Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 21
Skráðu litla snillinginn til leiks á www.kreditkort.is
Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gætirðu
tryggt barninu þínu ógleymanlega upplifun. Eitt barn
á aldrinum 7-9 ára verður dregið út og fer ásamt
fylgdarmanni á úrslitaleik UEFA Champions League í
Munchen í maí. Þar fær barnið að leiða leikmann inn á
völlinn í boði MasterCard, aðalstyrktaraðila UEFA
Champions League. Það eina sem þú þarft að gera er að
skrá barnið og nota MasterCard kortið a.m.k. 10 sinnum
frá 1. apríl–30. apríl 2012.
UPPLIFUN SEM
ALDREI GLEYMIST
Barnið þitt gæti fengið að leiða leikmann
inn á völlinn í úrslitaleik
UEFA Champions League í Munchen
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Andres Iniesta, Spáni
Aldur: 27 ára
Félag: Barcelona (Spáni)
Staða: Miðjumaður
Leikir á þessu tímabili/mörk: 36/6
Landsleikir/mörk: 64/11
Iniesta hefur stundum verið
kallaður „vanmetnasti
leikmaður heims“ vegna
þess að hann fær ekki
jafnmikla athygli og margir
félaga hans í Barcelona og
spænska landsliðinu. Hann er með
afburða leikskilning, frábæra tækni og
þótt hann skori ekki mikið þá eru mörk
hans oft mikilvæg samanber sigurmarkið
gegn Hollendingum á HM í Suður Afríku fyrir
tveimur árum.
Manuel Neuer, Þýskalandi
Aldur: 26 ára
Félag: Bayern München (Þýskalandi)
Staða: Markvörður
Leikir á þessu tímabili: 44
Landsleikir: 25
Neuer er, þrátt fyrir ungan aldur, einn besti
markvörður heims. Eins og fram kom í viðtali
við Peter Schmeichel hér í blaðinu þá telur
hann Neuer hafa alla burði til að verða besti
markvörður heims. Hann setti nýtt met hjá
Bayern München í vetur þegar hann hélt
markinu hreinu í yfir þúsund mínútur.
Cristiano Ronaldo, Portúgal
Aldur: 27 ára
Félag: Real Madrid (Spáni)
Staða: Framherji
Leikir á þessu tímabili/mörk: 44/47
Landsleikir/mörk: 88/32
Ef ekki væri fyrir lágvaxinn, fremur renglulegan
gaur að nafni Lionel Messi þyrfti ekki að ræða
hver væri besti knattspyrnumaður heims. Ro-
naldo hefur allt. Hann er vaxinn eins og grískur
guð, hleypur hraðar en flestir, er með frábæra
tækni og skýtur fastar en nær allir. Hann er
markamaskína sem hefur verið ótrúlega
góður undanfarin ár. Á EM er enginn Messi
og þetta gætið orðið mótið hans Ronaldos.
Wesley Sneijder,
Hollandi
Aldur: 27 ára
Félag: Internazionale (Ítalíu)
Staða: Miðjumaður
Leikir á þessu tímabili/mörk: 19/4
Landsleikir/mörk: 81/23
Sneijder hefur undanfarin ár
verið einn besti sóknarmiðjumaður
heims. Hann gefur frábærar
sendingar og er stórhættulegur í
föstum leikatriðum. Hann hefur
ekki verið í sínu besta formi á
þessu tímabili en Hollendingar
vona að hann finni aftur formið
sem skilaði fimm mörkum á HM í
Suður Afríku fyrir tveimur árum.
Wayne Rooney, Englandi
Aldur: 27 ára
Félag: Manchester United (Englandi)
Staða: Framherji
Leikir á þessu tímabili/mörk:
35/28
Landsleikir/mörk: 73/28
Rooney er eini leikmaður
enska landsliðsins sem getur
flokkast í heimsklassa. Vanda-
mál liðsins er að hann byrjar EM
í tveggja leikja banni. Rooney er
fljótur, frábær skotmaður, óhemju
duglegur og virkur í spilinu. Hann á
það til að láta skapið hlaupa með sig
í gönur en þegar hann er í toppformi
standast honum fáir snúning.
Franck Ribery,
Frakklandi
Aldur: 28 ára
Félag: Bayern München
(Þýskalandi)
Staða: Miðjumaður
Leikir á þessu
tímabili/mörk:
38/14
Landsleikir/mörk: 57/7
Ribery hefur verið
óheppinn með meiðsli
undanfarin ár en engum
blöðum er um að fletta að
hann er einn af bestu kantmönn-
um heims þegar hann er heill. Hann er ótrúlega
fljótur og leikinn og með góðar sendingar. Frakkar
binda vonir við að hann verði næsti Zidane og muni
leiða franska liðið til sigra á komandi árum.
fótbolti 21 Helgin 5.-8. apríl 2012