Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 26
Gekk yfir heiði eftir plötu „Fyrsta ballið sem ég fór á um æfina, annað en barnaball, var með Ný- dönsk,“ segir Þröstur Árnason, sem býr á Borgarfirði eystri og starfar hjá hreppnum. „Þetta var 9. mars 1991. Um leið og ég gekk inn í salinn sleit Björn Jörundur A-strenginn í bassan- um sínum. Þetta var mjög einkennilegt augnablik og eftirminnilegt.“ Ballið fór svo vel í Þröst að hann seg- ist hafa verið heltekinn af Nýdönsk síð- an. „Ég hef lagt á mig ómældar ferðir til Akureyrar, Reykjavíkur, Seyðisfjarð- ar og víðar til að sjá þá. Ég hef farið á alla stóra tónleika með þeim. Síðast á Akureyri þegar þeir spiluðu Deluxe- plötuna. Þá sá ég þá bæði klukkan átta og ellefu.“ Og það er mikið á sig lagt: „Þegar Björn Jörundur gaf út plötuna BJF var ófært til Egilsstaða dögum saman. Mér lá á að heyra plötuna og gafst að lokum upp á að bíða eftir færð. Ég gekk því yfir Vatnsskarðið, einhverja fimm kíló- metra og lét vin minn koma á móti mér með plötuna hinum megin frá. Það var vel göngunnar virði.“ Þröstur segir aðdráttarafl sveitar- innar vera skýrt í sínum huga: „Maður þarf ekki að heyra nema 2-3 tóna með þeim í útvarpinu til að vita að þetta eru þeir. Sándið er svo einstakt. Svo er líka gaman að því að þeir hafi náð þessum aldri en samt eru þeir alltaf jafn skemmtilegir. Ég held að Stuð- menn sé eina hljóm- sveitin sem hefur náð viðlíka árangri á Íslandi.“ Húsmæðragarð- urinn er uppáhalds- plata Þrastar. „Það er lang besta platan. Hinar kom- ast ekki í hálfkvisti við hana. Og lagið Átrúnaðargoðin af henni er besta lagið. Það er óhemju gott en aldrei spilað í útvarpinu.“ Þröstur hugsar sér gott til glóðarinn- ar á afmælisárinu. Hann hafði vonast til að sveitin kæmi loksins til Borgar- fjarðar eystri og spilaði á Bræðslunni í sumar, en af því verður ekki. „Ég var búinn að bjóða þeim að gista í húsinu mínu. Ætlaði bara að taka köttinn og leyfa þeim að hafa húsið. Það kemur.“ Hjakkar aldrei í sömu förunum „Maður heyrði hittarana af fyrstu plötunni, en eftir að ég fékk kass- ettuna af annarri plötunni, Regnboga- landi, þá fór ég að fylgjast með þeim af alvöru,“ segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari KA í knattspyrnu. „Sálin var mun vinsælli uppi á Skaga þar sem ég bjó, en Nýdönsk höfðaði meira til mín enda að spila aðeins þyngra stöff. Við vorum tveir á Skaganum sem vorum aðdáendur og fórum mikið í bæinn til að sjá þá á tónleikum og á böllum. Svo mikið reyndar að þeir fengu okkur til að skrifa pistil um sig í leikskrána við Gauragang. Það fannst okkur auðvitað mikil upphefð.“ Gunnlaugur bjó til þátt um hljóm- sveitina í framhaldsskólaútvarpið á Akranes árið 1995. Þar var kominn grunnur sem hann vann úr þegar gerði fimm þætti um bandið árið 2008 fyrir Rás 2. „Ég var að vinna í MP banka á þeim tíma og það var lítið að gera, enda var að detta í hrun. Ég hafði því nægan tíma til að vinna þættina í vinnunni.“ Gunnlaugur er enn á því að Deluxe sé besta platan ... „og Húsmæðra- garðurinn næst best. Það er plata sem vinnur vel á.“ Hann segir að lagið Foss, sem kom út fyrst á safnplötu sumarið 1993 og á Hunang fyrir jólin, sé uppáhaldslagið sitt með Nýdönsk. „Bandið höfðar til mín af því það er alltaf leitandi og hjakkar aldrei í sömu förunum,“ segir hann. X-faktor í textunum „Bróðir minn var rótari hjá þeim og einu sinni fékk ég að vera aðstoðarrót- ari á balli á Borgarnesi. Stuttu síðar gáfu þeir út plötuna Himnasendingu og þá má segja að þeir hafi skotneglt mig. Mér þótti bandið gott en eftir Himnasendingu varð ég bara ástfang- inn,“ segir Þorvaldur Makan Sig- björnsson, sem býr í Stokkhólmi. Hann segir Nýdönsk búa yfir mörgum kostum. „Þetta er frumleg og fersk hljómsveit, og þetta eru auð- vitað stórskemmtilegir menn. Svo eru textarnir á íslensku og þeir liggja ekki alltaf ljósir fyrir. Svo maður sletti, þá má segja að það sé einhver x-faktor í textunum.“ Lagið Flugvélar er í miklu upp- áhaldi hjá Þorvaldi og hann segir að tvöfalda safnplata 1987-2007 sé pakki sem hann geti ekki verið án. Og Þorvaldur á sér draum: „Að fá hljóm- sveitina hingað til Svíþjóðar að spila. Ég er reyndar að fara á fund hjá leik- húsi hérna seinna í mánuðinum til að kanna hljómburð og svoleiðis, svo þetta er allt í vinnslu. Það er allt fullt af Íslendingum hérna svo ég tel lítið mál að fylla kofann.“ Aðrir harðir aðdáendur Meðal annarra gallharðra Nýdönsk- aðdáenda má nefna viðskiptajöfrana Guðjón í Oz og Jón Ásgeir Jóhannes- son, en Nýdönsk spilaði í „brúðkaupi aldarinnar“ hjá honum. Tónlistarmenn- irnir Magni Ásgeirsson og Mugison eru í aðdáendaklúbbnum og knatt- spyrnufólk er oftar en ekki mjög hrifið af hljómsveitinni. Til dæmis er Katrín Jónsdóttir, læknir og knatt- spyrnukona, mikill aðdáendi; sem og Ásmund- ur Haraldsson, knattspyrnuþjálf- ari hjá Stjörnunni; Fylkismaður- inn Baldur Örn Arnarson, Birkir Björnsson knatt- spyrnumaður á Austfjörðum og Hólmfríður Magnúsdóttir, knattspyrnukona. Dr. Gunni drgrunni@internet.is Helteknir af Nýdönsk Nýdönsk heldur upp á 25 ára afmæli sitt með ýmsu móti í ár. Velvaldir tónlistamenn taka Nýdönsk- lög í nýjum búningi og er útgáfa KK af Frelsinu þegar farin að heyrast. Retro Stefson, Mugison, Hjaltalín og fleiri eru í startholunum. Þá verður haldin Nýdönsk remix-keppni í samstarfi við Party Zone og Rás 2 og bandið heldur sér- staka afmælis- tónleika í Hörpu og Hofi í september. Í gegnum tíðina hefur hljómsveitin eignast marga aðdáendur. Fréttatíminn heyrði í þremur sem má telja til ofuraðdáenda sveitarinnar. Nýdönsk verður kvart-aldar gömul á árinu og heldur upp á það með ýmsu móti. Ljósmynd/Ari Magg Gunnlaugur gerði útvarpsþætti um Nýdönsk í vinnunni. Þorvaldur skipuleggur tónleika Nýdönsk í Stokkhólmi. Þröstur og kötturinn Gestur eru tilbúnir að yfirgefa húsið sitt komi Nýdönsk til Borgar- fjarðar eystri. 26 tónlist Helgin 5.-8. apríl 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.