Fréttatíminn - 13.01.2012, Blaðsíða 24
Strákarnir okkar
Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar sinn fyrsta leik á Evrópumótinu í handbolta í Vrsac í
Serbíu á mánudaginn en þá mætir liðið Króatíu. Í sterkum D-riðli eru auk þess Noregur og Slóvenía.
Á síðasta Evrópumóti í Austurríki hafnaði íslenska liðið í þriðja sæti eftir sigur á Pólverjum. Nú er
liðið án Ólafs Stefánssonar, sem gaf ekki kost á sér vegna meiðsla, og því rennir Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari nokkuð blint í sjóinn. Liðið spilaði ágætlega á æfingamóti í Danmörku
um síðustu helgi og vann meðal annars Slóvena en síðasti leikur fyrir mótið fer fram í kvöld í
Laugardalshöll þar sem liðið mætir Finnum. Fréttatíminn fékk Henry Birgi Gunnarsson, íþrótta-
fréttamann á Fréttablaðinu, til að skoða á hvaða mönnum mun helst mæða í íslenska liðinu og
hvaða leikmenn í hinum þremur liðunum gætu reynst strákunum okkar skeinuhættastir.
Aron
Pálmarsson
Henry segir: „Þar sem kóngurinn Ólafur
Stefánsson verður ekki með í fyrsta
skipti í 19 ár þarfnast Ísland þess að
prinsinn Aron stígi upp. Hann vill losna
við „efnilega“ stimpilinn og fær nú kjörið
tækifæri til þess. Sviðið er hans.“
Björgvin Páll
Gústavsson
Henry segir: „Ísland komst ekki á stall
með þeim allra bestu fyrr en Björgvin
varð aðalmarkvörður landsliðsins. Án
alvörumarkvörslu fer Ísland ekki langt.
Björgvin þarf því að vera í sama formi
og á síðustu mótum svo Ísland geti gert
eitthvað í Serbíu.“
Ingimundur
Ingimundarson
Henry segir: „Vörn vinnur leiki. Með vörn
kemur markvarsla. Klisjur en sannar þó.
Vörnin verður að halda saman í Serbíu
og þar er Diddi aðalmaðurinn. Hann þarf
að eiga verulega gott mót.“
hefja leik
á mánudag
Uros Zorman
Slóveníu
Henry segir: „Heilinn í sóknar-
leik Slóvena; 31 árs, reynslumikill
leikmaður sem spilar með Þóri
Ólafssyni hjá Kielce. Gríðarlega út-
sjónarsamur leikmaður sem þarf að
hafa góðar gætur á.“
Domagoj Duvnjak
Króatíu
Henry segir: „Þessi 23 ára strákur
er nýkrýndur besti handbolta-
maður Króata þar sem hann sló
meðal annars Balic við. Spilar með
Hamburg og gríðarlega skeinu-
hættur.“
Igor Vori
Króatíu
Henry segir: „Talinn besti línumaður
heims af mörgum; 203 sentimetrar
og 114 kíló. Nánast ómögulegt
að stöðva hann. Einnig frábær
varnarmaður. Spilar með Þýska-
landsmeisturum Hamburg.“
Bjarte Myrhol
Noregi
Henry segir: „Frábær línu- og
varnarmaður sem spilar undir
stjórn Guðmundar Guðmunds-
sonar hjá Rhein-Neckar Löwen.
Hefur verið að spila frábærlega þó
svo hann hafi verið að berjast við
krabbamein.“
Håvard Tvedten
Noregi
Henry segir: „Hinn norski Logi
Geirsson. Gríðarlega hæfileika-
ríkur hornamaður sem spilar fyrir
áhorfendur. Allt snýst um snúninga
og skot fyrir aftan bak. Skemmti-
legur strákur.“
Christoffer Rambo
Noregi
Henry segir: „Flottasta nafnið
í handboltaheiminum; 22 ára
örvhent skytta sem átti flotta
spretti á HM í Svíþjóð þar sem hann
meðal annars skaut Þýskaland í kaf.
Verður áhugavert að fylgjast með
honum á EM.“
24 handbolti Helgin 13.-15. janúar 2012