Fréttatíminn - 27.01.2012, Síða 8
Í New York er nú hægt að fá búðing og ýmsa
eftirrétti úr íslensku súkkulaði frá Nóa Sír-
íus en nýlega opnaði verslun í East Village
sem notar súkkulaðið í rétti sína. Puddin´ by
Clio er eins konar kaffihús sem sérhæfir sig
sælkera-eftirréttum en viðskiptavinir geta
valið um ýmsar tegundir búðinga og bætt
við ávöxtum, kurli og sósum.
Puddin´ by Clio er fjölskyldufyrirtæki en
Clio Goodman sjálf er kokkur og hefur þró-
að búðinginn sinn í mörg ár með tilheyrandi
súkkulaðiprófunum. Clio kynntist íslenska
súkkulaðinu í verslunum Whole Foods Mar-
ket en þar hefur súkkulaðið frá Nóa Síríus
verið fáanlegt um nokkurt skeið. Í kjölfarið
hafði hún samband við Nóa og fór svo að
hún valdi 70 prósenta konsum súkkulaðið til
þess að vera uppistaðan í réttum sínum.
„Clio Goodman hafði samband við okkur
að fyrra bragði og lofaði íslenska súkkul-
aðið. Henni fannst 70 prósenta konsum
súkkulaðið vera það besta sem hún hefði
prófað í búðingana sína. Kaffihúsið hennar
hefur fengið frábærar viðtökur og dóma og
við erum mjög ánægð með þetta samstarf,“
segir Heimir Már Helgason hjá Nóa Síríus.
Ákveðið var að opna fyrsta útibú Puddin‘
by Clio í East Village á Manhattan en
svæðið er þekkt fyrir lifandi menningu þar
sem tónlist og listir eru allsráðandi. Ef vel
gengur gætu fleiri staðir opnað víðar um
Bandaríkin.
F yrirtækið varð eiginlega til við eld-húsborðið heima,“ segir Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir, framkvæmda-
stjóri Attentus, en fyrirtækið hlaut í gær
Hvatningarverðlaun FKA, Félags kvenna
í atvinnurekstri. Meðeigendur Ingunn-
ar Bjarkar að Attentus eru Inga Björg
Hjaltadóttir og Árný Elíasdóttir. Guðríður
Sigurðardóttir bættist við hópinn í haust
og auk hennar starfa tveir starfsmenn hjá
fyrirtækinu og verktakar eru kallaðir inn
eftir þörfum.
„Verðlaunin eru mikil hvatning til okkar,“
segir Ingunn Björk en þau eru veitt vegna
brautryðjendastarfs. Attentus – mannauður
og ráðgjöf var stofnað árið 2007. Það hefur
það að meginmarkmiði að aðstoða fyrir-
tæki og stofnanir við að ná auknum árangri
í rekstri og er ráðgjöfin sniðin að þörfum
hvers viðskiptavinar. Attentus sérhæfir sig
í ráðgjöf um alla þætti mannauðsstjórn-
unar, til dæmis stefnumótun, innleiðingu
gilda, vinnurétt, jafnréttismál, greiningu
hæfni og fræðsluþarfa, fræðslu og þjálfun,
frammistöðumat, móttöku og þjálfun
nýliða, stjórnendaráðgjöf, stjórnendamat,
vinnustaðagreiningar og stjórnendaþjálfun.
Þess utan er hægt að leigja hjá fyrirtækinu
bæði fræðslu- og mannauðsstjóra.
„Fyrirtækið varð nánast til fyrir tilvilj-
un,“ segir Ingunn Björk en leiðir hennar,
Ingu Bjargar og Árnýjar lágu saman hjá
Eimskip þar sem þær unnu um árabil. „Ég
var á milli verkefna og Inga, sem einnig
er með lögmannsstofu, kallaði á mig. Við
vorum með samrunaverkefni til að byrja
með og eftir á að hyggja má segja að hug-
myndin að fyrirtækinu hafi kviknað þá en
viðskiptaáætlunin var síðan unnin við eld-
húsborðið. Smám saman varð til fyrirtæki
með heildstæða sýn og skýrt afmarkaða
stefnu.“
Ingunn Björk segir fyrirtækið vinna að
mannauðstengdum verkefnum. „Við erum
til dæmis með mannauðsstjóra til leigu fyr-
ir fyrirtæki og sjáum um öll starfsmanna-
mál fyrir þau. Þannig hefur verið háttað
með Tal undanfarin þrjú ár en með þessum
hætti sjáum við einnig um Ísfélagið í Vest-
mannaeyjum, Öryggismiðstöðina, Kex
Hostel og Nordic Visitors. Þetta eru ólík
fyrirtæki í ýmsum greinum. Við erum bæði
með fasta viðveru í fyrirtækjunum, þar sem
við erum starfsmannastjórar í skipuritum,
og keyrum verkefni.“
Auk þessa hefur Attentus sinnt úttektum
fyrir menntamálaráðuneytið, tekið út gæði
skóla og fleira. „Þá höfum við verið með
um fjörutíu fyrirtæki í verkefni, í tengslum
við stéttarfélög, sem kallast Fræðslustjóri
að láni. Verkefnið er mjög jákvætt og fékk
Starfsmenntaverðlaun Íslands í fyrra,“
segir Ingunn Björk. Hún bætir því við að
Attentus hafi komið víða að, í kjölfar krepp-
unnar, í erfiðum tilfellum þegar grípa þurfti
til uppsagna, niðurskurðar eða sameining-
ar fyrirtækja.
Þá nefnir Ingunn Björk ný verkefni með
Framtakssjóði Íslands. „Við höfum gert
áreiðanleikamat á mannauðsmálum þeirra
fyrirtækja sem sjóðurinn hefur keypt.
Þar leggjum við mat á fyrirtækin út frá
fyrirtækjamenningu og stjórnun, hvort
reksturinn sé áhættusamur út frá stjórn-
uninni og hvort hætta sé á starfsmanna- og
stjórnendaveltu. Við leggjum með þeim
hætti mat á móralinn en fram til þessa
hefur einkum verið rýnt í fjármál og tækni í
þessum kaupum.“
Ingunn Björk segir að viðskiptamódel
þeirra byggi á lítilli yfirbyggingu og ódýrri
þjónustu. „Við höfum lagt mikla áherslu á
nána samvinnu við stjórnendur.“
Það var við hæfi að fyrsta konan í emb-
ætti fjármálaráðherra, Oddný G. Harðar-
dóttir, afhenti verðlaunin í Ráðhúsi Reykja-
víkur í gær.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Útrás Íslenskt sÚkkulaði Í BandarÍkjunum
Nói í New York
Einn þeirra
rétta sem boðið
verður upp á í
New York – með
Nóa-súkkulaði.
Brautryðjendur attentus hlaut hvatningarverðlaun Fka
Fyrirtækið varð til
við eldhúsborðið
Attentus sérhæfir sig í ráðgjöf um alla þætti mannauðsstjórnunar. Hægt er að leigja hjá fyrirtækinu
bæði fræðslu- og mannauðsstjóra. Félagið sér algerlega um starfsmannamál nokkurra fyrirtækja.
Verð-
launin
eru mikil
hvatning
til okkar.
Inga Björg
Hjaltadóttir,
Guðríður
Sigurðardóttir,
Árný Elíasdóttir
og Ingunn Björk
Vilhjálmsdóttir.
Ljósmynd/Hari
32”
G R A N D I – L I N D I R – S K E I F A N – V E F V E R S L U N
AlmennAr upplýsingAr 544 4000
LINDIR SKEIFAN GRANDI
30 DAGA VERÐVERND
30 DAGA SKILARÉTTUR
99.995
eða 8.908 kr. á mánuði
miðað við 12 mánaða vaxtalaust lán, alls 106.896 kr.
leD sJÓnVArp
HD-Ready – upplausn 1366x768•
HyperReal myndvinnslubúnaður sem bætir myndgæðin•
2xHDMI, 1xScart, 1xComponent o.fl.•
USB tengi fyrir tónlist og ljósmyndir•
UE32D4004XXE
8 fréttir Helgin 27.-29. janúar 2012