Fréttatíminn - 13.01.2012, Qupperneq 34
34 fréttir vikunnar Helgin 13.-15. janúar 2012
Óvissa um nýtingu Vaðla-
heiðarganga
Mikil óvissa er um hversu margir komi
til með að nýta sér Vaðlaheiðargöng,
að mati IFS-greiningar. Meðal annars er
bent á að veggjaldið sé mun hærra en
sá rekstrarkostnaður sem sparast við að
aka göngin.
Stefnir í sameiningu Garða-
bæjar og Álftaness
Innanríkisráðherra vonast til þess að
samkomulag náist fyrir vorið um sam-
einingu Álftaness og Garðabæjar. Stærstu
ágreiningsefnin hafi verið útkljáð.
Tugmilljóna króna tap vegna
rafmagnsleysis
Vegna rafmagnsleysis stöðvaðist fram-
leiðsla hjá járnblendiverksmiðju Elkem og
álveri Norðuráls á Grundartanga á þriðju-
dagskvöld og aðfararnótt miðvikudags.
Talið er að tugmilljóna tap hafi orðið.
Lagst gegn aukalandsfundi
Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar
leggst gegn því að haldinn verði auka-
landsfundur í vor. Málinu var skotið til
flokksstjórnar sem tekur málið fyrir í lok
janúar.
Hætt við að rukka þroska-
hamlaða
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að bakka
með ákvörðun sína um að innheimta
fæðisgjald af þroskahömluðum starfs-
mönnum á Bjarkarási og Lækjarási..
Slæm vika
fyrir Jens Kjartansson
lýtalækni
Góð vika
fyrir Halldór Halldórsson
snjóbrettamann
10
ár voru liðin í vikunni frá
því að hinar umdeildu
fangabúðir Bandaríkjanna
í Guantanamo á Kúbu voru
opnaðar.
52
konur ætla í mál við lýta-
lækninn Jens Kjartansson
vegna PIP-sílikonpúðanna
sem hann flutti inn og setti í
konurnar.
40
prósent er munurinn á
hæstu og lægstu leik-
skólagjöldum hjá fimmtán
stærstu sveitarfélögum
landsins samkvæmt könnun
ASÍ. Ísafjarðarbær er með
hæstu gjöldin en Reykjavík
er með þau lægstu.
Í frí með málsókn yfir höfði sér
Síðustu dagar hljóta að vera með þeim allra verstu í lífi Jens
Kjartanssonar lýtalæknis. Vonda veðrið í kringum hina gölluðu
PIP sílikonpúða, sem hann græddi í meira en fjögur hundruð pör
af brjóstum, varð að blindhríð í vikunni og Jens sá sér þann kost
vænstan að biðja um leyfi
frá störfum sínum sem
yfirmaður lýtalæknadeild-
ar Landspítalans. Rúmlega
fimmtíu konur hafa boðað
málsókn á hendur Jens
vegna sviknu púðanna.
Að auki hafa heilbrigðis-
ráðherra og landlæknir
fært til bókar að hann
megi búast við endur-
kröfu vegna fyrirsjáanlegs
kostnaðar ríkisins við að
standa vörð um heilsu
kvenna með sílikonfyll-
ingar frá PIP.
1
vikan í tölum
Bjart lið, bilað nafn
Guðmundur Steingrímsson og Heiða Helgadóttir
tilkynntu fyrir síðustu helgi að nýja stjórnmálaaflið
sem þau standa að eigi að heita Björt framtíð.
Nánast allir á Facebook þurftu að hafa skoðun á
nafngiftinni, sem féll í fremur grýttan jarðveg.
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Finnst að „Björt framtíð“ væri gott nafn á
einkarekna veðurstofu.
Óli Gneisti Sóleyjarson
Nógu hallærislegt til þess að vera flott? Nei. Bara
alveg rosalega hallærislegt.
Lára Hanna Einarsdóttir
„Björt framtíð“. Hljómar eins og frasi sem maður
skrifaði í minningabækur í barnaskóla. Það er eitt-
hvað tragískt við þetta...
Einar Skulason
Skál fyrir Bjartri framtíð.
Andri Þór Sturluson
Ég get samvisku minnar vegna ekki kosið flokk
sem heitir Björt framtíð.
Ekki frekar en ég gæti kosið Snúllubossana,
Krúttipúttin eða Bumbubúaflokkinn.
Guðmundur Steingrímsson
Er þingmaður Bjartrar framtíðar!
Gnarr og stóra snjóhneykslið
Jón Gnarr borgarstjóri mætti í Kastljósið til
Sigmars Guðmundssonar á miðvikudagskvöld og
þurfti meðal annars að svara fyrir brotin bein í
um 70 manns og skort á sandi og salti á götum
Reykjavíkur. Óhætt er að segja að viðtalið hafi
vakið viðbrögð á Facebook og voru mjög skiptar
skoðanir á frammistöðu hans:
Stefán Pálsson
Í landi þar sem umhverfisráðherrar eru skamm-
aðir fyrir að ísbirnir séu mannýg villidýr, er ekkert
óeðlilegt þótt borgarstjórar séu skammaðir fyrir
að það snjói.
Ómar R. Valdimarsson
Sé ekki betur en að Jón Gnarr sé í kvöld, í fyrsta
skipti, meðhöndlaður eins og stjórnmálamaður en
ekki brandarakarl, í sjónvarpsviðtali. Simmi í Kast-
ljósinu fær plús í kladdann...
Orri Björnsson
Ég er ekki kommúnisti, en eftir að hafa horft á
borgarstjórann í Reykjavík í Katljósi. Þá verð ég
að segja að ég er bara nokkuð sáttur við bæjar-
stjórann í Hafnarfirði. Þó hann sé náttúrlega bara
gamalt kommagrey.
Gunnar Í Krossinum Þorsteinsson
Við getum tekið okkar ágæta borgarstjóra og
flokkinn hans okkur til fyrirmyndar. Þeir tala aldrei
illa um nokkurn mann.
HeituStu kolin á
Veturinn nú er harðari en um langt árabil. Mikill snjór er á öllu landinu, ófærð víða og hálka.
Í höfuðborginni hefur snjóþekja verið frá því í nóvemberlok. Víða eiga ökumenn í erfið-
leikum og gangandi vegfarendur þurfa að klöngrast yfir klakaruðninga. Það er því full þörf
á snjóplógum. Þessi auðveldaði umferð í Skipholtinu í Reykjavík. Ljósmynd/Hari
dagur þar sem konur gegndu embætti forsætisráðherra, forseta
Alþingis, fjármálaráðherra og forseta Hæstaréttar á sama tíma.
Það gerðist 31. desember 2011 þegar Oddný G. Harðardóttir
var skipuð fjármálaráðherra. Það var jafnframt síðasti dagur
Ingibjargar Benediktsdóttur sem forseta Hæstaréttar.
Raðstela flatskjám
Rúða var brotin og farið inn í hús-
næði Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrr
í vikunni. Rifinn var niður 46 tommu
flatskjár sem hafði verið rammlega festur
á vegg. Þetta er í annað sinn á tæpum
mánuði sem rúða er brotin og stórum
flatskjá stolið af stofnuninni.
Ward aðalmálflytjandi í
Icesave
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að ráða
breska lögfræðinginn Tim Ward til að
vera aðalmálflytjandi í Icesave-málinu
fyrir EFTA-dómstólnum.
Lárus og Guðmundur neita sök
Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri
Glitnis, og Guðmundur Hjaltason, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
bankans, neituðu báðir sök í máli sérstaks
saksóknara á hendur þeim.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Rýmum fyrir nýjum vörum.
Yfir 40 tegundir af flísum.
Mikil verðlækkun,
verð frá kr. 900 pr m2.
Einnig útlitsgallaðar vörur
á niðursettu verði!
Rýmingarsala
á flísum og fleiru
Gott verð fyrir alla
alltaf – í 10 ár
Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - benni@benni.is - www.benni.is
Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333
NJARÐARBRAUT 9 - REYK
JAN
ES
BÆ
FIS
KIS
LÓÐ
3 - REYKJAVÍK
Boðið á HM í Ósló
Akureyringurinn Halldór Helgason hefur fengið sérstakt boð
um taka þátt í heimsmeistaramótinu á snjóbrettum, sem
fer fram í Ósló eftir mánuð samkvæmt heimildum vísis.is.
Halldór er einn af fremstu snjóbrettamönnum heims, er
atvinnumaður í íþróttinni og er eftir-
sóttur af framleiðendum snjó-
brettakvikmynda eins og Frétta-
tíminn sagði frá í fyrra. Bróðir
Halldórs, Eiríkur, hefur snjóbretta-
mennsku að lífsviðurværi. Saman
halda þeir úti síðunni helgasons.
com og hafa hannað snjó-
bretti undir merkjunum
7-9-13 og Lobster og líka
húfur undir merkinu
Hoppipolla. Vikurnar
geta varla verið betri
en þegar menn vita
að framundan er
keppni við þá
allra bestu.