Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 55
tíska 47Helgin 27.-29. janúar 2012
Yfirgefur vinsælt
tískuhús sitt
Breska leikkonan og tískudrósin Sienna
Miller, sem á von á sínu fyrsta barni, hefur
yfirgefið tískuhúsið sitt Twenty8Twelve
by S. Miller en því hefur hún stjórnað
ásamt systur sinni Savönnu síðustu sex
ár. Fyrirtækið verður þó ekki lagt niður
heldur mun Nish Soneji, hönnuður fyrir-
tækisins, taka við stjórnun þess og nafnið
beytist í Twenty8Twelve. Nish ætlar að
breyta áherslum og stefnu fyrirtæksins
og áætlar að selja fatalínu Twenty8Twelve
víðar um heim en áður var. Ekki er vitað
hvort einhver leiðindi hafi komið upp í
stjórn fyrirtækisins en hugsanlega hefur
frumburður Siennu áhrif á brotthvarf leik-
konunnar. -kp
Hágæða nærföt
frá Victoriá s
Secret slá í gegn
Nærfatafyrirtækið Victoria’s
Secret hóf sölu á nýrri
hágæða nærfatalínu fyrr í
vikunni – en þetta er í fyrsta
skipti í sögu fyrirtækisins
sem það siglir inn á slíkt svið
hátísku með framleiðslu
sinni. Nærfötin eru tímalaus
og glæsileg sem einkennast
af miklum glamúr. Nánast
var slegist um nærfötin sem
seldust upp á aðeins tveimur
dögum, þrátt fyrir gríðarlega
hátt verð. -kp
H&M lítur til hönn-
unar liðinna tíma
Tískurisinn H&M blés til auglýsingaher-
ferðar á dögunum þar sem sumarlínan
fyrir 2012 var kynnt og er fatnaðurinn
innblásinn af tísku
5. áratugarins.
Sænska ofur-
fyrirsætan Frida
Gustavsson var
fengin til að sitja
fyrir í herferðinni
og birtist hún
klædd hlýlegum
Retro-fatnaði
í bland við
Rokkabillý-
tískuna:
Ávalar
línur eru
áberandi í
að-
sniðnum
kjólum,
stuttir jakkar
og mittisháum
buxum.
Samkvæmt
þessu virðist
sem H&M
ætli að halda
áfram að
sækja í tísku
liðinna tíma
en á síðasta
ári voru áhrif
frá 6. og 7.
áratugunum
áberandi í
línum fyrir-
tækisins.