Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 15
FANTA
GOTT
FORM
6 vikur - fyrir konur og karla
FGF námskeiðið hefur náð miklum vinsældum. Æfingakerfið byggist
á einföldum æfingum sem þjálfa upp þol, styrk og snerpu á skjótan og
hnitmiðaðan hátt. Grunnbrennsla eykst og í hverjum tíma myndast
eftirbruni í líkamanum sem gerir það að verkum að hitaeiningabrennslan
heldur áfram á auknum hraða í nokkrar klukkustundir eftir að æfingu lýkur.
Skráðu þig á þetta öfluga námskeið og vertu í fanta góðu formi.
Það er aldrei of seint að skora á sjálfa/n sig og komast í sitt besta form.
BRENNSLA - STYRKUR - SNERPA
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningu,
verð og skráningu finnur þú á www.hreyfing.is
Sjáðu hvað þátttakendur segja um námskeiðið
á www.hreyfing.is/namskeid
Öldurnar vagga henni í svefn
Það er komið kvöld þegar Hulda
ræðir við Fréttatímann. Hún er sest
um borð og horfir yfir flóann. „Við
höfum það ósköp gott. Hér er lífið
afslappað, notalegt og rólegt. Við
búum á þessum báti sem er ágæt-
is heimili. Við vitum aldrei í hvaða
átt við snúum þegar við vöknum á
morgnana. Við erum frjáls og ekki
bundin rútínu annarra. Það hefur
alltaf komið sér vel fyrir okkur. Við
erum svolítið ó-vanaföst,“ segir hún.
„Við keyptum þennan bát og
byggðum og innréttuðum eins og
okkar þóknaðist. Þetta var eins og
að búa í Reykjavík og eiga sumar-
bústað upp í Mosfellsbæ. Við vorum
hér allar helgar. Við vorum stöðugt
að flytja á milli mat og sængurföt.
Þetta er dýr og flottur bátur og okk-
ur fannst synd að nota hann ekki
meira. Þegar við svo eignuðumst
þriðja barnið okkar var ég hér í
fæðingarorlofinu. Smám saman sá
Steindór að hann fengi mig ekki
aftur heim. Hann fór því að koma
hingað oftar, eitt leiddi af öðru og
hér búum við í dag. Hér höfum við
það í rauninni rýmra en í húsinu
sem við bjuggum í,“ segir hún. En
með tvö lítil börn. Óttast hún ekkert
að þau álpist útbyrðis.
„Nei, við erum svo mörg fullorðin
hér um borð. Pabbi er talsvert hjá
okkur og svo höfum við þrjá starfs-
menn heimafyrir sem hjálpa okkur
í gegnum daginn.“
En öll þessi börn. Verða þau
fleiri? „Ekki með núverandi eigin-
konar reddingum. Fólk hefur leit-
aði til okkar og eftir því sem ég
hef verið hér lengur hefur tengsl-
anetið vaxið.“ Hún segir að þegar
skorað hafi verið á hana að sækjast
eftir starfinu hafi hún meðal annars
hugsað hvað sér hafi fundist tengsl-
anet sitt vera vannýtt og því slegið
til; enda kostirnir ekki þeir einu að
fá að hitta fólk og aðstoða.
„Að vera konsúll er heiðursnafn-
bót og hjálpar mér í karlaveldinu
hér. Ég vinn mikið frumkvöðla-
starf í kringum fæðingar og er
ásamt mágkonu minni að beita mér
fyrir því að hér verði sett löggjöf um
heimafæðingar og á fæðingarheim-
ilum. Þegar það tekst ætlum við að
setja upp fæðingarheimili. Allt þetta
krefst þess að maður sanni sig og
ég get sagt að svona nafnbót hjálpar
heilmikið til,“ segir hún.
Breyta lögum í Hong Kong
„Við Kristrún erum komnar langa
leið en það vantar þessa löggjöf
og enginn veit hvar hún á að eiga
heima innan lagarammans. Okkur
var upphaflega sagt að það tæki sjö
ár að ná þessari breytingu í gegn, en
við stefnum á að gera þetta á rúmu
hálfu ári. Við teljum að það sé raun-
hæft,“ segir Hulda og hlær. Hún hef-
ur bæði miðlað af reynslu sinni og
kennt í háskóla þarna ytra og þjálfað
starfsfólk á ríkisspítölum svo konur
geti upplifað ánægjulegri fæðingar.
„Æfingaboltar til stuðnings, fæð-
ingar á hnjánum og standandi voru
óhugsandi hér áður,“ segir hún, en
slíkt sé nú að ryðja sér til rúms inn-
an spítalanna.
„Við þurfum stöðugt að minna
konurnar á að biðja um það sem
er í boði. Þetta er því smámsaman
að breytast,“ segir hún og að áhug-
inn innan einkareknu spítalanna sé
minni en á ríkisspítölum og erfiðara
að breyta viðhorfum til fæðinga þar.
„Í einkageiranum hér, eins og alls-
staðar annars staðar í heiminum,
er mikið um inngrip í fæðingar, því
það kostar meira, tekur styttri tíma
og þjónar hagsmunum spítala og
lækna. En á ríkisspítölunum er, eins
og heima, hvatt til eðlilegra fæð-
inga. En það sem vantar upp á þar
er umhverfið, þar er ekki notalegt.“
Fæðingarheimili þeirra eigi því
eftir að koma mörgum vel og margt
verði í boði sem sé ekki á ríkisspítöl-
unum eða þeim einkareknu. „Laug-
ar, nálarstungur, nuddþjónusta og
nærþjónusta fyrir alla – sem þýðir að
feður og systkin geta þá í fyrsta sinn
tekið þátt í fæð-
ingunum og
fyrstu stund-
um barnsins.“
Hér má sjá lífið upp á dekki á snekkjunni Sóloni Íslandus, sem er heimili Huldu og
fjölskyldu í Hong Kong. Um helgar leysa þau oft festar og fara í siglingar.
viðtal 15 Helgin 5.-8. apríl 2012