Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 52
The Artist er í stuttu máli einfaldlega
stórkostleg kvikmynd – það ekkert nema
stórafrek nú til dags að segja dásamlega
fallega ástarsögu sem fer með áhorfand-
ann upp og niður allan tilfinningaskalann
í svart/hvítri og þögulli bíómynd. Hér er
sögð svo heillandi og ógleymanleg saga,
gerð af svo mikilli fagmennsku og alúð
að mann bókstaflega sundlar af töfrunum
sem bera fyrir augu manns á hvíta tjald-
inu. Í ofanálag er The Artist svo undur-
fagur óður til einfaldari og horfinna tíma.
George Valentin er stórstjarna í þöglum
bíómyndum og alveg mátulega sjálfum-
glaður. Fyrir algera tilviljun liggja leiðir
hans og stúlkunnar Peppy Miller saman
og verður til þess að hún öðlast einnig
frægð og frama í Hollywood. Á milli
þeirra kviknar strax neisti sem nær þó
ekki að verða að því ástarbáli sem hann
gefur fyrirheit um. Þegar talmyndirnar
leysa þær þöglu af hólmi þráast Valentin
við. Neitar að laga sig að breyttum tímum
og fellur því af stalli – ólíkt Peppi sem
verður skærasta stjarna talmyndanna.
Barátta Valentins við sjálfan sig og mót-
lætið er mögnuð og tilfinningatjáning
leikarans Jean Dujardin, með látbragði og
svipbrigðum, er ótrúleg. Þá er Bérénice
Bejo engu síðri í hlutverki Peppy. Sjarmi
hennar er ómótstæðilegur og ég minnist
þess ekki að hafa heillast jafn gersamlega
af nokkurri leikkonu á einu augabragði
eins og þessari undursamlegu konu.
Öllu er þessu komið til skila þegjandi
en ekki alveg hljóðalaust þar sem frábær
tónlist gefur tjáningu leikaranna mikil-
fenglega vængi og innsiglar þennan
yndislega töfrahring sem hverfist um
áhorfendur. Janúar er ekki enn liðinn en
ég held að það sé nokkuð óhætt að full-
yrða að fólki mun ekki bjóðast að sjá betri
mynd en The Artist í bíó á þessu ári. Jafn-
vel ekki á því næsta heldur.
Þórarinn Þórarinsson
44 bíó Helgin 27.-29. janúar 2012
W ar Horse gerist að mestu leyti á blóðugum vígvelli fyrri heims-styrjaldarinnar og segir frá ævin-
týralegri tilraun hins unga Alberts til þess
að endurheimta og bjarga gæðingnum sínum
honum Joey sem þjónar bresku riddaraliði í
stríðinu.
Foreldrar Alberts eru leiguliðar í Devon
á Englandi árið 1915. Dag nokkurn verður
Albert vitni að því þegar hryssa kastar
fallegu folaldi og þar með hefst falleg vinátta
drengs og dýrs. Albert er svo hugfanginn af
folaldinu að faðir hans ákveður, þrátt fyrir
takmörkuð fjárráð, að kaupa hestinn. Albert
gefur folaldinu nafnið Joey og með tímanum
tengjast þessir félagar sterkum tilfinninga-
böndum.
Vinunum virðist þó ekki ætlað að njóta
félagsskapar hvors annars til lengdar þar
sem uppskerubrestur setur heimilishald og
búskap foreldra Alberts í uppnám og faðir
hans sér ekki aðra leið úr hremmingunum
en að selja breska riddaraliðinu hestinn góða
til þess að geta greitt leiguna fyrir bújörðina.
Albert sættir sig ekki við þessi örlög og
þótt hann hafi ekki aldur til þess að berjast
í stríðinu eltir hann hinn ferfætta vin sinn
á vígvöllinn þar sem þeirra bíða ýmsar
hremmingar sem reyna bæði á mann og hest
til hins ítrasta.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.4, Rotten Tomatoes: 77%,
Metacritic: 72%
Frumsýnd War Horse
Ofurleikstjórinn Steven Spielberg lætur sér ekki verk úr hendi falla. Fyrir skömmu bauð hann
okkur upp á tölvuteiknaða rússíbanareið í gegnum heillandi ævintýraheim Tinna og nú geysist
hann fram á hestbaki og gerir sig jafnvel líklegan til afreka á Óskarsverðlaunahátíðinni með War
Horse; mynd sem þykir ná ekki síðri tilfinningatökum á áhorfendum og E.T. sællar minningar.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Stríðshestur Spielbergs
Bíódómur THe descendanTs
... þótt hann
hafi ekki
aldur til þess
að berjast í
stríðinu eltir
hann hinn
ferfætta
vin sinn á
vígvöllinn ...
Bíódómur THe arTisT
Albert eltir hinn ferfætta vin sinn á vígvöllinn.
Þögul snilld
Fyrstu mínúturnar
lítur The Desc-
endants út fyrir að
vera nánast hálf
púkalegt lítið sósí-
aldrama þar sem
rok og þunglama-
legt skýjafar hefur
komið í stað hinnar
eilífu sólar sem
Hawaii er þekktust
fyrir. Þegar sög-
unni vindur áfram
og frábær leikhóp-
urinn hefur skilað sínu verður hún hins vegar risastór og
dásamlega marglaga þroskasaga – á afskaplega áreynslu-
og yfirlætislausan hátt. Leikstjóranum Alexander Payne
tekst í The Descendants að fá mann til að hlæja upphátt á
nákvæmlega sama tíma og maður fær kökk í hálsinn og
tár í augun.
Payne hefur áður sýnt að hann er fær um að ná fram
frábærri frammistöðu hjá leikurum sínum. Sideways
gerði þann ólánlega leikara Paul Giamatti verðskuldað
að stjörnu og Thomas Haden Church var hreint magn-
aður sem útbrunninn kvennaljómi í sömu mynd. Í The
Descendants fer Payne skrefi lengra með afbragðs hóp
leikara. Hver og einn einasti sem birtist í mynd glansar –
sama hvort hlutverkið er lítið eða stórt.
Sagan segir frá um það bil viku í lífi lögfræðingsins
Matt King, sem George Clooney leikur. Eiginkona hans
liggur á spítala í dái eftir slys og King þarf skyndilega
að sinna tíu ára dóttur sinni, sem hann hafði ekki gert
mikið meira en að deila með þaki áður. Vegna slyssins
þarf hann að auki að sækja baldna sautján ára dóttur sína
í heimavistarskóla. Samband hans við stúlkurnar er í
molum, eins og reyndar flesta aðra. Stórfjölskylda hans
lúrir á gríðarlegu ríkidæmi, en hann hefur veitt dætrum
sínum sama uppeldi og hann fékk. „Þær fá nógu mikla
peninga til að gera eitthvað, en ekki svo mikla að þær
geri ekki neitt,“ segir hann. Slys konu hans, og nýjar upp-
lýsingar í kjölfarið, neyðir hann til að meta allt upp á nýtt.
Clooney á stjörnuleik í hlutverki King. Maður kaupir
hann fullkomlega sem þennan rúðustrikaða mann sem
virðist hafa verið fjarverandi úr eigin lífi um langa hríð.
Hvernig fer King að því að halda haus á sama tíma og allt
fer um koll í kringum hann er spurningin sem leitar á
áhorfendur. Er hann svona dofinn, er það æðruleysi eða
kannski ást? Myndin svarar því á eftirminnilegan hátt.
Jón Kaldal
Hlátur og grátur
George Clooney
leikur lög-
fræðinginn
Matt King sem
er tilneyddur til
að endurskoða
líf sitt. Shailene
Woodley er frá-
bær í hlutverki
dóttur hans,
eins og aðrir
í mögnuðum
leikarahópi
myndarinnar.
The Grey
Þegar flugvél
olíuleitarmanna
hrapar í auðnum
Alaska má segja
að þeir heppnu
hafi farist í slysinu
því eftirlifenda
bíður fátt annað
en að enda sem
aðalréttur hjá blóðþyrstum úlfum. Liam Neeson
leikur grjótharðan en lífsleiðan veiðimann sem
hefur þann starfa að vernda olíuleitarmennina
fyrir úlfunum og sá þarf heldur betur að taka á
honum stóra sínum í baráttu upp á líf og dauða
við óargadýrin og óblíða náttúruna.
Aðrir miðlar: Imdb: -,
Rotten Tomatoes: 75%, Metacritic: 53%
Man on a Ledge
Nick Cassidy er fyrrverandi lögreglumaður. Hann leigir sér
hótelherbergi í einu af háhýsum Manhattan þar sem hann
klifrar út um gluggann og býr sig undir að kasta sér út í opinn
dauðann. Uppátækið vekur athygli á jörðu niðri, sérsveit
lögreglunnar mætir á staðinn og sálfræðingur er sendur upp
á herbergið til þess að reyna að telja Nick hughvarf. Í ljós
kemur að Nick
telur sig hafa
verið svikinn
af aðilum innan stjórnkerfisins og
að hann hafi verið dæmdur saklaus
í fangelsi. Hann krefst réttlætis
því annars hafi hann ekki um neitt
annað að velja en að stökkva.
Aðrir miðlar: Imdb: -, Rotten
Tomatoes: 13%, Metacritic: 39%
OPIÐ HÚS
Skiptinemasamtök AFS eru með opið hús fimmtudaginn
2. febrúar. Allir sem vilja forvitnast um skiptinemadvöl,
sjálfboðaliðadvöl eða starfsemi okkar almennt eru hvattir til
að líta við og kynna sér það sem við höfum upp á að bjóða.
HVAR: Skrifstofu AFS, Ingólfsstræti 3, Reykjavík
HVENÆR: Fimmtudaginn 2. febrúar 2012
Allir velkomnir!
AFS á Íslandi · Sími 552 5450 · www.afs.is