Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.03.2013, Side 81

Fréttatíminn - 01.03.2013, Side 81
Helgin 1.-3. mars 2013 BROT AF HEIMINUM Í FERMINGARGJÖF ÍS LE N SK A SI A. IS IC E 6 28 90 0 2/ 13 Gjafabréf Icelandair gildir sem greiðsla upp í flugfar til allra áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Þú velur upphæðina. Gjafabréf Icelandair gildir í tvö ár frá útgáfudegi. Vertu með okkur + Pantaðu fermingargjöfina á www.icelandair.is  Ferming 2013 Skúli Sigurður ÓlaFSSon, SÓknarpreStur í keFlavíkurkirkju Hlakkar til að ferma soninn heima. Þetta er líka þægilegt því þá er ég ekki að hitta einhvern ókunn- ugan eða neitt svoleiðis. Þannig að mér finnst betra að hafa hann frek- ar en ekki, það er engin spurning.“ Spjallið berst að fermingargjöf- unum og Óli segist vonast til þess að fá tölvu frá foreldrum sínum. Pabbi hans er fljótur að grípa inn í og bætir við að hann fái einnig námskeið í notkun tölvunnar. Pabb- anum er greinilega umhugað um æskuna og aukna notkun þeirra á tölvum og þann tíma sem fylgir notkuninni. „Krakkar sem nota tölvur í dag eru bara neytendur. Það er mikilvægt að þeir læri að búa til eitthvað sem aðrir geta horft á notað. Það er mikilvægt að nýta tímann vel í tölvunni í stað þess að horfa bara á bíómyndir eða eitt- hvað slíkt.“ Skúli segir að það hafi komið svolítið á óvart hvernig það sé að hafa drenginn sinn í þessum hópi fermingarbarna. „Ég man að ég átti frekar erfitt með mig þegar ég var að ganga til fermingarfræðslu hjá föður mínum sem þótti nú mjög skemmtilegur. Margir eiga góðar minningar úr fermingarfræðslunni með honum og það á ég svo sem líka. En mér fannst þetta allt hálf óþægileg skörun á opinberu lífi og einkalífinu. En Óli minn er alveg sallarólegur. Hann fer hreinlega á kostum í leikþáttum sem eru hluti fræðslunnar og virðist ekki finna fyrir því á nokkurn hátt að þetta sé eitthvað óþægilegt. Kannski er ég svona skilningsríkur því ég upplifði þetta með föður mínum á sínum tíma en þetta er gaman. Ég er í rauninni alsæll, það er mjög ánægjulegt að fylgjast með honum. Fermast ekki frá Keflavíkurkirkju Að mati Skúla á fermingarmessan að vera hátíðleg en líka létt og skemmtileg og aldrei lengri en klukkustund. Það leynir sér ekki þegar messugestir komi út úr kirkjunni hversu mikil hamingja ríki þar. „Það er svo mikil birta og bros á þessum degi eins og það á auðvitað að vera. Margir eiga minningar af athöfnum sem ætluðu engan endi að taka og allir voru orðnir slæmir í bakinu og ör- þreyttir á prestinum, organistanum og kórnum. Það eru auðvitað ekki góð skilaboð frá kirkjunni til þessa hóps. Við reynum að hafa ferm- ingarmessurnar stuttar og hafa það þannig að fólk fermist ekki frá Keflavíkurkirkju, eins og stundum er sagt. Það er að segja, fermist og komi aldrei aftur.“ Hann segir þetta allt vera hluta af þeirri stefnu sem sé að ryðja sér til rúms innan þjóðkirkjunnar, að bæta þá þjónustu sem þar er veitt. Samkeppnin og samanburðurinn geri kirkjunni aðeins gott þegar til lengri tíma er litið en auðvitað verði alltaf að leitast við að gera betur. Bjarni Pétur Jónsson ritstjorn@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.