Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 2
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@ frettatiminn.is Brottför: 16. júní Örfá sæti laus Innifalið í verði: Sjá á www.sunnuferðir.is 384.000 kr. Nánari upplýsingar og bókanir í síma 555 4700 og á www.sunnuferdir.is Á söngvaleiðir Davíðs Ítalía 15 dagar á Ítalíu undir fararstjórn Garðars Cortes óperusöngvara á söngvaleiðir skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Við fylgjum söngvaslóð Davíðs og byrjað er í Flórens. Garðar syngur fyrir okkur ljóðin þar sem þau voru samin og segir söguna um það hvernig þau urðu til. Ógleymanleg menningarferð um Ítalíu!  Rjúpnahæð Beitt og stóRhættuleg jáRn út úR steypuklumpi Fann hundinn alblóð- ugan með lifrina úti Járnfleinar sem stóðu út úr undirstöðu gamals útvarpsmasturs á Rjúpnahæð urðu þriggja ára hundi að aldurtila. Dýralæknar hafa aldrei séð jafn alvarlega áverka á hundi. Starfsmenn Ríkisútvarpsins fjarlægðu járnin eftir slysið en hundeigandinn segir það makalaust að járnin hafi verið óvarin öll þessi ár þar sem hundar eru viðraðir og börn eru að leik. É g taldi þetta öruggt svæði og gerði mér ekki grein fyrir hættunni,“ segir Selma Olsen sem missti hund sinn í hastarlegu slysi á Rjúpnahæð, ofan við skíða- svæðið í Seljahverfi í Reykjavík. „Ég gekk þarna með tvo hunda í nokkrar mínútur á mánudaginn í síðustu viku en fannst of hvasst svo ég ákvað að snúa við. Annar hundurinn, Eldar, skilaði sér ekki á bílastæðið svo ég sneri við og fór að leita hans. Í fyrstu fann ég hann ekki en sá hann svo á þeim slóða sem ég hafði verið á, alblóð- ugan með húðina lafandi niður og lifrina úti. Samt kom hann á móti mér. Ég lyfti hund- inum eins varlega og ég gat í bílinn og hann stóð allan tímann meðan ég brunaði með hann á dýraspítalann í Víðidal. Þangað er aðeins um fimm mínútna akstur. Þar tóku við honum þrír læknar sem voru í um tvo tíma sauma hann, inn- og útvortis en Eldar lifði ekki nema í um þrjátíu tíma eftir slysið. Hann var með skaddaða lifur, milta og nýra, auk blöðru. Þá hafði annað lungað fallið saman. Öll rifbeinin hægra megin voru brot- in, sum margbrotin. Þá voru margar tennur brotnar hægra megin. Hann fór einhvern veginn alveg í rúst,“ segir Selma. Hún sagði að á þeirri stundu hafi hvorki hún né læknarnir gert sér grein fyrir því hvað það hefði verið sem nánast risti hund- inn í sundur. Hún hefði því farið aftur á stað- inn og séð þar steypuklump og út úr honum stóðu tvö beitt járn, annað nánast eins og exi eða hnífur með löngu blaði. „Hundurinn hefur ábyggilega komið á eftir mér, stokkið upp á steypuplötuna og líklegt er að veðrið hafi truflað hann í niðurstökkinu en svæðið þekkir hann vel enda höfum við oft verið þarna. Morguninn eftir að hundurinn dó athugaði ég hver bæri ábyrgð á þessu og komst að því að þarna á Rjúpnahæðinni var Ríkisútvarpið með möstur. Þau fuku fyrir mörgum árum en járnfestingar á undirstöð- um þeirra hafa aldrei verið teknar. Ég hafði strax samband við Ríkisútvarpið. Sá sem varð fyrir svörum sagði að sér þætti þetta leiðinlegt og þakkaði mér fyrir að láta vita af háskanum. Strax á miðvikudaginn fóru þeir og söguðu járnin af. Það er hins vegar maka- laust að þetta skuli hafa verið svona í mörg ár, að enginn skuli hafa hugsað um að taka þetta. Við erum nokkur, kannski tugur eða svo, sem förum á svæðið með hunda og á sumrin hafa börn verið þarna að leik. Svona hættur eru út um alla borg. Það er einhver veikleiki hér að ganga aldrei frá hlutum.“ Eldar var þriggja ára gamall, ræktunar- hundur af tegundinni Whippet. Eftir aðgerð- ina hélt hann að mestu athygli og sýndi mik- inn hetjuskap, að sögn Selmu, en það dugði ekki þótt allt hafi verið gert til að bjarga lífi hans. Dýralæknar sögðu henni að þeir hefðu ekki áður séð jafn alvarlega áverka á hundi. „Maður er í sjokki,“ segir Selma. „Ég hef aldrei á ævinni upplifað neitt jafn ömurlegt. Ég hef varla verið í sambandi síðan þetta gerðist. Þetta var saklaust dýr.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Beitt járn stóðu út úr steypunni, fyrrum undirstöðu útvarpsmasturs. Möstrin fuku fyrir mörgum árum. Starfsmenn Ríkisútvarps- ins söguðu járnin burt eftir slysið. Enn er þó mikið af sams konar járnum út úr steypuklumpum á svæðinu og gaddavírsflækjum. Eldar var þriggja ára. Ófrágengin járn á steypu- klumpi urðu honum að aldur- tila. Hann skarst svo illa að iðrin lágu úti og bein og tennur brotnuðu. Ljósmyndir Selma Olsen Ég hef aldrei upplifað neitt jafn ömurlegt. Vilja reka gistiheimili í Heilsuverndarstöðinni Félagið Álftavatn, sem á hið sögufræga hús Heilsu- verndarstöðina við Barónsstíg, hefur sótt um leyfi til að innrétta gistiheimili á 1. hæð og hluta 2. hæðar húsins. Fyrir eru á fleti sameinað embætti land- læknis og Lýðheilsustöð. Þorsteinn Steingrímsson, eigandi Álftavatns, segir, í samtali við Fréttatímann, að hann sé eingöngu að kanna hvort leyfi fáist til að reka slíka starfsemi í húsinu. „Ég er ekki á þeim buxunum að fara að reka þetta sjálfur en ég þarf að geta leigt þetta út,“ segir Þorsteinn og bætir því við að fjölmargir hafi haft samband við hann og lýst yfir áhuga á því að reka gistiheimili í húsinu. Málinu hefur verið vísað til skipulagsstjóra. -óhþ  FjölskylduR FoRvaRniR íþRóttastaRFsins viRka Að börn úr brotnum fjölskyldum fái líka að stunda íþróttir Íþróttafélög þurfa að hafa augun opin svo að unglingar sem hafa ekki sterkt bakland heima fyrir geti stundað íþróttir. Þetta segir Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor í sálfræði við Háskól- ann í Reykjavík. Bryndís segir mismunandi eftir sveitarfélögum hversu ríkur stuðningur við fjöl- skyldur er í þessum efnum. Í flestum þeirra sé þó undir foreldrunum komið að sækja um þá aðstoð sem býðst en þetta láist mörgum að gera eða eru sofandi gagnvart. „Börn sem búa við brotið bakland, við fátækt eða koma frá heimilum þar sem miklar erjur eru þurfa að hafa aðgang að íþróttastarfi og fá að vera í eins ríku starfi og aðrir,“ segir hún. Bregðist foreldrarnir er því mikilvægt að íþróttafélögin geri það ekki, þar sem rannsóknir Rannsókna og greiningar sýna að hreyfing og skipulagt tóm- stundastarf auki líkur á heilbrigðu líferni ungs fólks. „Íþróttaþátttaka þeirra sem búa við álag heima fyrir getur bætt líðan og líkamlegt atgervi. Þá gefst ungmennum sem búa við erfiðar heimilisað- stæður tækifæri til að eignast vini í hóp með sömu markmið og ná árangri á áhugasviði sínu.“ Fylgst vel þeim sem mæta Líney Rut Halldórsdóttir, fram- kvæmdastjóri ÍSÍ, segir almennt vel fylgst með þeim sem komi inn í íþróttastarfið. Við krepp- una hafi félög á höfuðborgar- svæðinu skoðað ástæður þess þegar börn hætta. Væru þær fjárhagslegar hafi börnum verið boðið að taka þátt áfram. Þá hafa íþróttakennarar í skólum ýtt undir það að krakkar leiti í íþróttastarf og félög verið með kynningar í skólum til að ná til hinna. „En alltaf má gera betur.“ Bryndís Björk Ásgeirsdóttir lektor. Sjálfsvígum fjölgar ekki hlutfallslega 40 SJÁLFSVÍg ERu taLin HaFa VERið FRaMin Árið 2010 Land læknis embættið Sjálfsvígum fjölgaði ekki frá árunum 2006 til 2010 sé miðað við bráðabirgðatölur Landlæknisembættisins. Á vef embættisins segir að sjálfsvíg hafi undanfarin ár verið 35 á ári. Þau hafi verið 32 árið 2006, 37 árið 2007, 38 árið 2008 og 36 árið 2009 en 40 árið 2010. „tölur um sjálfsvíg á árinu 2011 virðast enn sem komið er lægri en árin á undan þó að gögn séu augljóslega skemmra á veg komin í vinnslu,“ segir á vefnum: „Rétt þykir að koma þessu á framfæri vegna orðróms um hið gagnstæða.“ Árið 2006 voru Íslendingar tæp þrjú hundruð þúsund. Þeim hefur fjölgað ár frá ári utan þess að fækka um hálft prósent milli áranna 2008 og 2009. Í ársbyrjun voru landsmenn 319.575. - gag Ferðamanna- met í mars alls fóru 33.600 erlendir ferða- menn frá landinu í nýliðnum mars eða tæplega sjö þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2011, að því er fram kemur í tölum Ferðamálastofu. aukning ferðamanna mældist 26,2 prósent milli ára en á því ellefu ára tímabili sem Ferðamála- stofa hefur talið ferðamenn í Leifsstöð hefur aukningin verið að jafnaði 7,9 prósent milli ára í mánuðinum. Ferðamenn í mars voru tæplega helmingi fleiri en í sama mánuði árið 2002. Flestir ferðamenn í mars voru frá Bretlandi eða 27,1 prósent af heildarfjölda. næst fjölmenn- astir voru Bandaríkjamenn eða 13,4 prósent. Síðan komu norðmenn, 9,4 prósent, Danir, 8,0 prósent, Þjóðverjar, 6,0 prósent, Frakkar, 5,2 prósent, Svíar, 5,0 prósent, og Hollend- ingar, 3,8 prósent. Samtals voru þessar átta þjóðir 77,9 prósent af heildarfjölda ferðamanna í mars. Frá áramótum hafa 87.658 erlendir ferðamenn farið frá landinu sem er um 22 prósenta aukning frá árinu áður. - jh 2 fréttir Helgin 5.-8. apríl 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.