Fréttatíminn - 13.01.2012, Page 62
Helgin 13.-15. janúar 201262 tíska
Fæstar vita
sína réttu stærð
Samkvæmt grein sem ég rakst á, og finna má á
netinu, eru rúmlega áttatíu prósent kvenna sem
ganga um í rangri brjóstahaldarastærð. Þetta er
sláandi há tala en stærstur hluti þessara kvenna
gengur í of litlum brjóstahöldurum. Ef marka má
greinina fer það verulega illa með hið líkamlega
ástand.
Ég viðurkenni fúslega að ég telst til þessara
áttatíu prósenta og hef enga vitneskju um
í hvaða brjóstahaldarastærð ég er í hverju
sinni. Ég á óteljandi mikið af brjóstahöld-
urum og einhverra hluta vegna eru þeir allir
í sitthverri stærðinni. Ég hef vanið mig
á að einblína á þann sem mér finnst
flottur, passar mér vel að ég tel
í fljótu bragði og er ekkert að
flækja þetta neitt frekar í inn-
kaupunum.
Sem betur fer eru þó flestar
nærfataverslanir farnar að bjóða
upp á þá góðu þjónustu að mæla
okkur áður en við fjárfestum í hinum
„fullkomna“ brjóstahaldara. Með því að
nýta þá þjónustu ætti að vera hægt að
minnka þessa meinlegu prósentutölu
til muna. Nú er það reyndar svo að
ég hef vitað það, alveg síðan að ég keypti
minn fyrsta haldara, að ég hefði getað
farið í mælingu. Ég hef bara aldrei látið
að því verða. Og sama má kannski segja
um restina af þessum kvenmönnum sem
ekki þekkja hvaða brjóstahaldarastærð er
sú rétta. Kannski er þetta leti. Eða kannski
þurfum við ekki að láta segja okkur í hvaða
stærð við erum og kjósum að fara frekar eftir
okkar eigin hugmyndum um hvaða tölur, bók-
stafir og meint þægindi eiga við hverju sinni.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Raunveruleikastjarnan og
hótelerfinginn Paris Hilton
er ekki bara partíljón sem lifir
á auði fjölskyldunnar eins og
margir halda. Í nýlegu viðtali
við FHM sagði Paris hafa
grætt mikið á ilmvatnssölu
sinni allt síðan árið 2005
eða frá því að fyrsti ilmurinn
hennar kom á markað. Alls
hefur hún framleitt tíu ilmi
og hefur það skilað henni
rúmum 161 milljarði króna
í vasann. „Salan á ilmunum er mjög góð í dag. Betri en nokkurn
tímann áður. Þetta er að skila mér ágætu tímakaupi.“
Græðir tugi milljarða
á ilmvatnssölu
Svo virðist sem
raunveruleika-
stjarnan Kim
Kardashian
ætli hvergi að
slá slöku við
á nýju ári. Nú
hefur komið
fram tilkynning
frá henni þess
efnis að nýr
ilmur úr hennar
smiðju sé væntanlegur. Sá hefur fengið nafnið True Reflection en þetta er
fjórði ilmurinn sem Kim Kardashian framleiðir. Auglýsingaherferð ilmsins
hefur litið dagsins ljós og að sjálfsögðu situr hún sjálf fyrir. Hinir þrír ilmir
sem raunveruleikastjarnan hefur sent frá sér hafa ekki selst eins vel
og vonir voru bundnar við en Kim ætlar að nýi ilmurinn verði byltingar-
kenndur og nokkuð sem allir muni sækjast eftir.
Nýr ilmur frá Kim
Föstudagur
Skór: Topshop
Sokkabuxur: Oriblu
Pils: Zara
Bolur: Urban Outfitters
Hálsmen: Forever 21
Þriðjudagur
Skór: Gs Skór
Buxur: H&M
Skyrta: Weekday
Hálsmen: Sautján
Marc Jacobs og Alexander
Wang í uppáhaldi
Fimmtudagur
Skór: Dr Martens
Buxur: Topshop
Skyrta: American Apperal
Jakki: Gina Tricot
Miðvikudagur:
Skór: Vila
Sokkabuxur: Oriblu
Stuttbuxur: Spúútnik
Bolur: Acne
Peysa: Lakkalakk
Ída Pálsdóttir er 18
ára nemi í Verslunar-
skóla Íslands og sam-
hliða náminu sinnir
hún ýmsum störfum
fyrir Eskimo Models.
„Ég myndi segja að
hann væri mjög mis-
Mánudagur:
Skór: Vila
Buxur: Cheap Monday
Peysa: Spúútnik
Skyrta: H&M
jafn og fjölbreyttur,“
segir Ída um fatastílinn
sinn. „Samt má segja
að hann sé frekar rokk-
aralegur en dúllulegur
og klæði ég mig aðal-
lega eftir skapi hverju
sinni. Ég kaupi fötin
mest megnis í Spúútnik,
Topshop, H&M, Urban
Outfitters og American
Apperal en uppáhalds
hönnuðirnir mínir eru
Marc Jacobs og Alex-
ander Wang. Ég fell oftast
fyrir flíkum frá þeim og
gefa þeir mér góða innsýn
í tískuheiminn. Innblástur
sæki ég einnig í tískublöð
og sænsk tískublogg sem ég
skoða mikið – er rosalega
veik fyrir skandinavískri
tísku.“
Nýjasti tals-
maður Dior
Tískurisinn Christian Dior tilkynnti
á nýju ári að leikkonan Mila Kunis
muni verða andlit sumarlínu fyrir-
tækisins. Delphine Arnault, sem er
aðalhönnuður töskulínunnar, segir
Milu vera hæfileikaríka leikkonu
sem er alvöru nútímakona og passi
einstaklega vel í þetta mikilvæga
hlutverk á vegum fyrirtækisins. Mila
Kunis er þar með komin hóp fleiri
leikkvenna sem unnið hafa fyrir Dior
svo sem Natalie Portman, sem lék
ásamt Milu í stórmyndinni Black
Swan, en hún er andlit- og talsmaður
ilmsins Miss Dior sem kom út á
síðasta ári