Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 36
6 brúðkaup Helgin 5.-8. apríl 2012 Farðu inn á www.oddi.is og búðu til persónulega gjöf. Fallegt kerti með þínum myndum. Prentun frá A til Ö VERÐ 2.990 kR. stykkiÐ Hannaðu þitt eigið kerti á oddi.is Öll dýrmætu augnablikin fest á filmu B rúðkaupsmyndirnar eru eitthvað sem ekki má klikka því ómögulegt er að endurtaka daginn. Mikilvægt er að hafa hugfast að fá rétta ljósmyndarann til að fanga öll dýrmætu augnablikin á þessum stóra degi og að tryggja að ljós- myndarinn átti sig á hver „réttu“ augnablikin séu að ykkar mati. Ekki viljum við að ljósmyndarinn sé vant við látinn þegar brúðar- vendinum er kastað eða þegar brúðhjónin mata hvort annað af kökunni. Setjist því niður og farið yfir skipulagið með ljósmyndar- anum. Fyrst þarf samt sem áður að velja ljósmyndara og gera upp við sig hvernig myndir maður vill eiga eftir brúðkaupsdaginn. Hér eru nokkrar ráðleggingar. Hvernig velja skal ljósmyndara Samspil ljósmyndara og viðfangs- efnis, í þessu tilfelli brúðhjóna, þarf að vera gott og ganga vel. Þess vegna er gott að kynna sér vel heimasíður ljósmyndara, hvernig myndir þeir taka og gera upp við sig hvaða ljósmyndari hentar manni og að sjálfsögðu í leiðinni hvernig myndir maður vill fá. Hver og einn ljósmyndari hefur sinn stíl og vanir brúðkaupsljósmyndarar geta eflaust líka komið með margar góðar hug- myndir. Veljið úr nokkra og mælið ykkur mót við þá til þess að stilla saman strengi og til að finna hvort að þið getið unnið vel saman. Ljós- myndarinn þarf að vinna náið með ykkur svo að þið verðið að geta treyst hvort öðru. Hvenær bóka skal ljósmyndara Það er best að bóka ljósmyndara með góðum fyrirvara því þeir sem henta þér best geta verið uppbókað- ir með löngum fyrirvara. Hugið að þessu með 6 mánaða fyrirvara, sér- staklega ef þið ætlið að gifta ykkur á laugardegi yfir sumarmánuðina apríl - september. Vert að hafa bak við eyrað Búið til lista yfir spurningar sem þið viljið spyrja ljósmyndarann. Segið frá hverjar ykkar óskir eru og miðlið sem mestum upplýsing- um um brúðkaupsdaginn svo sem þema og tímasetningum, til þess að allt sé á hreinu. Spyrjið einnig út í hverjir möguleikarnir eru varð- andi afhendingu á myndunum, það er hvort hægt sé að fá þær á DVD, í albúmi, stækkaðar upp og fleira. Ekki gleyma að búa til samning því á löngum tíma er auðvelt að gleyma í hverju samkomulagið fólst ná- kvæmlega. Þetta tryggir að allir gangi sáttir frá borði. Hvernig myndir skal taka Afskaplega mikilvægt er að fanga réttu augnablikin á brúðkaups- deginum því þau koma ekki aftur. Setjist niður með ljósmyndaranum og gerið lista yfir það sem þið viljið festa á filmu. Margir vilja mynda undirbúninginn svo sem þegar brúðurin hefur sig til, mynd af brúð- arkjólnum hangandi á herðatré og mynd af brúðinni með fjölskyldunni sinni áður en haldið er til kirkju og mynd af brúðgumanum með svara- manninum. Í athöfninni er mikil- vægt að eiga mynd af gestum að koma til kirkju, brúðgumanum sem situr og bíður brúðar, mynd af brúð- inni áður en hún gengur inn kirkju- gólfið, kossinum, mynd af gestum, hringaberum, blómabörnum og brúðhjónunum að ganga saman út úr kirkjunni og svo framvegis. Þá má ekki gleyma myndum eftir at- höfnina þegar brúðhjónin koma út úr kirkjunni, setjast inn í bílinn og svo myndum úr veislunni, af há- borðinu, brúðhjónunum að dansa brúðarvalsinn, af brúðhjónunum að fá sér af kökunni ... og svo að sjálf- sögðu sjálfum brúðkaupsmyndun- um sem teknar eru í stúdíói eða á völdum stað. Á sumrin eru þær oft teknar úti í náttúrunni en auðvitað fer það eftir veðri. Hversu langan tima tekur stúdíómyndatakan? Best er að ætla 60-90 mínútur í þessa myndatöku svo að tími gefist til að slaka á og ná góðum mynd- um. Misjafnt er hvort að fólk velur að taka þessar myndir fyrir eða eft- ir brúðkaup. Kosturinn við að taka þessar myndirnar fyrir brúðkaup felst í því að þá þurfa gestirnir ekki að bíða eins lengi eftir að brúðhjón- in mæti til veislu en ef myndirnar eru teknar eftir brúðkaup eru brúð- hjónin oft afslappaðri og svo eru sumir sem vilja ekki að brúðgum- inn sjái brúðina í kjólnum fyrir at- höfnina. Munið bara að gera ráð fyrir rúmum tíma svo að ekki verði stress. Hvað er „Trash the dress“ myndataka? Að undanförnu hefur ný tegund af myndatöku verið að ryðja sér til rúms sem á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna. Hún er kölluð „Trash the dress“ og felst í að taka myndir af brúðinni í brúðarkjólnum á óvenjulegum stöðum svo sem úti í sjó, undir brú, í bílakirkjugarði og á fleiri óvenjulegum stöðum. Myndatakan þarf þó ekki að fela í sér að brúðarkjóllinn sé eyðilagð- ur og gaman getur verið að fá að nota hann aftur og fá í kaupbæti skemmtilegar og svalar myndir.  Brúðkaupsmyndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.