Fréttatíminn - 13.01.2012, Qupperneq 14
MATSEÐILL
LEIKHÚS-
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Fo r r é t t u r
Aða l r é t t i r
Laxatvenna –
reyktur og grafinn lax
Bleikja & humar
með hollandaise sósu
E f t i r r é t t u r
Þriggja rétta máltíð á 4.900 kr.
Jack Daniel’s
súkkulaðikaka
Djúpsteiktur ís og súkkulaði-
hjúpuð jarðarber
Brasserað fennell, kartöflu-
stappa og ostrusveppir
eða...
Grillað Lambafille
Með rófutvennu,
sveppakartöflum
og bláberja anís kjötsósu
Noregs vegna Dyflinnarreglugerðar-
innar sem kveður á um að mál flótta-
manna skuli leyst þar sem þeir sækja
fyrst um hæli. Þetta staðfestir Árni
Helgason, lögmaður Mouhamde Lo,
sem bíður niðurstöðu innanríkis-
ráðuneytisins vegna kæru sem ligg-
ur fyrir vegna niðurstöðu Útlend-
ingastofnunar.
Mouhamde í felum á Íslandi
Frá því að ákvörðun íslenskra yfir-
valda lá fyrir í júlí í fyrra hefur Mou-
hamde verið í felum. Hann flytur
reglulega á milli fimm til sex vina. Lætur lítið fyrir
sér fara en reynir þó að kynnast fólki og eignast vini.
Margir þekkja stöðu Mouhamde því í vikunni var
stofnuð Facebook-síða honum til stuðnings. Þar eru
fjölmargar baráttukveðjur og 134 hafa sett svokallað
„like“ á síðuna.
Mál Mouhamdes var áberandi í fjölmiðlum í fyrra.
Hann sat í rúman hálfan mánuð í fangelsi frá því að
hann var tekinn á Keflavíkurflugvelli með falska
vegabréfið í desember 2010. Svo bjó hann á Fitjum í
Reykjanesbæ fram að ákvörðuninni um að vísa honum
úr landi. Herjað var á Ögmund Jónasson innanríkis-
ráðherra að hnekkja ákvörðun Útlendingastofnunar,
sem ekki hafði tekið mál hans efnislega fyrir þar sem
máli hans var ekki lokið í Noregi. Ögmundur neitaði.
Um fimmtíu manns mótmæltu í júlílok ákvörðun
Útlendingastofnunar. Fólkið stóð fyrir utan stjórnar-
ráðshúsið og voru mótmælin friðsöm. Meðlimir No
Borders stóðu fyrir mótmælunum. Síðan þá hefur lítið
gerst í máli Mouhamde og hann verið í felum frá 8.
júlí í fyrra.
„Í rauninni er næsta skref aðeins það að almenn-
ingur leggist á árarnar með okkur og kalli eftir því að
mál Mouhamdes verði skoðað hér á landi,“ segir Eva.
Ævintýraleg ævi
Saga Mouhamde er ævintýraleg. Hún er hreinlega
lyginni líkust í eyrum Íslendings, sem aldrei hefur
stigið fæti inn í eyðimörk, hvað þá klappað kamel-
dýri utan dýragarða eða hitt mann frá Máritaníu í
Vestur-Afríku. En þar ólst hann upp. Hann bjó ásamt
foreldrum sínum og systur í tjaldi í eyðimörkinni og
gætti kameldýra og brynnti. „Við fengum aldrei laun,
heldur aðeins mat,“ segir Mouhamde.
Eva grípur inn í og lýsir því að vinnuálag foreldr-
anna hafi erfst til barnanna. Líf þeirra systkina hafi
því breyst mjög til
hins verra þegar þau
voru tvö um byrðina
sem þau báru fjögur
áður. Hann hafi séð
um 25 kameldýr og
þurft að draga 900
lítra vatns daglega
upp úr brunni fyrir
dýrin.
Þegar foreldrar
hans voru látnir, lýsir
Mouhamde því með
hjálp túlksins, hvern-
ig hann og systir
hans fóru að íhuga
að flýja. Þau ákváðu
að systir hans færi
fyrst, sem hún gerði, en þau töldu
nauðsynlegt að hún sem kona færi
fyrst; þær eigi minni möguleika og
fá ekki vinnu. Þegar eigandi kamel-
dýrahjarðarinnar komst að því að
eitt dýrið og systir hans voru horfin
barði hann Mouhamde og hótaði
lífláti en í kjölfarið tókst honum að
flýja.
Á opinni fleytu til Spánar
Atburðarás flóttans og aðdragandi
hans er óljós vegna tungumála-
örðugleika. Mouhamde segir frá
því að hann hafi stolið kameldýri og selt veitinga-
húsaeiganda í borginni Nouadhibou. „Systir mín býr
núna í Senegal. Hún er nítján til tuttugu ára og vinnur
nú við brauðgerð í Senegal og nýtur verndar ,“ segir
Mouhamde, sem sjálfur veit ekki nákvæmlega hve-
nær hann er fæddur. Hann hélt í fyrsta skipti upp á
afmæli sitt um miðjan desember, þá sem 23. afmælis-
daginn. Hann segir að þau systkinin tali saman í
gegnum Skype.
Fyrir peninginn sem honum áskotnaðist vegna
sölu kameldýrsins keypti hann far með opinni fleytu
til Spánar. Um 25 voru í bátnum og fimm létust á sex
daga siglingunni milli landanna. Þeir þornuðu upp
eftir að hafa ælt lungum og lifur í veltingnum.
Á Spáni ferðaðist hann til spænsku borgarinnar
Valensíu, dvalarleyfis- og vegabréfslaus. Þar fékk
hann vinnu við að tína appelsínur í þrjá mánuði. Þegar
vertíðinni lauk var enga vinnu að fá og hann ákvað því
að fara til höfuðborgar Þýskalands. Haukur lýsir því
hvernig Mouhamde bjó á aðal lestarstöð Berlínar um
hríð. Hann hafi engan þekkt en fólk hafi gefið honum
smápeninga. Á þessum tíma hafi ekki hvarflað að
honum að hann mætti ekki ferðast án skilríkja eða að
hann væri ólöglegur á einhvern hátt. Hann hafi bara
viljað frelsið og að vinna.
Mouhamde segir hins vegar að Berlín hafi ekki
uppfyllt draumana og hann því ákveðið að fara til
Oslóar. „Ég var tekinn af norsku lögreglunni á braut-
arstöðinni,“ segir hann á volof sem þá er túlkað yfir á
ensku. „Ég var settur í flóttamannabúðir og vissi ekki
einu sinni hvað það var á þeim tíma,“ lýsir hann og svo
því hvernig hann hafi nurlað saman fyrir fari og stefnt
á að fara til Kanada. Hvers vegna Kanada? Hvers
vegna Ósló? Blaðamaður áttar sig ekki á því, nema að
Mouhamde er og var alltaf að leita tækifæra – betra
lífs. Og þótt hann hafi ekki ætlað sér að búa hér vill
hann gjarna búa hér í
framtíðinni, því hér á
hann orðið vini. Hér
bíður hans vinna, fái
hann dvalarleyfi. Hér
sér hann tækifæri. „Ég
sé ekki að ég geti búið
annars staðar,“ segir
hann, „mig langar í ís-
lenskan ríkisborgara-
rétt. Mig langar að
njóta réttinda. Ég hef
verið flóttamaður í of
langan tíma.“
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Útlendingastofnun
Tíu hverfa ár
hvert
Síðustu ár hafa um það bil tíu manns
horfið ár hvert eða dregið umsókn
sína um hæli sem flóttamenn hér
á landi til baka. Mjög misjafnt er
hvort umsækjendurnir láti yfirvöld
vita fari þeir úr landi, samkvæmt
upplýsingum Útlendingastofnunar.
Sjá má á yfirliti Útlendingastofn-
unar um umsóknir um hæli hversu
margir flóttamenn hverfa úr augsýn
yfirvalda eða draga umsókn sína
til baka. Árið 2002 drógu 56 af 117
umsækjendum umsókn sína til baka
eða hurfu sem er rétt um helmingur.
Aldrei hafa fleiri sótt um hæli en það
ár. Síðustu ár hafa ekki svo margir
sótt um hæli hér á landi. Í fyrra voru
það 51. Ellefu þeirra voru sendir
til baka. Ellefu hurfu eða drógu
umsókn sína til baka. Búast má við
að Mouhamde Lo sé talinn til þeirra
sem ákveðið var að senda til baka
en hvarf. Hann býr nú til skiptis hjá
nokkrum vinum sínum. - gag
Verjandinn
Mouhamde býst
ekki við sanngirni
í Noregi
Árni Helgason var skipaður verjandi flótta-
mannsins Mouhamde Lo. Hann heyrir af
honum öðru hvoru þótt Mouhamde fari
huldu höfði. „Hann var mjög ósáttur við
það hvernig málið fór hér á landi. Hann
telur sig ekki eiga von á sanngjarnri
meðferð í Noregi,“ segir Árni sem kærði
ákvörðun Útlendingastofnunar um að
senda Mouhamde Lo aftur til Noregs til
innanríkisráðuneytisins. Árni krafðist að
Mouhamde fengi að vera hér á meðan
málið væri til meðferðar hjá ráðuneytinu.
Það fékkst ekki í gegn.
Árni segir að Dyflinnarreglugerðin fríi
stjórnvöld ábyrgð á flóttamönnum sem
hafi sótt um hæli í öðrum aðilarríkjum.
„Það má líkja þessu við þegar póstur
kemur á rangt heimilisfang og er skilað,“
segir Árni og telur að stjórnvöld verði að
skoða mál hvers og eins í kjölinn. Hann
bíði enn eftir því hvernig ráðuneytið svari
kærunni. - gag
Segir ráðherra hafa lofað að skoða málið
Eva Hauksdóttir segir
frá fundi við innanríkis-
ráðherra á vefsíðu sinni
Eva Hauksdóttir, velunnari Mouhamde Lo, spyr á vefsíðu sinni, pistillinn.
is, hvernig eigi að útskýra fyrir Mohamde að ráðherra verði að virða
leikreglur lýðskrumsins og geti ekki beitt valdi sínu til að fylgja samvisku
sinni nema eiga það á hættu að missa völd, sem hann geti hvort sem er
ekki beitt til að fylgja samvisku sinni? Hún lýsir þannig fundi með Ög-
mundi Jónassyni, innanríkisráðherra, sem hún átti um miðjan nóvember:
„[Ögmundur] var mjög skilningsríkur og sagðist hafa áhyggjur af
Mohammed. Ég benti honum á að takmarkað gagn væri af áhyggjum
sem ekki leiddu til aðgerða og að það að innanríkisráðherra Íslands hefði
samúð með honum, yrði Mohammed lítil huggun, svona rétt á meðan
verið væri að berja undan honum eistun. Honum fannst ég dómhörð,“
ritaði hún.
„Þótt [Ögmundur] virðist líta á Dyflinnarákvæðið sem einhverskonar
helgidóm, sagðist hann vera tilbúinn til að skoða málið. Ég er búin að
skrifa honum oft síðan og spyrja um gang málsins en hann hefur ekki
svarað þeim erindum. Þann 28. desember barst mér þó loksins svar. Það
eina sem hann hefur um málið að segja er að það sé „í athugun“,“ ritar
hún.
„Næstu vikur spurði hann [Mouhamde] 3-4 sinnum í viku hvort ég hefði
heyrt frá ráðherranum. Í fyrstu vongóður en síðar í efasemdatón. Nú er
hann hættur að spyrja..“ - gag
Eva Hauksdóttir segir að Ögmundur hafi sagst tilbúinn
að skoða málið á fundi þeirra um miðjan nóvember.
Hins vegar fái hún nú engin viðbrögð önnur en orðin
tvö; „í athugun“.
Umsóknir um
hæli frá árunum
1996-2010
736 – Fjöldi umsókna
185 – Drógu til baka/horfnir
258 – Endursendir
293 – Efnismeðferð
208 – Synjað
14 úttekt Helgin 13.-15. janúar 2012