Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Side 46

Fréttatíminn - 05.04.2012, Side 46
H ér verða tald-ar til helstu ástæður hrunsins, en margar tengjast innbyrðis: 1. Mannaráðningar á Íslandi. Hafa oft verið „B ráðning- ar“, fólk ráðið vegna ættartengsla, póli- tískra viðhorfa eða vináttu í stað hæfis. 2. Skortur á ábyrgð eigenda og stjórna bankanna. Eigendur banka létu lána fyrir- tækjum sínum gríðarlegar upp- hæðir, jafnvel yfir 50 prósent af eigin fé viðkomandi banka, eins og segir í laginu „þeir urðu Ís- landi að falli“. 3. Eftirlit. Skortur var á öflugu eftir- liti það er fjármálaeftirliti, sam- keppnis- og skattaeftirliti, en einnig á fleiri sviðum samanber iðnaðarsaltið og brjóstapúðana. 4. Afnám hafta á fjármálakerfinu þar sem fordæmið var sótt til Bandaríkjanna. 5. Ábyrgðarleysi lögfræðinga og endurskoðenda. Sumir þeirra gengu erinda eigenda banka og stórfyrirtækja. 6. Röng aðferðafræði við yfirtöku ríkisins á Glitni banka. Mörgu var þar ábótavant og keðjuverk- andi. Þó sýndi rannsóknar- skýrslan og Landsdómur að bönkunum yrði ekki bjargað á þessum tímapunkti. 7. Aðgerðaleysi þingmanna. Alþing- ismenn eiga að setja heilbrigð- ar leikreglur fyrir samfélagið og sjá til þess að stjórnsýslan annist góða framkvæmd, þeir brugðust. 8. Hamfarir og fjármálakreppa sem riðu yfir alþjóðlegt hagkerfi einkum haustið 2008. Banka- kerfið í okkar litla og opna hag- kerfi, var gríðarlega stórt hlut- fall af landsframleiðslu eða um 12,5 sinnum stærra og gjald- miðillinn var og er mjög veikur. 9. Ekki var hlustað á trúverðuga erlenda sérfræðinga. Góðar greiningar þeirra voru rakkað- ar niður, jafnvel af málsmetandi stjórnmálamönnum sem og fjöl- miðlum, sem sumir voru reknir af eigendum bankanna. 10. Hvítþvottur ráðgjafa og mats- fyrirtækja. Hagsmunaaðilar og fleiri létu gera skýrslur sem áttu að sýna stöðugleika íslenska efnahagslífsins og bankakerf- isins, svo sem skýrslu unna af Tryggva Herbertssyni, og pró- fessor Mishkin. 11. Eiginhagsmunir stjórnmála- manna. Málsmetandi stjórn- málamenn birtust og viðhöfðu stór orð um skýrslur erlendu aðilana sem vöruðu við íslenska bankakerfinu. Orð þáverandi varaformanns annars stjórnar- flokks í ágúst 2008 eru fleyg; „það þarf að senda þessa menn í endurhæfingu á skólabekk“! 12. Skortur á lögum um fjölmiðla. Frumvarp til fjölmiðlalaga sem hafnað var á sínum tíma var ekki gallalaust, en nauðsynlegt var að setja slík lög. Eignarhald ákveðinna aðila á fjölmiðlum var ein af ástæðum andvaraleysis þeirra. 13. Virðingarleysi fyrir lögum og rétti. Mörgum þykir því miður ekki tiltöku- mál að fara á sveig við hlutina eins og dæmin sýna. 14. Menntun og fjár- málalæsi ábótavant. A lmenningur varð auðvelt fórnarlamb fjármálastofnana þeg- ar farið var að bjóða óskynsam- legar lántökur svo sem 90 pró- sent lán. 15. Peningagræðgi og efnishyggja. Almenn efnishyggja mikil og löngunin eftir að eignast hluti án þess að eiga fyrir því. 16. Hagfræðilegar blekkingar. Fólki var talin trú um að Íslendingar væru svo ríkir! Höfundur skrif- aði grein um þá hagfræðilegu blekkingu í Morgunblaðinu árið 2006 undir nafninu „Íslendingar sjötta ríkasta þjóð í heimi“. 17. Skortur á ákveðnu viðskiptasið- ferði og skattfræðiþekkingu. Gráa svæðið var stórt, menn komast upp með ótrúlega hluti í viðskiptaumhverfinu. Hluti al- mennings virðist einnig ekki gera sér grein fyrir til hvers það er að greiða skatta. 18. Í þjóðareðlinu og meðal ráða- manna er tilhneiging til að „byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í“ eða hann jafn- vel orðin fullur af börnum. Að- gerðir eru oft eftirábyggjandi í stað fyrirbyggjandi. 19. Brotalamir í hagstjórn, einkum frá árinu 2000 auk veikrar stjórn- sýslu. Þensluhvetjandi aðgerð- ir, skortur á aðhaldi í ríkisfjár- málum og ýmis hagfræðileg lögmál í raun brotin. Að mörgu leyti gervihagvöxtur keyrður upp með lántökum. 20. Sala Landsbankans og Búnaðar- bankans. Aðferðin sem beitt var við söluna og valið á kaupendum var ámælisvert. Þau vinnubrögð urðu meðal annars til þess að formaður einkavæðingarnefnd- ar sagði upp stöðu sinni með orðunum „Aldrei kynnst öðrum eins vinnubrögðum“. 21. Þjóðhagsstofnun var lögð nið- ur. Um var að ræða hlutlausan greiningaraðila. Í staðinn tóku svokallaðir „sérfræðingar“ hjá greiningardeildum bankanna við þjóðhagsspám! 22. Gjafakvótakerfið. Hvort tveggja var gallað, aðferðafræðin og framkvæmdin. Undirritaður leyfir sér að vera nokk- uð bjartsýnn fyrir hönd Íslands með von um viðsnúning. Landið er ríkt af auðlindum, mannauði, orku, gjöf- ulum fiskimiðum og fleiru. Slæmir stjórnendur, eftirlit og fleira hér að ofan talið er vandamálið. Nauðsyn- legt er að útrásarvíkingarnir og aðr- ir sem rænt hafa þjóðina greiði sem allra mest til baka. Rétt væri að einn þessara manna framseldi hlutdeild sína í Actavis til þjóðarinnar. Rétt- látara er að ýmsum sökudólgum blæði en almenningi. Hægt er að lesa ýtarlegri útgáfu greinarinnar á hakonthor.blog.is 22 punktar Ástæður og ábyrgðar- menn hrunsins Hákon Þór Sindrason, framkvæmdarstjóri Heilsulindir í Reykjavík PÁSKASUND Lykill að góðri heilsu www.itr.is ı sími 411 5000 Afgreiðslutími um páska Annar í Páskum 9. apríl Páskadagur 8. apríl Laugardagur 7. apríl Föstud. langi 6. apríl Skírdagur 5. apríl ÁRBÆJARLAUG BREIÐHOLTSLAUG GRAFARVOGSLAUG KLÉBERGSLAUG LAUGARDALSLAUG SUNDHÖLLIN VESTURBÆJARLAUG kl. 11-19 kl. 10-18 kl. 9-17 kl. 10-18 kl. 11-19 kl. 10-18 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 10-18 kl. 10-18 Lokað kl. 10-18 Lokað kl. 10-18 kl. 11-15 Lokað kl. 11-15 Lokað kl. 11-15 kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22 kl. 10-18 Lokað kl. 8-16 Lokað kl. 10-18 kl. 11-19 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 11-19 Helgin 5.-8. apríl 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.