Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 62

Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 62
Breska tískuhúsið mun hefja sölu á nýrri förðunarlínu í næsta mánuði sem sækir innblástur sinn til kvik- myndarinnar Clueless. Línan mun þó aðeins samanstanda af einum varalit sem Cher, leikin af Alicia Silverstone, var svo hrifin af í myndinni. Liturinn er skær- bleikur í anda þess sem við sáum svo greinilega í vortískunni á tískupöllunum fyrr í vetur og sannast þá hið forkveðna að tískan gengur alltaf í hringi. Helgin 5.-8. apríl 201250 tíska 5 dagar dress Mikill kostur að vinna í fatabúð Helga Gunndís Þórhalls- dóttir er 21 áraog vinnur í Gallerí Sautján. Í haust stefnir hún á viðskipta- fræðinám í Háskóla Íslands: „Stíllinn minn er mjög venjulegur. Ég reyni að tolla í tískunni og finnst mér það vera mikill kostur að vinna í fatabúð þar sem ég get fylgst náið með henni. Olsen-tvíburasysturnar eru einnig mér miklar fyrirmyndir þegar kemur að tísku, enda alltaf flottar, sama í hverju þær eru. Fötin mín kaupi ég mest í Sautján, Forever21, Monki, H&m en líklegast er Urban Outfitters í allra mesta uppáhaldi.“ tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar Rússarnir glysgjarnir Í ferðalagi mínu til Kína kom ég stuttlega við í Rússlandi. Ég mætti á köldum vormorgni þar sem heimamenn stóðu rólega í rúllustiga og létu hugann reika, líklega til hins nýja dags sem þá var rétt að hefjast. Það er ekkert stress. Konurnar hljóta að vakna nokkru fyrr en karlarnir á morgn- anna því þær leggja mikið upp úr útlitinu, sem er tímafrek iðja. Þær voru flestar, ef ekki allar, með andlitið stífmálað, í velvöldum spariskóm – oftar en ekki með fimmtán sentímetra hæl. Kven- þjóðin lætur vetrarkuldan ekkert á sig fá og við himinháu hælana klæðast þær þunnum nælon- sokkabuxum, hlutlausum kjól og aðsniðnum pels sem bundin er um mittið. Þær voru flestar flottar, hávaxnar og grannar; eins og klipptar út úr tísku- blaði sem ... kom út fyrir fimm árum. Karlpen- ingurinn í Moskvu er hinsvegar önnur saga. Þeir grípa bara stóru loðhúfuna á leiðinni út í kuldann, troða sér í kuldaskó, hoppa út og tilbúnir í að takast á við nýjan dag. En eitt eiga kynin sameiginlegt í Rússlandi: Þau sækja bæði mikið í glys. Hvort sem við tölum um eldri konur með gulltennur eða unga stráka með keðjur um háls og stóra gullhringi þá er þetta ein- kennandi. Svona er tískan í Rússlandi. Öðruvísi, áberandi og frábrugðin því sem við þekkjum hérna heima. Það er eins og landið sé einangrað sé litið til vestrænna tískustrauma. Tískan þar virðist undir litlum áhrifum frá öðrum löndum. Naglalakk a la Obama Þriðjudagur Skór: Gs skór Buxur: Gallerí Sautján Skyrta: Urban Outfitters Hálsmen: Gallerí Sautján Mánudagur Skór: Gs skór Buxur: Gallerí Sautján Skyrta: Urban Outfitters Bolur: Gallerí Sautján Hátískuhönnuðurinn Marc Jacobs hefur ákveðið, í kjölfar velgengi ilmarins Lola sem kom út á síðasta ári, að framleiða nýja ilm undir nafninu Marc Jacobs Dot. Ilmurinn er væntan- legur í ágúst á þessu ári og er um að ræða þróun á áðurnefndum Lola. Þetta er hans þriðji ilmur en bæði Daisy og Lola slógu sölumet á síðasta ári. Mikil eftirvænt- ing er fyrir ilminum og segir hönnuðurinn þetta vera hans besti ilmur hingað til. Varalitur í anda Clueless Tískutímaritið Marie Claire kynnti nýja handbók á dögunum sem hefur fengið nafnið Outfit 911. Bókin á bæði að hjálpa stelpum á öllum aldri sem eiga erfitt með að ákveða sig í hverju á að klæðast á morgnanna og einnig við að endurskipuleggja fataskápinn sinn þannig að hann endist. Hand- bókin er auðveld upp- flettingar og eru kaflar hennar vel skipulagðir með allskonar hjálplegum ábendingum. Hún er nú fáanleg á vefsíðu fyrirtækisins fyrir rúmar 2000 krónur. Tískuráðgjöf fyrir stelpur Miðvikudagur Skór: Aldo Buxur: Gallerí Sautján Skyrta: American Apperal Hálsmen: Forever 21 Jakki: Gallerí Sautján Fimmtudagur Skór: Din Sko Stuttbuxur: Topshop Skyrta: Gllerí Sautján Bolur: Forever21 Trefill: Corner Föstudagur Skór: Dúkkuhúsið Stuttbuxur: H&M Skyrta: Urban Outfitters Pels: Rokk og rósir Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.