Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 26
2 vetrarfjör Helgin 27.-29. janúar 2012
KYNNING
A rctic sport býður upp á snjósleða sem henta öllum, sama hvað menn ætla sér að gera uppi á fjöllum,“ segir Magnús Bogason sölustjóri og
bætir því við að verslunin sérhæfi sig í raun með allt það
sem snýr að snjósleða- og fjórhólanotkun: „Við eigum
líka hjálma, fatnað og allt það sem sleðamaðurinn þarf.“
Magnús segir mikla eftirspurn vera eftir þessum
vörum, sérstaklega á Norðurlandi og fari þétt vaxandi
fyrir sunnan. „Það er alltaf meiri snjór á Norðurlandinu
en sunnanmenn hafa verið heppnir undanfarið með
snjó. Arctic Cat-snjósleðarnir hafa verið einstaklega
vinsælir fyrir norðan, þeir eru nánast eins og trúar-
brögð þar. Við fluttum inn á þriðja tug sleða í fyrra og
rúmlega 50 á þessu ári. Svo erum við að taka inn 12 fjór-
hjól, bæði bensín og dísil. Snjósleðamenn fara margir
beint upp á fjöll og jökla að leika sér í púðursnjó og
sprengja hengjur með sleðanum, en svo eru aðrir sem
hafa meira gaman af þvi að ferðast um, sýna sig og sjá
aðra. Það er allur gangur á þessu, hver fer á sínum for-
sendum.“
Arctic Cat 50 ára
Arctic Cat varð 50 ára á þessu ári og í tilefni þess kom
alveg ný 2012-lína með bæði tvígengis- og fjórgengis-
mótor. Tvígengismótorinn er 800 cc og er 168 hestöfl
óbreyttur en fjórgengismótorinn er 1100 cc og er 180
hestöfl óbreyttur. „Svo er hægt að fá breytingasett í
fjórgengismótorinn svo hann fari upp í 240 hestöfl,
fyrir þá sem vilja,“ segir Magnús. „Þetta eru sleðar sem
hafa fengið gríðarlega góða umfjöllum og þykja þeir
flottustu á markaðnum. Þeir sem kaupa nýja sleða eru
oft að kaupa töskur og handahlífar líka og svo grind
fyrir bensínbrúsana. Við í bransanum köllum þetta að
„blinga“ þetta upp. Menn fara ekkert á fjöll án þess að
taka með sér til dæmis aukabensín og við erum með
mjög samkeppnishæf verð í varahlutum og aukahlut-
um.“
ArCtIC CAt 50 árA
Arctic sport
Ný lína Arctic Cat-snjósleða.
Arctic sport býður einnig upp á nýjungar í
fjórhjólum. „Það sem er nýtt að gerast í fjór-
hjólum er að við erum að fá dísilmótor sem
er 700 cc og bensínfjórhjól sem eru bæði 700
cc og 1000 cc.“ Aðspurður segir Magnús þó
að menn séu ekki mikið að „blinga“ hjólin
upp. Magnús bætir því við að lokum að þeir
séu með þétt net af góðu fólki í kringum þá,
bæði fyrir norðan og sunnan, svo semBíla-
verkstæði Birgis ehf, Tryggva Aðalbjörns-
son og Krafta og afl en allt eru þetta þjón-
ustuaðilar með varahluti.
Magnús Bogason
sölustjóri hjá
Arctic sport