Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 2
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Viðurkenningar FKA veittar
Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Hvalaskoðunar
Reykjavíkur sem betur er þekkt sem Elding, hlaut í gær FKA viðurkenninguna. Rann-
veig rekur sex skip og stærsta hvalaskoðunarfyrirtæki landsins. Hvalaskoðun er nú
þriðja vinsælasta afþreying erlendra ferðamanna hérlendis. Þakkarviðurkenningu
FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri, fékk Erla Wigelund sem oftast er kennd við Verð-
listann. Hún opnaði verslunina árið 1965 og stendur enn vaktina, 83 ára. Gæfusporið
fengu Katrín Olga Jóhannesdóttir og Sigríður Margrét Oddsdóttir sem fyrir rúmu ári
keyptu Já.is í félagi við fjárfestingasjóðinn Auði 1. Hvatningarviðurkenningu FKA fékk
fyrirtækið Attentus. Stofnendur og eigendur eru Inga Björg Hjaltadóttir, Ingunn Björk
Vilhjálmsdóttir og Árný Elíasdóttir. Nánar er fjallað um Attentus í frétt á bls. 8. - jh
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Framsóknarflokksins.
Stjórnmál Fjármál Flokkanna
Framsóknarflokkur-
inn tapaði einni og
hálfri milljón króna
Ársreikningur flokksins fyrir árið 2010 sýnir bata í rekstri og lækkun skulda frá fyrra ári
F ramsóknarflokkurinn tapaði rétt rúmri 1,5 milljón á árinu 2010 samkvæmt ársreikningi
sem flokkurinn skilaði inn til Ríkis-
endurskoðunar í síðustu viku. Árs-
reikningsins hefur verið beðið með
töluverðri eftirvæntingu því rétt
tæpir fjórir mánuðir eru síðan lögboð-
inn frestur stjórnmálaflokkanna til að
skila ársreikningum fyrir árið 2010
til stofnunarinnar rann út. Seink-
unin olli því meðal annars að ekki var
hægt greiða árlegan styrk Ríkissjóðs
til flokksins á réttum tíma eins og
greint var frá í Fréttatímanum fyrir
skömmu.
Samkvæmt ársreikningnum
minnkuðu tekjur flokksins um átta
milljónir á milli ára og voru 97 millj-
ónir. Þetta er þrátt fyrir að styrkur
ríkissjóðs var átta milljónum hærri
en árið áður. Framlög lögaðila,
einstaklinga sem og aðrar tekjur
drógust hins vegar saman um sam-
tals sextán milljónir. Reksturinn
virðist hins vegar hafa verið tekinn í
gegn því rekstrarkostnaður lækkaði
um rúmar fjörutíu milljónir frá fyrra
ári og var 81 milljón. Flokkurinn
sýndi því hagnað upp á sextán millj-
ónir þegar fjármagnsgjöld eru ekki
reiknuð með. Fjármagnskostnaður
upp á rúmar sautján milljónir gerir
það hins að verkum að tapið í heild
var rétt rúm ein og hálf milljón. Eigið
fé flokksins er neikvætt um 85 millj-
ónir en lækkaði verulega frá fyrra ári.
Skuldir Framsóknar eru 214 milljónir
og lækkuðu um 20 prósent frá fyrra
ári.
Hrólfur Ölvisson, framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins, hefur
margoft lofað því við blaðamann
Fréttatímans að gera bragarbót á
skilum á ársreikningi og samkvæmt
upplýsingum frá flokknum hefur
staðið yfir vinna sem miðar að því að
skerpa á skilum flokksfélaganna út á
landi á reikningum sínum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Fjórflokkurinn
skuldar 650
milljónir
Fjórflokkurinn svokallaði,
sem samanstendur af Fram-
sóknarflokki, Samfylkingu,
Sjálfstæðisflokki og Vinstri
hreyfingunni – Grænu fram-
boði, skuldar samanlagt 645,1
milljón. Þar af skuldar Sjálf-
stæðisflokkurinn 216,5 millj-
ónir, Framsóknarflokkurinn
214,9, Samfylkingin 110,1 og
Vinstri grænir 103,6. Á undan-
förnum fjórum árum hafa
flokkarnir fjórir fengið rúman
1,5 milljarð frá ríkinu. Af því
fengu sjálfstæðismenn rúmar
550 milljónir, Samfylkingin
477 milljónir og Framsókn og
vinstri grænir um 250 milljónir
hvor. -óhþ
María Hjálmtýsdóttir fyrir utan Santa María sem var lokað um
áramótin. Ljósmynd/Hari
miðbærinn Santa maría hættir
Kennsla og veitingarekstur fór ekki vel saman
„Nei, illi kryddrisinn drap
ekki veitingastaðinn minn,“
segir hlæjandi María Hjálm-
týsdóttir, eigandi mexíkóska
veitingastaðarins Santa María á
Laugavegi, sem lokaði um ára-
mótin. Staðurinn, sem opnaði
snemma árs 2008, vakti athygli
fyrir góðan mat og lágt verð.
Fréttablaðið flutti fréttir af því
að sænski kryddrisinn Santa
Maria væri ósáttur við nafn
veitingastaðarins. „Ég skráði
nafnið hjá Einkaleyfastofu og
þeir fengu það afskráð. Síðan
gerðist ekkert meira,“ segir
María og bætir við að aðrar og
einfaldari ástæður hafi legið að
baki því að staðnum var lokað:
„Þetta veitingastaðadæmi var
búið til í kringum þáverandi
karlinn minn. Ég kann ekki
einu sinni að elda. Rekstrarum-
hverfið er erfitt og veturinn
byrjaði illa. Þegar maður hefur
ekkert út úr þessu nema grá
hár þá er alveg eins gott að
hætta,“ segir hin 37 ára gamla
María sem vinnur sem kennari
í Kópavogi og sinnti veitinga-
húsinu í frístundum. „Þetta
var orðin meiri atvinnusköpun
heldur en bisness. Við söfn-
uðum skuldum á veturna og
greiddum þær niður á sumrin.
Ég efast stórlega um að ég
muni fara í veitingarekstur aft-
ur en auðvitað á maður aldrei
að segja aldrei,“ segir María.
Og lífið er rólegra eftir að
staðnum var lokað. „Nú er
ég „bara“ að kenna og sjá um
heimilið. Það er ekki mjög ró-
legt en rólegt samt. Og áhyggj-
urnar eru minni.“
Einn komst af er togari
sökk en þrír taldir af
Einn maður bjargaðist en þrír eru
taldir af eftir að togarinn Hallgrímur
SI-77 sökk um 150 sjómílur vestur af
Noregsströndum á miðvikudag. Fár-
viðri var þegar skipið fórst en það hafði
verið selt til Noregs í brotajárn. Þyrla
bjargaði sjómanninum en hann er
talinn hafa verið í sjónum í nær fjórar
klukkustundir. Samkvæmt fréttum var
hann sá eini í áhöfninni sem komst í
nothæfan flotgalla. Hann var fluttur til
aðhlynningar á sjúkrahús í Álasundi.
Skipbrotsmaðurinn upplýsti norska
björgunarmenn um að leki hafi komið
að togaranum í miklum sjó og að hann
sokkið á skömmum tíma. Hallgrímur SI
var smíðaður árið 1974 og var um 300
brúttólestir að stærð. Hann var áður
á rækjuveiðum en hafði verið bundinn
við bryggju á Siglufirði frá liðnu sumri.
- jh
Gjaldþrot aldrei fleiri
en á liðnu ári
Alls urðu 1.578 fyrirtæki gjaldþrota á
síðasta ári og hafa gjaldþrot aldrei verið
fleiri, að því er fram kemur hjá Hagstofu
Íslands. Þetta jafngildir því að á hverjum
einasta virka degi síðasta árs hafi 6 fyrir-
tæki lagt upp laupana. Árið 2010 urðu 982
fyrirtæki gjaldþrota og fjölgaði gjald-
þrotum því um 60 prósent á síðasta ári.
Árið 2009 voru gjaldþrotin 910 og voru
þá mun fleiri en sést hafði undanfarna
áratugi, en á tímabilinu 1990 og fram
til 1997 urðu að meðaltali 430 fyrirtæki
gjaldþrota á ári hverju. „Það er auðvitað
sláandi hversu mörg gjaldþrotin eru og
það er til vitnis um að atvinnulífið er enn
laskað,“ segir Greining Íslandsbanka og
bætir við: „Tölurnar segja líka þá sögu
að sú fjárhagslega endurskipulagning
sem öllum var ljóst að nauðsynlegt yrði
að ganga í gegnum hafi nú loks komist á
almennilegt skrið á síðasta ári.“ - jh
Fæst í helstu matvöruverslunum landsins
Lífrænt grænt te
2 fréttir Helgin 27.-29. janúar 2012