Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 8
Aðhafast ekkert vegna Sigurjóns
G uðmundur Rúnar Árna-son, st jórnar formaður Ef t irlaunasjóðs star fs -
manna Hafnarfjarðarbæjar, segir
að stjórnin muni ekkert aðhafast
vegna þeirrar staðreyndar að fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, Sigurjón
Björnsson, er kærður af fjölskyldu
sinni fyrir að féfletta foreldra sína.
„Sjóðurinn hefur verið fluttur yfir
til lífeyrissjóðs starfsmanna sveit-
arfélaga og þar er Jón Kristjánsson
framkvæmdastjóri. Það gerðist 1.
apríl í kjölfar margra mánaða undir-
búningsvinnu. Sigurjón starfar ekki
lengur hjá sjóðnum,“ segir Guð-
mundur Rúnar, sem er jafnframt
bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Fréttatíminn sagði frá því í síð-
ustu viku að systkini Sigurjóns og
móðir hans hefðu kært hann til lög-
reglu fyrir að hafa bæði fjármuni og
fasteignir af foreldrum sínum og er
málið til rannsóknar. Grunur kvikn-
að um gjörðir Sigurjóns í kjölfar
andláts föður hans en þá kom í ljós
að litlir sem engir peningar voru
í búinu. Guðmundur Rúnar viður-
kennir, í samtali við Fréttatímann,
að málið hefði horft öðruvísi við ef
sjóðurinn hefði ekki verið fluttur og
Sigurjón væri þar enn starfandi. „Þá
hefðum við skoðað þetta ofan í kjöl-
inn,“ segir Guðmundur Rúnar en
sjóðurinn var harðlega gagnrýndur
í skýrslu Fjármálaeftirlitsins vegna
brotalama á starfsreglum. -óhþ
Guðmundur Rúnar Árnason, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar. Ljósmynd/Hari
Brottför: 9. júní
Innifalið í verði:
- Flugferðir með sköttum
- Hótelgisting með morgun-
og kvöldverði alla daga
- Skemmti- og skoðunarferðir
- Íslensk fararstjórn
- Kynningarfundur fyrir
brottför
285.000 kr.
Verð:
Nánari upplýsingar og bókanir í síma
555 4700 og á www.sunnuferdir.is
Ítalía - Matur, vín og borgir
8 daga ferð fyrir sælkera til Toscana-héraðsins á Ítalíu
þar sem matar- og víngerð er allsráðandi.
Farið verður á ítalskan matarmarkað undir
leiðsögn meistara í ítalskri matargerð.
Heimsóttur verður vínræktarbóndi, bragðað á
hinum ýmsu víntegundum í bland við osta og
pylsur og fræðst um ólífurækt og gerð
ólífuolíu. Kvöldmatur verður hverju sinni
dæmigerður fyrir hina ýmsu hluta Toscana
héraðs sem heimsóttir verða.
Njótið þess besta sem Toscana hefur upp á
að bjóða og kynnist ítalskri matar- og
vínmenningu í fögru og heillandi umhver.
Líf í árvekni
Mindful Living
Sálfræðistofa Björgvins Ingimarssonar
www.salfraedingur.is
Kennt þri. kl.20-21.45
í sex skipti 17. apríl – 22. maí
Skráning í síma 860 4497 eða
bjorgvin@salfraedingur.is
Námskeið í einfaldari
og streituminni lífsstíl
Kynntar verða viðurkenndar aðferðir til að einfalda lífið
og draga þannig úr streitu og neikvæðum áhrifum
hennar á líkamlega og andlega heilsu.
Sjónum er sérstaklega beint að aðferðum árvekni
(mindfulness) til að takast á við síþreytu, kvíða,
króníska verki, ofþyngd og vefjagigt.
S amkeppniseftirlitið sektaði Símann um 440 milljónir á miðvikudaginn fyrir að mis-
nota markaðsráðandi stöðu sína.
Þetta er í það minnsta fjórða sinn
á undanförnum árum sem Sam-
keppniseftirlitið úrskurðar að
Síminn hafi brotið lög um sam-
keppni og í öll skiptin hefur Brynj-
ólfur Bjarnason, núverandi fram-
kvæmdastjóri Framtakssjóðs
Íslands, verið forstjóri Símans
sjálfs eða móðurfélagsins Skipta.
Um er ræða sektir upp á 50 millj-
ónir og 60 milljónir, sátt upp á
400 milljónir, að því að virðist til
að koma sér undan lögreglurann-
sókn á æðstu stjórnendum, og nú
síðast 440 milljónir króna. Í síðasta
úrskurði var sektin hækkuð vegna
ítrekaðra brota.
„Brynjólfur hefur fullt traust
stjórnar FSÍ. Málið er í ferli og það
er algerlega ótímabært að tjá sig
efnislega um það enda hefur stjórn
Framtakssjóðsins engar forsendur
til þess,“ segir Þorkell Sigurlaugs-
son, stjórnarformaður Framtaks-
sjóðs Íslands, um stöðu Brynjólfs
Bjarnasonar, framkvæmdastjóra
sjóðsins, í kjölfar nýjustu sektar
Samkeppniseftirlitsins til handa
Símanum á þeim tíma sem Brynj-
ólfur var forstjóri. Fyrirtækið var
sektað um 390 milljónir fyrir sam-
keppnislagabrot og aukalega um 50
milljónir fyrir að gefa villandi upp-
lýsingar en það gerðist einnig í tíð
Brynjólfs. Þorkell sjálfur hefur ver-
ið í broddi fylkingar í umræðu um
góða stjórnarhætti og
skrifaði meðal annars
bókina Ný framtíðar-
sýn árið 2009 þar sem
...nýir stjórnarhættir,
bætt viðskiptasiðferði,
sjálfbærni og nýsköp-
un eru höfð að leiðar-
ljósi, eins og segir í
kynningu bókarinnar.
Lífeyrissjóður
verzlunarmanna og
Gildi eiga stóra hluti
í sjóðnum en hvorki
Helgi Magnússon, for-
maður stjórnar LV, né
Vilhjálmur Egilsson,
stjórnarformaður Gildis, vildu tjá
sig um málið. „Í Framtakssjóðnum
er sérstök stjórn og ég vísa á hana.
Þetta er sjö manna stjórn og mjög
vel skipuð,“ segir Helgi. Í sama
streng tekur Vilhjálmur og bendir
á enginn stjórnarmanna eða starfs-
manna Gildis sitji í stjórn Fram-
takssjóðsins. „Ef þú spyrð mig
persónulega um Brynjólf er það
að segja að ég hef haft mikið álit á
honum allt síðan leiðir okkar lágu
saman í Vinnuveitendasambandi
Íslands á níunda áratug
síðustu aldar og hann
hefur náð mjög góðum
árangri sem rekstrar-
maður á sínum starfs-
ferli. Nú vil ég ekki setj-
ast í dómarasæti vegna
þeirra samkeppnismála
sem þú vitnar til og
bendi á að nýjasta málið
er ekki útkljáð,“ segir
Vilhjálmur.
Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri Samkeppnis-
eftirlitsins, segir eftir-
litið ekki hafa nein tæki
til að koma í veg fyrir
að menn, sem oft hafa brotið sam-
keppnislög, gegni trúnaðarstörf-
um. „Þetta þekkist í öðrum lönd-
um og er eitthvað sem við munum
skoða þegar til frekari styrkingar
samkeppnislaga kemur,“ segir Páll
Gunnar.
Kristján Kristjánsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsbankans, stærsta
hluthafa Framtakssjóðsins, segir í
samtali við Fréttatímann að stjórn
Framtakssjóðsins sé sjálfstæð.
„Hluthafar treysta henni til að
sinna sínu starfi og taka ákvarðan-
ir með hag félagsins í huga,“ segir
Kristján.
Ekki náðist í Brynjólf Bjarnason,
framkvæmdastjóra Framtakssjóðs-
ins. Hann er erlendis.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Stýrir Framtakssjóði þrátt fyrir
ítrekuð samkeppnislagabrot
Síminn og Skipti hafa ítrekað gerst sek um samkeppnislagabrot í stjórnartíð Brynjólfs
Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Framtakssjóðs Íslands sem er í eigu Landsbankans, VÍS og
fimmtán lífeyrissjóða. Stjórnarformaður ber fullt traust til Brynjólfs.
Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, á að baki nokkur samkeppnislagabrot. Ljósmynd/365
Þorkell Sigurlaugsson,
stjórnarformaður Fram-
takssjóðs Íslands.
Brynjólfur hefur fullt traust
stjórnar FSÍ.
8 fréttir Helgin 5.-8. apríl 2012