Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 10
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og fáðu Intiga til prufu í vikutíma Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður skýrara en þú hefur áður upplifað. Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum! *Í flokki bak við eyra heyrnartækja sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu Heyrnartækni kynnir ... Minnstu heyrnartæki í heimi* É g vil að yfirvöld komi okkur til bjargar. Segi okkur satt og rétt frá og gefi okkur svör,“ segir Kolbrún Jónsdóttir, sem er 44 ára fimm barna móðir sem býr á Selfossi. Hún fékk fölsku, frönsku PIP-sílikonpúðana í brjóst sín hjá Jens Kjartanssyni lýtalækni árið 2007 Velferðarráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu um að leitarstöð Krabba- meinsfélagsins taki við tímapöntunum kvennanna frá og með 26. janúar. Kon- urnar hafa beðið eftir fyrirmælum frá því á milli jóla og nýars. „Nú er bréfið fundið en púðarnir týndir,“ segir Kolbrún og vísar í að ráðuneytið hafi gefið út að lekir púðar verði teknir úr á Landspítalanum, en ekkert sé talað um hvort konunum standi til boða að fá aðra í staðinn. Kolbrún lýsir miklum heilsubresti sem hún rekur nú til sílikonsins í brjóstum sínum. Hún hafi verið kraftmikil kona sem aðeins þurfti fimm tíma svefn; sá um börnin, hélt heimili og var í námi, en þurfi nú að leggja sig á daginn, þrífa heimilið sitt í pörtum og forgangsraða verkefnum vegna orkuleysis. Hana vanti allt þrek og finni fyrir máttleysi. „Mér hafði þó ekki dottið í hug að sílikon-púðarnir orsökuðu veikindin sem ég hef gengið í gegnum frá árinu 2009. Þrekleysi, hármissir, verkir í liðum og líkamanum, glútenóþol... Ég hef farið í MS-próf, því öll einkennin bentu til þess sjúkdóms, heilaskanna og líkaminn hefur verið skannaður. Ég hef eytt vel á annað hundrað þúsund krónum í lækniskostnað á þessum tíma til að reyna að finna út hvað amar að mér. Aldrei fannst neitt.“ Kolbrún hefur nú fengið staðfest að báðir PIP-púðarnir leka. Hún hitti Jens lýtalækni í byrjun mánaðarins. Hann sagði, eftir lauslega skoðun, að ekkert væri að púðunum. Hún hitti síðar tvo lýta- lækna – Ottó Guðjónsson, formann félags lýtalækna á mánudag, sem hún segir að hafi sagt ekkert benda til leka en ákveð- ið að senda hana í sónar. Þar hafi leki komið í ljós og Ottó sagði þá að hún þyrfti í aðgerð sem fyrst. Hann væri hins vegar að fara í frí. Kolbrún leitaði til annars læknis sem líklegast framkvæmi aðgerðina. Hún segir að báðir hafi sagt henni að ekkert sé því til fyrirstöðu að setja nýja púða í brjóst hennar. „Ég vil hafa brjóst,“ segir Kolbrún sem fékk fyrstu sílikon-púðana í brjóst sín árið 1988. Púðarnir reyndust einnig gallaðir; framleiddir af bandaríska fyrirtækinu Dow Corning. Fyrirtækið hafði lofað ei- lífðarendingu á sílikon-púðum sínum. Síðar kom í ljós að þeir voru krabbameins- valdandi ásamt því að valda ýmsum öðrum sjúkdómum. Eftir hópmálsókn á hendur fyrirtækisins sem vannst varð fyrirtækið gjaldþrota. Púðar Kolbrúnar voru fjar- lægðir árið 1995. „Þá þurfti að skafa sílikonið af rifbein- um mínum, skera í brjóstvöðva og fleira. Þurft hefur að skera þrjá fleygskurði í vinstra brjóst mitt og fjarlægja tíu æxli og eitt úr holhönd,“ segir hún. „Yfirvöld brugðist mér þá og þau bregðast mér aftur núna. Ég hef sent nokkrum þingmönnum og fjölmiðlafólki bréf í gegnum Facebook. Ég fékk aðeins svar frá Álfheiði Inga- dóttur [fyrrum heilbrigðisráðherra og þingmanni VG] og símtal. Hún gagnrýndi meðferðina á málinu.“ Viðmót margra brenglað Kolbrún segir að hún sé þreytt á lélegu viðmóti yfirvalda. „Ég hef reynt að fá fund hjá landlæknisembættinu. Mér var svarað og lofað að hringt yrði í mig. Ég beið alla Átta af níu konum með sprungna PIP-púða Átta af þeim níu konum sem hafa farið í ómskoðun af 80 skjól- stæðingum Sögu Ýrr Jónsdóttur lögmanns eru með sprungna PIP sílikon-púða. Saga undirbýr málarekstur á hendur dreifingaraðila PIP-púð- anna, sem hún segir að á ákveðnum tímabilum hafi verið eiginkona lýta- læknisins Jens Kjartans- sonar, honum sjálfum, en einnig í einhverjum tilfellum íslenska ríkinu til þrautavara. Hún segir að þrjár kvennanna hafi þegar farið í aðgerð og látið fjarlægja púðana. Konurnar vilji heilsutjón sitt bætt og geri kröfu á endurgreiðslu útlagðs kostnaðar. Fyrsta stefnan gæti orðið eftir um tvær vikur. „Konurnar lýsa sam- bærilegum einkennum: Verkjum í brjóstum, doða í höndum, þreytu, hausverk, beinverkjum, liðverkjum , svitaköstum, kuldaköstum og hárlosi. Sumar eru frá vinnu vegna verkja,“ segir Saga. „Þessar konur eiga það sammerkt að hafa aldrei spáð í púðunum sem þær fengu heldur treystu þær lækninum. Sumar þeirra segja að þær hafi valið jafnvel valið Jens því að hann hafi verið dýrastur,“ segir Saga. Þannig hafi þær viljað tryggja gæðin. - gag Með tvo sprungna PIP-sílikonpúða Kolbrún Jónsdóttir upplifir nú í annað sinn að vera með ónýta sílikon-púða í brjóstum sínum. Árið 1995 lét hún farlægja bandaríska, krabbameinsvaldandi púða. Hún þurfti í framhaldinu að láta fjarlægja tíu æxli úr brjóstum sínum. Nú er hún með tvo sprungna iðnaðarsílikonpúða og á leið í fjórðu aðgerðina. Kolbrún Jónsdóttir er með sprungna PIP-síli- konpúða og þarf nú að fara í fjórðu aðgerðina frá árinu 1988 en þá fékk hún sér sílikonpúða í fyrsta sinn. Hún rekur heilsuleysi sitt til púðanna. Mynd/Hari síðustu viku. Ég hef reynt að ná í Jens frá síðasta fundi okkar en mætt ömurlegri framkomu í Domus Medica. Ég er ofsalega sár og reið við Jens. Hann fer í leyfi á meðan við konurnar erum í lausu lofti; hræddar og áhyggjufullar,“ segir hún. „Við erum systur, dætur, mæður og þegnar þessa lands. Viðmót margra er á þann veg að líf okkar skipti engu máli af því að við séum „hégómalegar pjattrófur“ sem fengum okkur aðskotahlut í líkama okkar. Að við hefðum átt að sætta okkur við að hafa engin brjóst. Á sama tíma á kona með engin brjóst eftir krabbameinsað- gerð ekki að þurfa að sætta sig við slíkt. Afstaðan þjóðfélagsins þá er mjög jákvæð. Í huga mínum er þetta bregluð hugsun,“ segir hún. „Ég kem til með að fara í að- gerð. Við hjónin höfum aðstöðu til að afla okkur fjár svo tækla megi þetta mál. En í minni stöðu eru einstæðar mæður, konur í for- ræðisdeilu, á atvinnuleysisbótum og jafnvel gjaldþrota. Hvað eiga þær að gera? Þær geta ekki gert neitt. Þær eru háðar skilmálum yfirvalda – þurfa jafnvel að lifa með þetta iðnaðarsílikon innan í sér. Ég berst fyrir hag þeirra og mun ekki hætta því.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður. Skoðað að konur fái aðra púða Velferðarráðuneytið skoðar hvernig hægt sé að standa að því að konur sem fari þær í aðgerðir á Land- spítalanum til að láta fjarlægja rofna PIP-púða fái aðra í staðinn í sömu aðgerð. Ráðuneytið skoðar einnig hvort einhver þurfi að sæta ábyrgð á því að kon- urnar fengu engar upplýsingar um gölluðu, fölsku framleiðsluna þegar tilkynnt var um hana árið 2010. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins þarf að fara yfir margt í ferlinu; hjá ráðuneytinu, land- lækni og einstaklingunum. Læra verði af málinu. Eins og staðan sé nú bendi ekkert til þess að púð- arnir séu eitraðir heldur bendi niðurstöðurnar rannsókna til þess að þeir erti meira ef þeir leka, leki oftar en þá ekki ólíkt öðrum sílikonpúðum. Sýni nýjar rannsóknir annað verði aðgerðum yfirvalda hagað samkvæmt þeim. Núna sé mat ráðuneytisins að áhætta við að taka púðana úr heilbrigðri konu sé meiri en að láta þá vera. - gag 10 úttekt Helgin 27.-29. janúar 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.