Fréttatíminn - 13.01.2012, Blaðsíða 70
Kitty Von-Sometime Í náðinni hjá GeorGe Clooney
Listakonan Kitty Von-Some-
time hefur getið séð gott orð
fyrir gjörninga og uppákomur
undir merkjum The Weird
Girls Project. Skóframleið-
andinn Converse styrkir hana
til þess að ferðast um Kína og
breyta bældum kínverskum
konum í skrýtnar stelpur.
Þá býðst henni einnig lista-
mannsdvöl í Sjanghæ í lok
árs en sjálfur George Clooney
á sæti í stjórn setursins því
sem býður hana velkomna.
Leysir kínverskar
konur úr læðingi
É g var bara að frétta það á þriðjudaginn að ég hef fengið inni á þessum stað
í Sjanghæ og er alveg rosalega
spennt, “ segir Kitty og ekki
skyggir á gleðina að hafa hlotið
náð fyrir augum sjarmatrölls-
ins og stórstjörnunnar George
Clooney. Kitty segist í augna-
blikinu vera mjög upp með sér
og að móður sinni þyki mikið til
þess koma að sjálfur Clooney hafi
þarna komið að málum.
„Þannig að nú er komið á dag-
inn að ég fer tvisvar til Kína á
þessu ári. Fyrst með Weird Girls
Porject í mars og síðan til lengri
dvalar í þrjá til sex mánuði í lok
árs.“
Hinn goðsagnarkenndi skó-
framleiðandi Converse styrkir
Kitty til verkefnisins og vill þannig
stuðla að því að fólk slíti af sér
persónulega fjötra og leyfi sér að
blómstra en slíkt telst til nýmæla
í Kína. Kitty ætlar að taka upp
fimm Weird Girls-myndbönd á
jafnmörgum stöðum í Kína og fá
konur á hverjum stað fyrir sig til
liðs við sig.
„Ég fæ að velja staðina alveg
sjálf og þeir mega vera hvar sem
er í landinu sem er vægast sagt
mjög spennandi og í raun ótrúlega
magnað. Þessi hugmynd að fá kín-
verskar konur til að sleppa fram af
sér beislinu er þeim mjög fram-
andi þannig að þetta er heilmikil
áskorun. Ég fór til Kína í nóvem-
ber og gerði eina æfingu til að sjá
hvernig þetta gengi. Konurnar
standa bara kyrrar og gera ekki
neitt nema þeim sé beinlínis sagt
að gera það. Menningarsagan og
uppeldi þeirra er bara þannig. Þær
sögðu mér að kínverskt máltæki
segði að það tré sem vex hæst sé
höggvið fyrst og þess vegna eru
þær ekkert að trana sér fram eða
vekja á sér óþarfa athygli. Þær
vilja ekki vera áberandi þannig að
þetta er mjög áhugavert.“
Grunnurinn í Weird Girls Project
er viðbragð við hinu óþekkta og
óvænta þannig að þær konur sem
Kitty vinnur með vita aldrei hverju
þær mega eiga von á þegar Kitty
boðar þær í tökur þannig að þær
kínversku fá heldur betur að slíta
af sér fjötrana þegar Kitty lætur
þær bregða á leik.
Hvað l istamannsdvöl ina í
Sjanghæ varðar segir Kitty að
þar sé um „fáránlega flott dæmi“
að ræða. „Ég á eftir að ræða við
þá um hvernig þetta verður með
tveggja ára barnið mitt. Venjulega
fylgja engir fjölskyldumeðlimir
með listafólkinu sem dvelur þarna
en ég er búin að gera þeim grein
fyrir að ég geti ekki farið frá henni
í marga mánuði. Og þar sem þeir
vilja fá mig í það minnsta í þrjá mán-
uði ætlum við að reyna að finna ein-
hverja lausn.“
toti@frettatiminn.is
Kitty Von-Sometime heldur til Kína í boði Converse í mars þar sem hún ætlar að hrista upp í rótgrónu feðraveldinu og leyfa
kínverskum konum að njóta sín. Mynd/Hari
George Clooney virðist kunna að
meta verk Kittyar þar sem hann situr í
stjórninni sem býður hana velkomna til
Sjanghæ til listamannsdvalar í borginni.
Þessi hug-
mynd að fá
kínverskar
konur til að
sleppa fram
af sér beislinu
er þeim mjög
framandi.
Talnaspeki
Benedikts á flug
Talnaspekingurinn, rithöfundurinn
og sundgarpurinn Benedikt Le-
Fleur er á fleygiferð þessa dagana.
Benedikt fór mikinn í sunnudags-
þætti Sirrýjar á Rás 2 um síðustu
helgi og greindi þar fólk í beinni
útsendingu við stormandi lukku. Og
frammistaða Benedikts vakti athygli
því fjöldi innskráðra á alþjóðlega
talnaspekisíðu sem hann heldur úti
fjórfaldaðist eftir þáttinn; fór úr 150
upp í 600 manns sem létu greina sig
á síðunni.
Rússnesk ullarstígvél
komu sterk inn
Á meðan að flestir þóttust góðir með að
komast heim til sín í færðinni sem
var síðdegis á þriðjudaginn komu
margir af sjóuðustu ferðaþjónustuað-
ilum landsins saman í kokteilboði í
Listasafni Reykjavíkur. Einn þeirra
sem átti í litlum vandræðum með að
vaða skaflana í miðborginni var Kjartan Guðbergsson, betur þekktur undir nafninu
Daddi diskó, en hann mætti í forláta brúnum ullarstígvélum. Stígvélin vöktu athygli í
listasafninu enda höfðu fáir séð slíkan fótabúnað fyrr. Að sögn Dadda er um að ræða
hátísku-stígvél frá Moskvu sem byggja á aldagamalli rússneskri aðferð þar sem ullin er
þæfð og blönduð með sterkri sýru svo skóbúnaðurinn haldi fótum eigandans hlýjum í
hvaða færð sem er. Það mun vera haft á orði meðal Moskvu-búa að ullarstígvélin hafi
riðið baggamuninn í stríði Rússa við Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni, þar sem herir
Hitlers urðu illa úti í rússneska vetrinum. Stígvélin koma í góðar þarfir nú á Íslandi í
því mikla vetrarveðri sem verið hefur undanfarið og Frímann Gunnarsson, sá mikli
menningarviti, var eins og sjá má yfir sig hrifinn af stígvélum Dadda.
V inirnir og vertarnir á Öl-stofunni, sem einmitt er við þá er kennd; Kormákur
og Skjöldur, héldu í óvissuferð í
boði unnusta sinna á fimmtudag-
inn í síðustu viku og sneru aftur
kvæntir menn. Eitthvað sem kom
eiginlega öllum sem í ferðinni voru
jafn mikið á óvart.
„Þetta var óvissuferð sem
við vorum í og skipuleggjendur
óvissuferðarinnar enduðu á því að
giftast okkur,“ segir Kormákur.
„Það var bara tekin ákvörðun
klukkan hálf þrjú á fimmtudags-
nóttu og síðan þegar við vöknuð-
um í kringum hádegið var byrjað
að hringja út og við fundum prest
í hreppnum sem við þekktum,“
segir Kormákur og bætir því við
að séra Sveinn Valgeirsson hafi
reynst einstaklega bóngóður og
þótt verkið mjög ánægjulegt.
„Hann hitti okkur á Eyrarbakka,
þar sem hann er prestur, og gifti
okkur í Eyrarbakkakirkju.“
Kormákur segir að brúðkaup
hafi verið rætt í hópnum um árabil
en augnablikið var svo gripið á
Hótel Rangá þangað sem Dýrleif
Ýr Örlygsdóttir, nú eiginkona
Kormáks, og Ísold Grétars-
dóttir buðu þeim. „Okkur leið bara
eitthvað svo vel þarna og þessi
umræða spannst um nóttina og við
ákváðum að kýla á þetta.“
Félagarnir skiptust á að vera
svaramenn hvor hjá öðrum og „við
bara sáum um allt. Skjöldur var
meðhjálpari líka, svaramaður og
brúðgumi. Þetta var bara alveg
stórkostlegt,“ segir Kormákur.
Hann bætir því við að þótt þeir
félagar séu nánir viðskiptafélagar
og þau öll fjögur mikið vinafólk
hafi þessi niðurstaða þó verið
óvænt. „En þetta átti ótrúlega vel
við þarna og við erum ótrúlega
hamingjusamir.“ -þþ
KormáKur oG SKjöldur SamStiGa ölStofufÉlaGar
Tvöfalt brúðkaup í óvissuferð
Kormákur og Skjöldur skála í Bríó bjór Ölstofunnar. Hugmyndafræðin á bak við
nafnið er sú að þeir sem eru bríó séu mjög afslappaðir og léttir á því. „Já, við
vorum mjög bríó á því þarna. Það er óhætt að segja það,“ segir Kormákur.
70 dægurmál Helgin 13.-15. janúar 2012
la Bohème
giacomo PUcciNi
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR
GISSUR PÁLL GISSURARSON
ÞÓRA EINARSDÓTTIR
GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON
HRÓLFUR SÆMUNDSSON
JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR
BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON
LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN
BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR
LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
MIÐASALA Í SÍMA 528 5050 OG Á HARPA.IS
FRUMSÝNING 16. MARS KL. 20