3 kl. 15:00 Lau 9/3 kl. 16:30 Lau 2/3 kl. 15:00 Sun 3/3 kl. 16:30 Sun 10/3 kl. 13:00 Lau 2/3 kl. 16:30 Lau 9/3 kl. 13:30 Sun 10/3 kl. 15:00 Sun 3/3 kl. 13:30 Lau 9/3 kl. 15:00 Sun 10/3 kl. 16:30 Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Karma fyrir fugla (Kassinn) Fös 1/3 kl. 19:30 Frumsýning Sun 3/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 10/3 kl. 19:30 6.sýn Fyrsta leikrit Kristínar Eiríksdóttur og Karí Óskar Grétudóttur Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 1/3 kl. 20:00 Fös 1/3 kl. 23:00 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Segðu mér satt (Kúlan) Mið 6/3 kl. 19:30 Fim 7/3 kl. 19:30 Leikfélagið Geirfugl sýnir Homo Erectus - pörupiltar standa upp (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 2/3 kl. 21:00 Lau 16/3 kl. 21:00 Lau 23/3 kl. 21:00 Pörupiltar eru mættir aftur!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.