Fréttatíminn - 13.01.2012, Side 21
Þegar uppbyggingaráform koma
upp í miðbænum er oft spurt hvers
vegna hlífum við ekki miðbænum
og byggjum annarsstaðar? Skipu-
lag og byggðarmynstur miðbæjar-
ins og tengsl hans við önnur hverfi
og umhverfi borgarinnar veldur
því að sjálfsagt er að byggja á því
sem fyrir er og skapa enn fjöl-
breyttara og auðugðra mannlíf en
það er nú.
Borgarhús
Til að geta byggt þétt er ekki hægt
að nota allar húsagerðir. Stakstæð
einbýlishús henta illa þar sem
byggja á þétt. Klassískt borgarhús
er þriggja til sjö hæða sem geta
staðið sem eining í randbyggð.
Borgarhús hefur yfirleitt tvær
hliðar: Götuhlið og garðhlið. Götu-
megin er líf bæjarins en garðmeg-
in er friður og skjól frá skarkala
götunar. Við fjölfarnar götur er
verslun eða önnur þjónustustarfs-
semi á jarðhæð og íbúðir á efri
hæðum. Í miðborg Reykjavíkur
eru mörg góð dæmi um borgar-
hús, sérsaklega við Laugaveginn.
Ef einhver hús einkenna Lauga-
veginn þá eru það þessi hús.
Þegar verslun hvarf úr miðbæn-
um var talið að fjölgun bílastæða
myndi rétta hlut miðbæjarins á ný.
En þetta hafði ekki tilætluð áhrif.
Fjölbreytt verslunar- og þjónustu-
starfsemi á enn undir högg að
sækja í miðbænum. Bílastæði
virðast ekki skipta höfuðmáli. Það
sem skiptir mestu máli til að auðga
mannlífið í miðbænum er að skapa
fallegt og heillandi umhverfi með
fjölbreyttri starfsemi. Fólkið mun
koma sér á staðinn þótt að það
skorti bílastæði. Það mun nýta sér
aðra ferðamáta, koma gangandi,
á hjóli, í strætó, ferðast fleira í bíl
eða leggja bílnum lengra í burtu.
Miðborg höfuðborgarinnar,
Kvosin og nánasta umhverfi
hennar, er Reykvíkingum og öllum
landsmönnum hjartfólgin. Hér er
Alþingi, Dómkirkjan, Hæstiréttur
og aðalstjórnsýsla landsins stað-
sett. Hér er líka eini vísir að borg
í landinu.
Í miðborginni birtist þrá um að
eiga glæsta fortíð byggja falleg hús
í gömlum stíl. Reykjavík er ung
borg og þarf að hafa svigrúm til að
þroskast, einnig miðborgin. Við
þurfum ekki að hræðast samtím-
ann. Nýtt og gamalt getur alveg
átt samleið. Við þurfum að vera
opin gagnvart nýjum hugmyndum
í miðbænum. Það hafa sjálfsagt
aldrei verið jafnmargir á Íslandi
sem hafa menntun og getu til að
skapa fallega og góða hluti og nú.
Við þurfum að nota þessa krafta
og skoða málið frá fleiri sjónar-
hornum en við gerum í dag.
Helgi B. Thóroddsen
arkitekt
RC
RCRC
OpiöáEópýádi
ipáþé
www.id.i
jóiiýjáöid
Njóttu lífsins með
heilbrigðum lífsstíl
KEA-skyr er frábær hollustuvara sem einungis er unnin úr náttúrulegum hráefnum.
KEA-skyr er einstaklega næringarríkt, það inniheldur hágæðaprótein og er fitulaust.
KEA-skyr er góður kostur fyrir alla þá sem hafa hollustuna í fyrirrúmi og vilja lifa á
heilsusamlegan hátt.
Fegurð - Hreysti - Hollusta Ný
bragðtegund
.
Karamella!