Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 34
4 brúðkaup Helgin 5.-8. apríl 2012 Einstakar brúðargjafir Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is Hefðir og hjátrú tengdar brúðkaupi Hver þekkir ekki hjátrú á borð við þá að brúðguminn megi ekki sjá brúðina í brúðarkjólnum fyrir brúðkaupið og að mikilvægt sé að vera í einhverju bláu og einhverju sem fengið hefur verið að láni. Margar slíkar hefðir fylgja brúðkaupum en auðvitað er það hverjum í sjálfsvald sett hvort hann fylgir þeim eftir. Sumar hefðirnar eiga uppruna sinn í Bandaríkjunum eða Bretlandi og aðrar koma úr heimum kvikmyndanna, en fæstar hafa þær samt sem áður lifað mjög lengi hér á landi. Brúðkaup voru yfirleitt í mjög hógværum og látlausum stíl fram um miðja 20. öld á Íslandi og í byrjun sömu aldar voru kirkjubrúðkaup nánast óþekkt og veislur sjaldgæfar. Gömul hjátrú um brúðkaupið Hvaða gömlum hefðum er algengt að fylgt sé nú til dags? Áður fyrr þótti alveg óhugsandi að brúðurin saumaði kjólinn sinn sjálf. Ef hún gerði það yrðu tár hennar jafnmörg í hjónabandinu og saumsporin í kjólnum. Kjóllinn mátti ekki heldur vera of þröngur því þá yrði þröngt í búi. Það sama gilti um skóna. En ef faðir brúðarinnar setti silfurpening í skóinn hennar átti hún aldrei að þurfa að líða skort. Nú til dags er algengara að hefðir á borð við að klæðast einhverju lánuðu, bláu, gömlu og nýju séu í hávegum hafðar. Hefðin á uppruna sinn að rekja til Englands og táknaði blái liturinn ást, tryggð og hógværð og hluturinn sem fenginn var að láni varð að vera frá hamingjusamri manneskju sem lánaði hamingju sína. Hið gamla táknaði svo eilífa ást og hið nýja bjarta framtíð. Ómögulegt er hins vegar að segja hvort farið sé eftir þessu vegna hefðarinnar eða hjátrúar. Blóm og sokkabönd Brúðarvöndurinn á sér langa sögu, eða allt til seinni hluta 19. aldar í Evrópu. Fyrir þann tíma var algengt að brúðurin héldi á sálmabók eða vasaklút í hendin- ni. Til að byrja með var vöndurinn lítill og yfirleitt gerður úr hvítum blómum. Með tímanum stækkaði hann og fékk meira vægi. Rósir urðu oft fyrir valinu en samkvæmt hefðinni átti brúðguminn að velja blóm í vöndinn. Nú til dags velja brúðhjóninn yfirleitt blómin saman, nú eða brúðurin sjálf með hjálp vinkvenna eða móður og tengdamóður. Blómin eru oftar en ekki hluti af þema brúðkaupsins hvað varðar liti og stemningu og er barmblóm brúðgumans ávallt í stíl við vöndinn. Enn í dag er algengt að brúðar- vendinum sé kastað til ógiftra kvenna í veislunni. Það er brúðurin sjálf sem sér um að kasta vendinum en sú sem grípur hann verður, samkvæmt hjátrúnni, sú næsta til að gifta sig. Sú hefð að kasta sokkabandi brúðarinnar til ógiftra karla tengist hins vegar þeirri hjátrú að gæfa fylgi því að eiga bút úr brúðarkjólnum. Leyndardómur brúðarslör- sins Slör brúðarinnar er hvítt og táknar, líkt og hvíti kjóllinn, hreinleika hennar. Slörið hafði hins vegar annan og síður up- phafinn tilgang áður fyrr. Sagan segir að þegar foreldrar sáu um að velja unnusta fyrir dætur sínar mátti brúðguminn alls ekki sjá brúðina fyrir brúðkaupið og helst ekki fyrr en eftir athöfnina. Þess vegna var slörið oft haft mjög þykkt, stundum svo þykkt að brúðurin sjálf sá ekki út um það og faðir hennar varð að leiða hana upp að altarinu. Slörið huldi því útlit hennar og kom í veg fyrir að tilvonandi brúðgumi hætti við brúðkaupið, litist honum ekki nógu vel á verðandi brúði sína. Í dag er slörið yfirleitt notað sem skraut og eru alls ekki allar verðandi brúðir hrifnar af því. Þá og nú Það er greinilegt að margar hefðir lifa góðu lífi hér á landi þótt þær eigi up- pruna sinn í öðrum löndum. Flest bera brúðhjón giftingarhring sem táknar eilífa ást og enn giftast flestar konur í hvítu þrátt fyrir að sumar séu að gifta sig í annað og þriðja sinn. Þegar kemur að hjátrúnni, hvort sem fólk trúir í raun á afleiðingar þess að brjóta reglur hennar eða ekki, þá þykir mörgum greinilega betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. ehþ Í brúðarförðun er oft leitast eftir mildri og náttúrulegri förðun. Slík förðun hentar vel til í því samhengi þar sem bæði brúðkaupið sjálft og myndatakan fer oftar en ekki fram í dagsbirtu. Þóra Mattí- asdóttir er förðunarfræðingur hjá Yves Saint Laurent og hún upplýsir hér hvernig hún ber sig að þegar förðun brúðar er annars vegar: Top Secret línan frá Yves Saint Laurent hentar einstaklega vel fyrir verðandi brúðir. Í henni er að finna sérhæfðar vörur sem eru sérstak- lega hannaðar út frá heilræðum förðunarmeistara til að fullkomna förðunarárangurinn og veita ein- stakan ljóma. Undirbúningur húðar Til þess að undirbúa húðina sem best er tilvalið að nota Top Sec- ret Natural Action Exfoliator 1-3 sinnum í viku í allt að 2 vikur fyr- ir brúðkaupsdaginn sjálfan. Þetta er vinsælasta varan í línunni og hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð. Hún virkar eins og kornaskrúbbur en inniheldur engin korn. Top Secret Natural Action Exfoliator 1-3 er í raun nátt- úruleg virk húðslípun án korna. Í stað kornarnna eru ensím sem fjar- lægja dauðar húðfrumur á mildan hátt. Berist á þurra húðina með þurrum höndum og nuddið þar til áferðin verður fljótandi og silki- mjúk. Hreinsið því næst af með rökum klút. Eftir hreinsun er nauðsynlegt að næra húðina vel með góðu raka- kremi. Ávinningurinn er jöfn og slétt áferð húðar. Silkimjúk og ljóm- andi húð sem er tilbúin fyrir fallega förðun. Undirfarði Top Secret Flash Radiance undir- farðinn í bursta rakafyllir húðina samstundis. Hann dregur úr öll- um þurrki og þurrkublettum auk þess sem hann mýkir húðina, lýsir húðlitinn og gefur samstundis ein- stakan ljóma. Hann er borinn á al- veg hreina húðina og beðið er í 2 mínútur áður en farðinn er borinn á. Farðinn aðlagast húðinni betur, fær meiri ljóma og endist lengur. Farði Perfect Touch Radiance 05 farðab- urstinn varð fyrir valinu. Það er létt- ur og náttúrulegur farði sem jafn- ar áferð húðarinnar, mattar, gefur ljóma og dregur úr húðlítum. Farða ber ég aldrei alveg upp að augum heldur aðeins upp að augnbeini. Húðin í kringum augun er svo þunn að þegar farði er borinn í kringum augun getur það dregið fram línur og myndað skugga sem eru jafnvel ekki til staðar. Þess í stað kýs ég að nota Touche Éclat ljómapenna með þynnri formúlu til að lýsa upp svæðið í kringum augun sem bland- ast svo saman við farðann þar sem þeir mætast. Pennann nota ég líka í kringum varir meðfram nefinu í átt að vörum og undir augabrún. Hann má í rauninni nota hvar sem er yfir farðann til að lýsa og fá meiri ljóma í húðina. Kinnalitur Uppáhalds varan mín fyrir kinnarn- ar er Creme de Blush kremkinna- liturinn. Ég notaði lit nr. 1. Best finnst mér að bera hann og og dreifa létt úr honum með fingrunum eða hringlaga förðunarbursta sem er frekar mjúkur. Áferðin er eins kon- ar froðukremsáferð sem aðlagast húðinni fullkomlega og skilur ekki eftir púðuráferð eða auka lag á húð- inni. Augu Á augun byrjaði ég á að nota Long lasting augnblýant nr. 6, bæði með- fram neðri og efri augnhárum. Það er mildur brúnn litur sem rammar augun örlítið. Ég valdi Ombre 5 Lumiere augn- skuggapallettu nr. 9. Dekkri brúna litinn setti ég örlítið yfir blýantinn, aðeins í skyggingu og í glóbuslín- una. Ljósbleika litinn notaði ég svo yfir augnlokið og lýsti miðjuna og innri augnkrók svo með ljósasta litnum. Dekkri blái liturinn er svo settur rétt meðfram efri augnháral- ínu í átt að ytri augnkrók til að fá meiri dýpt. Blautur Shocking Eyeliner er alltaf fallegur í milda förðun. Hann er svo auðveldur í notkun að það er nánast engin leið að klúðra honum. Ég hef alltaf sagt að þetta sé blaut- ur eyeliner sem hver sem er getur notað. Best finnst mér að leggja ská- hallt á augnháralínuna og fá stuðn- ing frá augnhárunum áður en hann er dregin áfram. Því næst setti ég Mascara Volume Effect Faux Cils maskara sem er alltaf jafn fallegur. Hann þykkir lengir og greiðir vel úr augnhárunum, auk þess sem hann inniheldur B5 vítamín sem nærir og verndar augnhárin. Varir: Á varirnar valdi ég lit sem er í vor-lo- okinu núna og heitir Rouge Volupte Candy nr. 9. Volupte Candy litirnir eru mjög léttir og þeir gefa mikinn raka og mikla næringu. Litirnir eru ekki mjög sterkir en gljáinn er alveg einstaklega fallegur og passar sér- staklega vel fyrir bjarta og sérstaka daga eins og brúðkaupsdaginn. Módel: Hildur Björnsdóttir Förðun: Þóra Matthíasdóttir  BrúðArFörðUn - Kaldir litir Brúðarförðun Förðunin tekur meðal annars mið af því að brúðkaup og ljósmyndataka eru oftast að degi til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.