Fréttatíminn - 27.01.2012, Qupperneq 54
Helgin 27.-29. janúar 201246 tíska
Gulur er
litur ársins
Fyrir nokkrum dögum
fögnuðu Kínverjar nýju
ári með flugeldasýningu
á efsta stigi, nokkrum
dögum eftir okkar ára-
mót. Fjörugt ár drekans
er aðeins rétt að byrja en
það mun einkennast af
miklu hugrekki, glamúr
og gleði. Drekinn býr yfir
mikilli sköpunargáfu,
samkvæmt kínverskri
speki og mun hönnun fara
á efsta stig á komandi mánuðum. Meira hugrekki
mun einkenna nýja hönnun á árinu og er því spáð
að við munum sjá frumlegar og fjörugar flíkur
sem ekki hafa sést áður.
En það er meira sem spilar inn í sköpunargleði
hönnuða á árinu. Hvert ár í kínverskri speki hefur
einhvern einn lit sem er hvað mest öflugastur. Í
fyrra var það hvíti liturinn sem hefur nært okkur
undanfarið og hreinsað anda og sál. Nú í ár, á ári
drekans, er tími gula litarins sem örvar sköpun,
eykur hugarflæði og eflir tilfinningalífið fyrir
sólríkt sumar. Því er tilvalið að vakna til vitundar
á nýju ári drekans og skipta út svörtu og þungu
flíkunum yfir í gular og glaðlegar flíkur sem örva
bæði umhverfið og okkur sjálf.
En þrátt fyrir að það sé ár gula litarins þýðir það
ekki að aðrir litir sjáist ekki á árinu. Við ættum öll
að lesa okkur til um kínversku spekina og finna
okkar eigin lit. Svo virðist, samkvæmt spekinni,
sem litirnir leiki stórt hlutverk í lífi hvers einstak-
lings og ættu allir að leita litarins sem passar best
við okkar persónuleika og hafa hann áberandi í
okkar nánasta umhverfi.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Það virðist sem snyrtivöruris-
inn Mac komi með nýjar línur
í hverri viku. Fyrirtækið kynnti
nýverið nýja og litríka línu sem
væntanleg er í vor og heitir
hún Cook Mac Collection
eða Matreiðslu-Mac-línan.
Auglýsingar línunnar voru
teknar í eldhúsinu og í mat-
vöruversluninni þar sem
velmálaðar húsmæður undir-
búa það þegar sest verður
að borðum. Línan samanstendur af sex ólíkum varalitum,
þremur kinnalitum, augnskuggum og fleiri skemmtilegum
vörum sem húsmæðurnar skemmta sér með áður en farið
er í eldhúsið. Línan er væntanleg hingað til lands mánuði
eftir að hún fer í sölu í Bandaríkjunum.
Litrík förðunarlína fyrir húsmæður
Ísraelska fyrirsætan Bar Rafaeli
vinnur nú hörðum höndum að klára
nýja nærfatalínu sem kemur í versl-
anir í Bandaríkjunum á Valentíusar-
degi. Fyrirsætan, sem þekkt er fyrir
sínar kvenlegu línur, sagði í nýlegu
viðtali við Us Magazine að það
vanti nærföt fyrir kvenmenn sem
ýta undir kvenlegan vöxt þeirra.
Nærfötum Rafaeli er ætlað að
reynast kynþokkafull, hún hannar
sjálf og verður nærfatnaðurinn
seldur lægra verði en nærfötin sem
lágvöruverðsverslanir á borð við
H&M selja.
Föstudagur
Skór: Converse
Buxur: Topshop
Peysa: Monki
Vesti: North Face
Þriðjudagur
Skór: GK skór
Buxur: Topshop
Peysa: Second hand
Sækir innblástur til áttunda
og níunda áratugarins
Fimmtudagur
SKór: Second Hand
Buxur: Monki
Peysa: American Apperal
Skyrta: Topshop
Miðvikudagur
Skór: H&M
Buxur: Topshop
SKyrta: H&M
Steinunn Helga Þor-
steinsdóttir er fimm-
tán ára tískubloggari
sem stundar nám á
síðasta ári í Réttarholt-
skóla.
„Stíllinn minn er
mjög fjölbreyttur
Mánudagur
Skór: Second hand búð
Sokkabuxur: Topshop
Pils: Weekday
Skyrta: American Apperal
Vesti: GAP
og ótrúlega misjafn.
Áttundi og níundi
áratugurinn höfðar til
mín þegar klæðnaður
er annars vegar og sæki
ég mikið í slíkar flíkur.
Fötin kaupa ég mest
í Monki, Topshop og
American Apperal –
þegar ég hef tækifæri
til að versla þar. Ég lít
mikið upp til íslenska
hönnuðarins Rósu
Bryndísar sem býr núna
í Kaupmannahöfn, en hún er
mest í að hanna nútímaflíkur
sem leggjast vel að líkam-
anum. Breska tískugyðjan
Alexa Chung er einnig sú
sem veitir mér innblástur
í tísku. Hún er alltaf flott,
fer sínar eigin leiðir og er
óhrædd hvað öðrum finnst.
Kate Moss í réttu ljósi
Ofurfyrirsætan Kate Moss, sem nýlega fagnaði 38 ára
afmæli sínu, er nýjasti talsmaður tískuhússins Mango fyrir
vor/sumar-línuna þeirra. Auglýsingaherferðin mun sýna Kate
í réttu ljósi; sem eiginkonu og móður, og verður hún ljós-
mynduð af hinum eftisótta stjörnu-
ljósmyndara Terry Richardsson.
Línan er væntanleg á markað
snemma í vor en herferðin
verður sett af stað í lok
næsta mánaðar.
Bar Rafaeli
hannar ódýr nærföt