Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 40
Fáir geta leyft sér það sem Valgeir Guð-
jónsson gerir, að semja undurfallega ball-
öðu, vangadanslag að fornum hætti, en
snúa textanum síðan gersamlega á hvolf
þannig að í stað ástarorða og unaðar legg-
ur flytjandinn metnað sinn í það að míga
úti – og meira að segja í lófana á sér.
„Út í veður og vind, vatns ég lita mynd,
undan vindi,“ segir í ljóðinu. Þekkir þar
hver sjálfan sig. Hver hefur ekki migið út í
veður og vind? Gjörningurinn er merkileg-
ur á sinn hátt – en listaverkið forgengilegt.
Leikur Valgeirs með laglínur og ljóð er
listfengur og löngu kunnur þjóðinni. Hann
fagnaði sextugsafmæli sínu með eftir-
minnilegum hætti í Hörpu um liðna helgi
innan um aðdáendur, vini og vandamenn.
Samhliða kom út lagasafn hans, sjötíu
lög á þremur diskum, safn sem ber höf-
undi sínum fagurt vitni. Sum samdi Val-
geir með öðrum. Það á til dæmis við um
fyrrgreint lag og ljóð, Út í veður og vind,
en meðhöfundur Valgeirs að því er Egill
Ólafsson sem syngur það meistarlega,
eins og hans er von í vísa.
Þetta á víðar við um þá frægu Stuð- og
Spilverksmenn þar sem fleiri en einn er
skráður fyrir verkinu, svo sem var með
Lennon og McCartney á sínum tíma.
Fróðir Bítlaaðdáendur þóttust samt vita
hvor hefði lagt meira til. Á hinu frjóa bítla-
tímabili bættu þeir hvor annan upp, lögin
komu á færibandi, hver stórsmellurinn á
fætur öðrum.
Það er ekki fjarri lagi að líkja Stuð-
mönnum við Bítlana, það er að segja í
íslensku samhengi. Heimsfrægðin kom
að vísu aldrei, jafnvel þótt annað sjálf Val-
geirs, rytmagítarleikarinn Lars Himmel-
bjerg, fengi símtal þar um í kvikmyndinni
klassísku, Með allt á hreinu. „Worldfame
at last, Frímann,“ eru meðal setninga Val-
geirs sem lifa og jafnvel ungt fólk vitnar
til, ekki síður en heimspeki-
legs frasans: „Þetta er
ekki rúta, heldur
langferðabill.“
Á blómatíma
sínum voru
Stuðmenn
ótrúlega
frjóir og Valgeir
helsti laga-
smiður þeirra.
Lögin komu á
færibandi, sagði
Jakob Frímann
Magnússon
um Val-
geir félaga sinn í ævisögu sem út kom um
jólin.
Pistilskrifaranum finnst raunar ótrú-
legt að lesa ævisögu Jakobs og hlusta á
„Samlede Værker“ Valgeirs, enda báðir
bráðungir menn, jafnaldrar og skóla-
félagar skrifarans. Líklegt er að konur
kikni enn í hnjáliðum þegar þær heyra þá
og sjá, ekki síður en þriðja karlmennið í
fremstu víglínu Stuðmanna, Egil Ólafs-
son. Samstarf svo fjölhæfra manna er
þjóðarlukka og skilur mikið eftir sig. Það
sést ekki síst á fyrrgreindu höfundarverki
Valgeirs. Þar rekur hver smellurinn annan
frá árum Spilverks þjóðanna og hinni ei-
lífu unglingahljómsveit Stuðmönnum, auk
sólóferils og samstarfs við fjölda annarra
listamanna.
Valgeiri, eða Valla, man ég eftir frá
því að báðir vorum strákar í sama skóla í
Smáíbúðahverfinu, sitt hvoru megin við
Réttarholtsveginn. Í félagi við aðra gutta
ruddum við land undir fótboltavöll í holti
þar sem síðar risu einbýlishús. Það var
engin minnimáttarkennd í hópnum þegar
að nafngift vallarins kom. Wembley skyldi
hann heita. Sjálfsagt höfum við lesið um
það mikla mannvirki í íþróttafréttum
Moggans eða enn frekar í Tímanum þar
sem Alfreð Þorsteinsson sagði tíðindi.
Hann varð síðar frægur fyrir annað.
Valli var fimur með knöttinn og fim-
leikamaður góður. Gott ef hann fékk ekki
10 í leikfimi hjá Árna Njálssyni. Sá knái
Valsari liðkaði búka hvort heldur var í
Breiðagerðisskólanum eða Réttarholts-
skólanum, Réttó. Það var hins vegar engin
leikfimi kennd á frumbýlingsárum MH.
Þar tók gítar Valgeirs yfir, sem betur fer
fyrir okkur hin. Þess vegna eigum við
perlurnar She broke my heart, Popplag í
G-dúr, Ég held ég gangi heim, Íslenskir
karlmenn, Stella í orlofi, Slá í gegn, Stytt-
ur bæjarins og Spilaðu lag fyrir mig, sem
er samheiti nýju safnplatnanna þriggja. Þá
eru ónefndir tugir annarra frægra smella
sem hvert mannsbarn kann. Í tvígang
hefur Valgeir verið fulltrúi okkar í Evrópu-
söngvakeppnninni og nú, þegar þjóðin
tryllist enn með handboltalandsliði okkar
í stórkeppni, kyrjar hver með öðrum lag
Valgeirs, Gerum okkar besta.
Það er nefnilega það sem listamaður
eins og Valgeir hefur gert, sitt besta. Þess
vegna er hann elskaður og dáður að verð-
leikum. Hann slær gjarna á létta strengi
í textum, er jafnvel galgopalegur, hendir
brauðmolum í hausinn á öndum sem
hjálmlausum fellur það þungt, en í öðrum
textum, eða ljóðum öllu heldur, er alvaran
meiri:
Lífinu er stundum líkt
við linnulausa ferð
sem allir fá að fljóta með í
fyrir uppsett verð
sumir borga í blíðu
behag eftir ég
og afborgunarstaða mín
er orðin ægileg.
Það var ljúft að vera hlustandi og
áhorfandi á afmælistónleikum Val-
geirs þar sem fyrðar glöddust og
gamlar skólasystur fengu í hnén.
Megum við fá meira að heyra.
„Ég legg metnað minn í það að míga úti“
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
F
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
S purningin er sett fram í þeim tilgangi að vekja athygli á einu öflugasta sjálf-sprottna nýsköpunar- og hreyfiafli
sem hver þjóð hefur yfir að ráða. Það er ekki
bara öflugt, heldur er það bæði sjálfbært og
krefst lítils annars en góðs umhverfis til að
fá að vaxa og dafna. Ekki þarf að ryðja land
eða nýta náttúruauðlindir og ekki þarf að
byggja stórar byggingar né fjárfesta ríkisfé
fyrir milljarða ár hvert. Það eina sem þetta
afl þarf á að halda er umhverfi og samfélag
sem skilur, þekkir, nærir, verndar og styður
aflið til góðra verka.
Þetta afl sem ég er að tala um, er auðvit-
að frumkvöðlaaflið sem ákveðið hlutfall
hverrar þjóðar býr yfir. Aflið brýst út eins
og blóm á sólríkum sumardegi og er óend-
anleg auðlind orku, djarfhug og nýsköpun.
Það merkilega við þetta afl er að það er öfl-
ugra og meira nýskapandi og mun skynsam-
ara afl í kreppu, en í góðæri. Einstakling-
arnir sem knýja þetta afl eru bjartsýnisfólk,
lausnadrifið, djarft og reiðubúið til að breyta
sínum plönum og aðlaga sínar viðskipta-
hugmyndir að þeim raunveruleika sem er
til staðar hverju sinni. Þessir einstaklingar
eru tilbúnir að fórna eigin hagsmunum fyr-
ir hagsmuni heildarinnar, þeir vilja oftast
að fleiri njóti góðs af árangri viðskiptahug-
myndanna og eru samfélagslega sinnaðari
en margur annar.
Það eru þó nokkrir hlutir sem hafa haml-
andi áhrif á getu þessara einstaklinga og þar
með á það magnaða hreyfiafl sem þeim fylgir.
Þeir virka þannig að þegar ákveð-
ið magn af þeim fer yfir ákveðinn
fjölda þá dregur það umtalsvert úr
getu þessa afls til að starfa. Þessa
þætti hef ég nefnt áður í þessum
pistli. Ef skilning á þessu hreyfi-
afli skortir og þekkingin er lítil
sem engin á því hvernig virkja
skal þetta afl, er líklegt að minna
verði um árangur. Ef það er engin
næring, en hún kemur oftast í formi tæki-
færa, ákveðnu frelsi til athafna, aðgengi að
fjármagni og starfsfólki þá er líka hættan
á að árangur verði minni en ella. Ef það er
fátt sem verndar þetta afl á sprotastigi, til
dæmis með því að lækka álögur á nýstofnuð
fyrirtæki, bjóða þeim upp á skattaaflsætti og
aðgang að stuðningi, þekkingu
og reynslu þá er einnig lítil von
til að árangur náist. Stuðning-
ur við frumkvöðla og nýsköp-
un er ekki eitthvað sem gert
er með einu pennastriki eða
einni ákvörðun. Þetta snýst
um margþættar aðgerðir, hug-
arfarsbreytingu og markvissa
stefnumótun og víðtæka sam-
vinnu og samráð allra í samfélaginu. Allir
þurfa að taka þetta til sín, ríkisvaldið, fyrir-
tækin, einstaklingar með fjármagn og frum-
kvöðlarnir sjálfir. Í dag er því miður ekki nóg
gert. Ef engin gerir neitt mun ekkert gerast.
Hvað ætlar þú að gera til að virkja þetta afl
á Íslandi?
Framtíð Íslands
Eiga frumkvöðlar séns á Íslandi?
Birgir Grímsson
eigandi og framkvæmd-
arstjóri V6 Sprotahúss
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Borðapantanir í síma 517-4300
Humarsalat & Hvítvín 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
Bláskel & Hvítvín 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
G
e
y
s
ir
B
istro & Bar
FERSKT
&
FREiSTa
ndi
Fagmennska
í Fy
ri
rr
ú
m
i
SpennAndi
sjávarrétta
tilBoð
32 viðhorf Helgin 27.-29. janúar 2012