Fréttatíminn - 27.01.2012, Page 28
4 vetrarfjör Helgin 27.-29. janúar 2012
KYNNING
F jallakofinn er verslun með alls kyns útivistarbúnað, en sérhæfir sig í meira krefjandi útivist. „Styrkur
okkar liggur í snjóflóðavarnarbúnaði og
alls kyns öryggisbúnaði fyrir þá sem
eru að ferðast,“ segir Smári Guðnason.
„Þar má nefna snjóflóðaskóflur, stangir
og snjóflóðaýla en þetta þrennt kallast
oft heilaga þrenningin í þessum bransa.
Í rauninni ætti enginn að fara á fjöll án
þess að vera með þennan búnað á sér. Við
erum að fá byltingarkenndan snjóflóða-
ýli sem er með fjórum loftnetum. Hann
er einnig með GPS stuðningi og gefur
því alltaf upp nákvæma staðsetningu
þess sem ber hann. Þetta er gríðarlega
mikilvægt þegar leitað er að týndu fólki í
snjóflóði. Búnaðurinn sem við erum með
er frá PIEPS og Black Diamond.“
Fjallaskíðaganga er alltaf
að verða vinsælli og vin-
sælli hér á landi og segir
Smári þá bjóða upp á allan
fjallaskíðabúnað fyrir
þá sem vilja vera uppi á
jöklum og á hálendi en í
slíkum ferðum er auðvit-
að mjög nauðsynlegt að
vera með alvörubúnað og
vera viðbúin öllum veðr-
um. „Skíðahjálmurinn
er sem betur fer að ryðja
sér til rúms á Íslandi.
Það hefur sérstaklega
vantað svolítið upp á að
íslenskir skíðaiðkendur
noti hann.“ Smári bætir
því við að fyrir þá sem
eru aðallega að reyna
að komast ferða sinna
á jafnsléttu í færðinni
sem verið hefur undan-
farið komi hálkugorm-
arnir að góðum notum.
„Þeir eru settir undir
skóna og hafa verið
mjög vinsælir hjá okkur.
Eins eru hálkubroddarnir einfaldir og
þægilegir í notkun fyrir þá sem eru til
dæmis að fara upp á Esjuna.“
Fjallakofinn rekur tvær verslanir,
Reykjavíkurvegi 64 Hafnarfirði og Lauga-
vegi 11 Reykjavík.
FjallaKoFINN
Útivistarvörur fyrir
byrjendur og lengra komna
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/F
LU
5
31
16
1
2/
11
SKEMMTUM
OKKUR
INNANLANDS
Með rjóðar kinnar og rjúkandi kakó bíða þín fannhvítar
hæðir og fjöll. Taktu flugið í næstu skíðabrekku og lyftu
þér upp milli þess sem þú rennir þér niður.
Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði.