Fréttatíminn - 13.01.2012, Blaðsíða 55
Helgin 13.-15. janúar 2012 skólar og nám 55
Heimilisiðnaðarskólinn
býður úrval námskeiða
Kennum fólki að framleiða fallega og nytsama
hluti með rætur í þjóðlegum menningararfi
• Þjóðbúningar kvenna,
barna og karla
• Skyrtu- og svuntusaumur
• Víravirki
• Baldýring
• Sauðskinnsskór
• Jurtalitun
• Knipl
• Orkering
• Útsaumur
• Harðangur
• Skattering
• Spjaldvefnaður
• Miðaldakjóll
• Tóvinna
• Spuni
• Vattarsaumur
• Vefnaður – sjöl úr hör og ullarkrep
• Dúkavefnaður
• Svuntuvefnaður
• Myndvefnaður
• Prjón og hekl fyrir örvhenta
• Prjón fyrir byrjendur
• Prjónalæsi
• Dúkaprjón
• Englaprjón
• Dóminó prjón
• Prjónaðir vettlingar
• Hekl fyrir byrjendur
• Heklaðir lopavettlingar
• Leðursaumur
• Skírnakjólar
• Rússneskt hekl - grunnnámskeið
• Rússneskt hekl - Handstúkur
• Rússneskt hekl - Sjöl
• Rússneskt hekl - Hetta í miðaldastíl
• Rússneskt hekl - Lopapeysa
• Tauþrykk
• Lissugerð
• Blautþæfing
Heimilisiðnaðarfélag Íslands | Nethylur 2e | 110 Reykjavík | Sími 551-5500 | www.heimilisidnadur.is
Nýtt námskeið
Kvíðastjórnun fyrir unglinga
Á eitthvað af eftirtöldu við um unglinginn þinn?
•Hefur stöðugar áhyggjur af margvíslegum hlutum
•Reynir að forðast aðstæður sem eru kvíðavekjandi
•Áhyggjurnar hafa áhrif á daglegt líf hans eða fjölskyldunnar
•Vill helst vera nálægt foreldrum eða fjölskyldu flestum stundum
Kvíðameðferðarstöðin (KMS) stendur fyrir 9 skipta námskeiði fyrir
unglinga sem glíma við almennan kvíða. Farið verður í leiðir til að
takast á við kvíða, áhyggjur og óöryggi með aðferðum hugrænn-
ar atferlismeðferðar. Foreldrum er boðin fræðsla um kvíða og
leiðir til að aðstoða unglinginn sinn við það að takast á við
kvíðann.
Námskeiðið hefst 3. febrúar og verður haldið á föstudögum
frá kl. 15-17. Áður en námskeiðið hefst munu stjórnendur
námskeiðs hitta sérhvern þátttakanda ásamt foreldri í greiningar-
viðtali þar sem vandinn verður kortlagður og mat lagt á hvort
námskeiðið gagnist viðkomandi eða hvort önnur úrræði henti
betur. Atli Viðar Bragason og Sigurbjörg Jóna Ludvigsdóttir
sálfræðingar munu stýra námskeiðinu.
Hægt er að skrá sig í síma 534-0110 eða með tölvupósti á kms@kms.is
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag námskeiðs má finna á www.kms.is
Landsmennt er fræðslusjóður
Samtaka atvinnulífsins og verkafólks
á landsbyggðinni
Verkalýðsfélögin sjá um
afgreiðslu einstaklingsstyrkja
í umboði sjóðsins
Sjóðurinn styrkir starfsmenntun
í fyrirtækjum
Ofanleiti 2, 5. hæð (A-hús) • 103 Reykjavík • sími: 599 1450 • fax: 599 1401
www.landsmennt.is • landsmennt@landsmennt.is
Menntun skapar tækifæri
- kynntu þér möguleikana
Á vormisseri er eins og endra-nær fjölbreytt úrval nám-skeiða hjá Endurmenntun
Háskóla Íslands og ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Alls eru hátt í 200 námskeið á dag-
skrá enda Endurmenntun leiðandi
á námskeiðsmarkaði.
Fróðleikur og skemmtun
“Menningarnámskeið Endur-
menntunar hafa verið afar vinsæl
í fjölda ára og á hverju misseri er
fjölbreytt framboð þar sem fróð-
leikur og skemmtun fléttast sam-
an. Á vormisseri eins og oft áður
eru nokkur námskeið sem tengjast
framandi stöðum og ferðalögum
þar sem kennarar fara með þátt-
takendur í heillandi og spennandi
ferðalög í kennslustofunni,” segir
Thelma Jónsdóttir, markaðs- og
kynningarstjóri Endurmenntunar
Háskóla Íslands. Að þessu sinni má
nefna námskeiðin: Kína: Menning,
land og saga (<http://www.endur-
menntun.hi.is/Namsframbod/
Namskeid/Menning/Nanarum-
namskeid/25V12>) og Istanbúl og
Tyrkland.
Af innlendum vettvangi eru
námskeiðin Jarðfræði Reykjaness
(<http://www.endurmenntun.hi.is/
Namsframbod/Namskeid/Menn-
ing/Nanarumnamskeid/16V12>)
og Manngerðir hellar (<http://
www.endurmenntun.hi.is/Nams-
frambod/Namskeid/Menning/
Nanarumnamskeid/4V12>) sem
bæði fela í sér vettvangsferð í lok
námskeiðs.
Bókmennta- sem og tónlistar-
unnendur ættu að geta fundið ýmis
áhugaverð námskeið hjá Endur-
menntun en einnig eru námskeið
um sagnfræði, leikhús, skapandi
skrif, sjálfsrækt, barnauppeldi,
garðrækt og fleira í boði.
Starfstengd námskeið
Endurmenntun er einnig með fjöl-
breytt framboð starfstengdra nám-
skeiða á ólíkum sviðum svo sem
uppeldisfræði, lögfræði, fjármál,
heilbrigðis- og félagssvið, hugbún-
aðar og verkfræði. Einnig má finna
fjölmörg þverfagleg námskeið fyrir
stjórnendur eða þá sem vilja efla
almenna hæfni og þekkingu sína í
starfi.
Tvær hagnýtar námskeiðslínur
Á vormisseri verða tvær hagnýtar
námskeiðslínur á dagskrá hjá End-
urmenntun. Það er annars vegar
Rekstur, stjórnun og markaðssetn-
ing smáfyrirtækja – markviss leið
sem er fyrir fólk sem er að setja upp
fyrirtæki eða er með lítið fyrirtæki
og vill þróa það frekar. Hins vegar
er það námskeiðslínan Lykilþætt-
ir þjónustu – markviss leið sem er
ætluð öllum sem starfa við þjónustu
í fyrirtækjum og stofnunum og hafa
áhuga á að bæta þekkingu sína á
því sviði.
Námskeiðslínurnar eiga það sam-
eiginlegt að þar eru engin inntöku-
skilyrði, kennt er í lotum þar sem
hverju námskeiði lýkur áður en það
næsta hefst, áhersla er lögð á hag-
nýt tæki og tól. Umsóknarfrestur
í báðar námskeiðslínurnar er til 6.
febrúar
Námskeið á fjarfundi
Endurmenntun á í samstarfi við
fræðslumiðstöðvar á landsbyggð-
inni um námskeið í heimabyggð. Á
vormisseri verða 12 námskeið sem
eru send út í gegnum fjarfundar-
búnað og eru eingöngu ætluð þátt-
takendum á fjarfundi. Námskeiðin
eru send út í rauntíma sem gerir
þátttakendum kleift að taka þátt í
umræðum. Hægt er að kynna sér
námskeiðin á vef Endurmenntunar
endurmenntun.is <http://endur-
menntun.is> en skráning og upp-
lýsingagjöf fer fram hjá Fræðslu- og
símenntunarmiðstöðvum víðsveg-
ar um landið. Fyrirtæki og stofn-
anir sem eiga fjarfundarbúnað geta
einnig tekið þátt og hafa þá sam-
band við Endurmenntun.
Námskeið öllum opin
Á hverju misseri sækja rúmlega
4000 þátttakendur námskeið á veg-
um Endurmenntunar. Viðskipta-
vinir Endurmenntunar eru á öllum
aldri, frá tvítugu til tíræðisaldurs.
Langflest námskeið Endurmennt-
unar eru öllum opin, það er að segja
að ekki er krafist neinnar forkunn-
áttu eða reynslu.
ENdurmENNTuNarSToFNuN MenningarnÁMskeiðin hafa verið afar vinsæl í fjölda Ára
Námskeið við allra hæfi hjá
Endurmenntun Háskóla Íslands
Hátt í 200 námskeið á dagskrá á vormisseri.
Thelma Jónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands.