Fréttatíminn - 27.01.2012, Qupperneq 62
Eurovision ForkEppni á laugardaginn
Íris Lind Verudóttir eignaðist bróður fyrir hálfu ári. Hún mun syngja lag hans Aldrei segja
aldrei í forkeppni Eurovision á morgun og segir textann vera með fallegan boðskap sem
hún tengir við.
Syngur lag bróður sem
hún fann fyrir hálfu ári
É g eignaðist nýjan bróður fyrir hálfu ári og gat ekki sagt nei þegar hann bað mig um að syngja þetta lag,“
segir söngkonan Íris Lind Verudóttir
sem syngur lag hálfbróður síns Péturs
Arnars Kristinssonar Aldrei segja aldrei
í forkeppni Eurovision á RÚV á morgun,
laugardag.
Íris Lind segist hafa vitað að hún ætti
hálfbróður samfeðra einhvers staðar en
ekki vitað nafn hans. „Síðan var það kona
sem þekkti til sem púslaði þessu saman.
Og eftir það hefur þetta verið eintóm
hamingja“ segir Íris Lind hlæjandi. Pétur
Arnar er ekki eina systkini hennar, þótt
hún sé einbirni móður sinnar, því hún á
alls sex önnur systkini sem hún kynntist
flestum þegar hún var ellefu ára. „Ég hafði
ekki hugmynd um að ég ætti þessi systk-
ini. Ég hafði bara alist upp hjá mömmu.
Þannig að það var mjög skemmtilegt,“
segir hún en faðir hennar á ættir sínar
að rekja til Filippseyja, Kína og Spánar.
„Hann er í Suður-Ameríku núna en ég er
ekki neinu sambandi við hann. Það er hins
vegar á tuttugu ára planinu að heimsækja
Filippseyjar.“
Íris Lind er 34 ára og hefur þrívegis áður
tekið þátt í forkeppni Eurovison og þá sem
bakraddasöngkona, síðast með vinkonu
sinni Hönnu Guðnýju Hallgrímsdóttur í
fyrra. Hún segist vera auðmjúk gagnvart
keppninni á laugardag. „Ég vona það besta
og er rosalega spennt. Ég þori ekki að
segja meira. En ég tengi við þetta lag og
textann. Maður á aldrei að gleyma draum-
unum sínum. Hversu fáránlegir sem þeir
virðast. Og maður á heldur aldrei að dvelja
í fortíðinni og reyna að breyta hlutum sem
maður get ekki breytt.“
Hún hefur gefið út tvær gospelplötur
sem hún segir hafa fengið mjög góðar við-
tökur í þeim þrönga hópi sem hlustar á
gospeltónlist. „Fólk misskilur gospeltón-
list og sér fyrir sér svartan gospelkór. En
gospel snýst ekki um taktinn eða tónlist-
ina heldur boðskapinn. Að boðskapurinn
bendi á frelsarann.“
Og talandi um frelsarann. Íris Lind er
frelsuð. Það gerðist fyrir nítján árum í
Krossinum. „Ég var ekki í neinu rugli en
fór á samkomu hjá Krossinum þegar ég
var fimmtán ára. Þá fann ég strax að þarna
ætti ég heima. Kærleikurinn var slíkur og
þar kynntist ég Jesú. Ég gaf honum líf mitt
og nota hann óspart þegar ég þarf á að
halda,“ segir Íris.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Íris Lind kynntist
gospeltónlistinni í
Krossinum og söng
meðal annars með
Páli Rósinkrans.
Ljósmynd/Emil
Stúlkurnar í Netagerðinni verða meðal
fjögurra fulltrúa Íslands sem Íslandsstofa
hefur valið til þátttöku fyrir Íslands hönd
á Stockholm furniture & light, sem fer
fram 7. til 11. febrúar en um er að ræða
eina stærstu og virtustu hönnunarsýn-
ingu á Norðurlöndum. Netagerðin opnaði
við Nýlendugötu nú í haust og hýsir ólíka
hönnuði og hönnunarteymi; Bryndísi
Bolla, Stáss, Siggu Heimis og Volki.
Netagerðin mun sýna ýmsar ólíkar vörur
á sýningunni til dæmis heimilistextíl úr
íslenskri ull, kolla, skápa, borð, hillur,
veggklukkur og hljóðdeyfandi veggverk
úr íslenskri ull. Hinir fulltrúar Íslands í
Stokkhólmi eru Lighthouse, Sýrusson og
Á.Guðmundsson.
Hin handlagna Bergrún Íris Sævars-
dóttir, önnur umsjónarkona þáttarins
Innlit/Útlit á Skjá einum, færði Margréti
Frímannsdóttur, fangelsisstýru á Litla-
Hrauni, nýlega leikfangaverkstæði fyrir
börn að gjöf. Hún hannaði og smíðaði
verkstæðið sjálf og því hefur nú verið
fundinn staður í leikherbergi fyrir börn
fanga sem koma á Hraunið til þess að
hitta feður sína.
„Ég var með rosalega ljótan hluta
úr hillusamstæðu sem ég fann í Góða
hirðinum sem mig langaði að gera eitt-
hvað við, “ segir Bergrún og bætir við að
stærðin á hillunni hafi hentað vel til þess
að gera eitthvað sem börn gætu staðið
við að leik. Eldhús og verkstæði komu
upp í hugann og hún ákvað að breyta
hillunni í verkstæði. „Þetta er svona
krakkaverkstæði með alls konar dóti,
verkfærum og leikfangahjálmi.“
Þegar verkstæðið var tilbúið sá Berg-
rún ekki fram á að hafa pláss til þess
að geyma það og fór að velta fyrir sér
hverjum hún gæti gefið það. „Tobba Mar-
ínósdóttir stakk þá upp á Litla-Hrauni.
Hún hafði heimsótt fangelsið og gert
þátt um aðstandendur fanga og kom með
þessa æðislegu hugmynd. Þannig að ég
hafði bara samband við Möggu [Mar-
gréti Frímannsdóttur] og sendi henni
mynd af þessu. Mér skilst að hún hafi
prentað myndina út og sýnt strákunum
sem voru allir mjög spenntir og hún tók
svo bara við þessu hjá okkur. Mér skilst
að þetta hafi smellpassað inn í leikher-
bergið á Litla-Hrauni. Magga var alveg
í skýjunum með þetta enda mætti vera
vistlegra hjá aðstandendum fanganna og
krökkunum þeirra. Þannig að hún var
rosa fegin að fá þetta og sagði að þetta
myndi passa mjög vel.“
Innlit/Útlit hefur göngu sína að nýju
á Skjá einum 14. febrúar og þar verður
gjöfinni til barna fanganna gerð skil. -þþ
BErgrún Íris lÍFgar upp á aðstöðu FangaBarna
Gaf Litla-Hrauni leikverkstæði
Bergrún fór létt með að breyta hillu í leikfang sem börn fanga
á Litla-Hrauni njóta nú góðs af.
Eilíf ást
Lag: Herbert Guð-
mundsson og Svanur
Herbertsson
Texti: Herbert Guð-
mundsson
Flytjandi: Herbert Guð-
mundsson
Hugarró
Lag: Sveinn Rúnar
Sigurðsson
Texti: Þórunn Erna
Clausen
Flytjandi: Magni Ás-
geirsson
Aldrei
sleppir mér
Lag og texti: Greta
Salóme Stefánsdóttir
Flytjendur: Aðalheiður
Ólafsdóttir og Guðný
Árný Karlsdóttir
Augun þín
Lag: Hilmar Hlíðberg
Gunnarsson
Texti: Þorsteinn Egg-
ertsson
Flytjandi: Svenni Þór
Aldrei segja
aldrei
Lag og texti: Pétur
Arnar Kristinsson
Flytjandi: Íris Lind
Verudóttir
Fimm lög keppa á morgun
Netagerðaskvísur sýna í Stokkhólmi
Yrsa söluhæst í
þýskum bókavef
Yrsa Sigurðardóttir átti
söluhæstu bók íslenskra
höfunda árið 2011 á þýsku
vefbókasíðunni libri.de. Bók
hennar Geisterfjord, þýsk
útgáfu metsölubókarinnar
Ég man þig, seldist best allra.
Í öðru sæti var Frevelopfer
Arnaldar Indriðasonar, sem
kom út árið 2008 á Íslandi
sem Myrká. Arnaldur á alls
sex bækur á topp tíu listanum
og Yrsa tvær. Hallgrímur
Helgason er í áttunda sæti
með bók sína Tíu leiðir... og
Valkyrjur Þráins Bertelssonar,
á þýsku Walkürien, voru í
níunda sæti.
Hera og Haffi við toppinn
Söngkonan Hera Björk fer með himinskautum
þessa dagana eftir að lag hennar og Haffa Haff,
Feel the love Tonight, komst annað sæti á lista
eurodanceweb.com árið 2011. Listi þessi mun vera
virtur vel og valinn af atvinnuplötusnúðum, tón-
listarblaðamönnum, pródúsentum og vefstjórum
vinsælla vefsíðna og blogga í Evrópu. Meðal þeirra
sem óska Heru sérstaklega til hamingju með
árangurinn á Facebook-síðu hennar eru Ragnheiður
Elín Clausen, Eurovision-höfundurinn Peter Fenner
og söngdúfurnar Guðrún og Pálmi Gunnarsbörn –
þó alls óskyld.
54 dægurmál Helgin 27.-29. janúar 2012